Morgunn


Morgunn - 01.12.1992, Síða 23

Morgunn - 01.12.1992, Síða 23
MORGUNN Ég trúði ekki á þetta í fyrstn hans megin. hað kemur inn um dyrnar, gengur að fóta- gaflinum mín megin, og gengur svo framhjá mér. Og mér fannst stafa frá því einhverri herjans frekju. Mér finnst það fólk sem fyrst kom vera einhversstaðar aftan úr öldum, frá herragarðstímabili einhverju. Og allt var það klætt í ýmsa búninga, allt eftir því hvaða tímabili það hafði verið uppi á. Og alltaf var það einhver einn sem hafði orð fyrir hverjum hóp og allir kröfðust þess sama. bau vildu mig í burtu af þessum stað. Þessa krafðist hver hópurinn af öðrum, jafnóðum og þeir komu inn. Ég svaraði þeim og sagði að það kæmi sko ekki til greina, ég færi ekki fet. Ég var bara hin versta og hugsaði með mér að ég skyldi sko ekki færa mig hætis hót. Svo sé ég allt í einu að inn kemur par. Og ég skynja það að þau hafa farið ung af jörðinni. Þau hafa ekki verið gift en stúlkan verið orðin ófrísk þegar þau létust, en þau höfðu bæði látist á sama tíma. Þau höfðu yfirgefið jarðlífiö vegna þess að þau máttu ekki eigast. En þau eru strönduð þarna ein- hvers staðar á milli vita og komast ekki áfram. Með þeim er barnið þeirra. Og mér finnst að ég eigi aö hjápa þeim. Eg rétti þeim höndina og leiða þau áfram. Þetta voru afskaplega góðar manneskjur og mér finnst ég leiða þau áfram eins og sjómennina áður. En ekki varð ég þó vör við að ég kæmi að landamæralínunni eins og þá. En mér fannst samt að ég væri búin aö koma þeim á þá braut sem þau þurftu til þess að komast áfram. Mér fannst þau fara inn í mikla birtu og vera mjög ánægð. Svo heldur þessi ganga fólksins áfram í gegnum her- bergið okkar, kynslóð eftir kynslóð, þangað til að það er farið að nálgast tímabilið í kringum síðustu heimsstyrj- öld. bá sé ég koma par sem hafði veriö gift á jörðinni. Og ég verð þess strax fullviss að þau hafi veriö myrt af ein- hverjum s.k. föðurlandsvinum. Og það var erfitt í kringum þau. Mér fannst ég koma inn að bæ, trúlega 21

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.