Morgunn


Morgunn - 01.12.1992, Side 24

Morgunn - 01.12.1992, Side 24
Ég trúði ekki á þetta í fyrstu MORGUNN hefur það verið á þeim stað sem við dvöldum þarna, og ganga um stéttina þar og var það mjög erfitt. Og ég leiddi þau svo áfram eins og fyrra parið. Þau voru líka ein- hvernveginn föst á milli sviða eins og þau, vegna þess sem hafði skeð. Og áfram heldur fólkið að streyma þarna í gegnum her- bergið. Og nú sé ég gömlu hjónin sem myndin í her- berginu var af, koma. Þau segjast vita að ég sé búin að dvelja eina viku í Osló, og mér sé mjög velkomið að vera þarna og ég skuli alls ekki víkja. Þau voru afskaplega almennileg og stafaði mjög góðu frá þeim. Og ég vaknaði skyndilega upp af þessu öllu þegar þau fóru. Og þá var ég svo hrædd að það var engu lagi Hkt. Ég færði mig hið snarasta yfir í rúmhelming mannsins rníns og haggaði mér ekki þaðan það sem eftir lifði nætur. En hann varö aldrei var við neitt. Og líklega hefur þetta ekki staðið ýkja lengi yfir. En allan tímann sem við dvöldum í húsinu fannst mér vera afar óhreint þarna uppi á loftinu. Og daginn eftir tók ég mig til og ræddi við þetta fólk allt sem mér hafði fundist vera þarna um nóttina og sagði því að ég myndi aldrei víkja fyrir því. Þau gætu sem best veriö þarna fyrir mér en ég ætlaöi að dvelja í herberginu svo lengi sem mér sýndist, ég myndi aldrei víkja úr því fyrir þau. Það væri mér að meinalausu þó þau væru þarna en þau ættu bara að láta mig í friöi. Ég sá þetta fólk ekki aftur en ég fann fyrir því. Það var svona eins og það kæmi eitthvert myrkur á móti manni, það var nánast eins og maður skæri loftið þegar maður gekk áfram. Ég fór upp á loftið hvenær sem mér hentaði og gaf ekkert eftir, þrýsti mér bara í gegnum þetta. En það sérstaka var að dóttir mín hafði orðiö vör við, þar sem hún svaf í herberginu fyrir neðan, að eitthvað mikið var að gerast uppi á loftinu, einmitt á þeim tíma sem fólkiö er aö marsera þar í gegn.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.