Morgunn - 01.12.1992, Blaðsíða 43
morgunn
Þjónusta englanna
Rétt á eftir kom læknirinn inn. Á sama augnabliki sem ég
sá framan í hann vissi ég að hann kom með fregnina um
andlát föður míns, en þorði ekki að segja mér þetta. Mér
datt í hug að gera honum það auðveldara.
„Þú ert kominn til að segja mér, að faðir minn hafi orðið
fyrir slysi, eða annað verra, að hann sé dáinn," sagði ég.
„Hann hefur meiðst illa," svaraði hann, „og... og þeir
eru að bera hann inn."
,,Hvers vegna segirðu mér ekki sannleikann nú,
læknir?" sagði ég. „Ég veit, að faðir minn er dáinn."
„Ég má ekki þræta fyrir það við þig," sagði hann og var
hik á honum. „Hann er dáinn."
Eftir fáeinar mínútur var andvana lík föður míns borið
inn í húsið.
Eftir jarðarförina spurði læknirinn mig, hvernig á því
hefði staðið, að ég hefði verið svo sannfærð um að faðir
minn væri dáinn, áður en hann hefði sagt mér það. Þá
sagði ég honum frá sýn minni. Hann sagði mér að allt
sem fyrir mig hafði borið í sýninni hefði í raun og veru
gerst, að hann og bróðir hans hefðu gert einmitt það sem
ég hafði séð þá gera, að hann hefði sagt nákvæmlega
sömu orðin, sem ég hafði heyrt hann segja.
Faðir minn hafði dáið af hjartabilun. Ég fékk ekki að
vita það fyrr en eftir andlát hans, að honum hafði um tvö
síðustu árin verið kunnugt um sjúkdóm sinn og að hann
gæti dáið á hverri stundu. En hann var hugaður
hermaður og hann tók dauðadóm sínum með sama ró-
lega hugrekkinu, sem hafði fleytt honum gegnum allar
skelfingar indversku uppreisninnar og hann hafði dulið
fyrir börnum sínum alla vitneskju um þetta, til þess að
hún skyldi ekki spilla ánægju þeirra.
41