Morgunn


Morgunn - 01.12.1992, Síða 18

Morgunn - 01.12.1992, Síða 18
Ég trúði ekki á þetta í fyrstu MORGUNN minn, hvar sem var í heiminum. Mér fannst ég alltaf sjá þetta svona eins og ofan frá. Eitt sinn sem oftar lá ég á Landakoti á tveggja manna stofu, innst á ganginum. Með mér lá gömul kona, sem vissi orðið nokkur deili á mér og mínum. Á þessum tíma var Bjarni minn atvinnulaus og vissi þessi gamla kona af því. Þá finnst mér einu sinni að ég komi niður að höfn og fari um borð í íslenskt skip, svart á lit. Á báðum hliðum þess eru fánar við hún, annar mjög stór og er það íslenski fáninn, en á hinni hlið skipsins sá norski. Og ég skynja það að Bjarni eigi að fara á þetta skip. í þann mund vakna ég og segi gömlu konunni strax frá þessu. Hún svarar því eitthvað þannig að það verði nú gaman að sjá hversu berdreymin ég sé varðandi þetta. Nú, það er nú ekkert annað en það að Bjarni kemur þarna biaðskellandi í næsta heimsóknartíma á eftir, hlaðinn jólapökkum, því þetta var rétt fyrir jólin, og tilkynnir mér að hann hafi keypt jólagjafirnar því hann sé búinn að ráða sig á þetta skip, sem hann tiltekur. Það sé búið að leigja skipið til Noregs og það eigi að vera í flutn- ingum þar á milli hafna og jafnvel eitthvað til meginlands Evrópu líka. Hann er svo nærri því sex mánuði í þessum siglingum. Eitt sinn sá ég það í svona sýn, að hann er staddur í hafnarbæ í suðurhluta Noregs og er á leið í land. Ég sé hann ganga áleiðis frá höfninni og inn til bæjarins þangað sem mér fannst að væri járnbrautarstöð. Og þar hverfur hann mér út í myrkrið. Eg vakna svo upp frá þessu og vissi ekkert meira um hans ferðir. Síðan líða nokkrar vikur, og þá er hringt í mig og mér tilkynnt að hann sé látinn. Ég segi að það geti ekki verið. Maðurinn sem hringdi heldur náttúrlega að mér sé svo brugðið að ég bara afneiti þessu alveg. Hann spyr mig því hvort ég hafi frétt eitthvað annað. Ég neita því og

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.