Morgunn


Morgunn - 01.12.1992, Blaðsíða 45

Morgunn - 01.12.1992, Blaðsíða 45
morgunn Þjónusta englanna sem undir þeirra umsjón voru og hve oft þeim tókst að draga úr þrautum þeirra. Eg fór að bera saman mitt líf, sem var þreytandi fyrir sjálfa mig og lagði ekkert til ánægju nokkurs manns, saman við líf þessara hjúkrunarkvenna. Ég fór að þrá það að ég gæti líka unnið slíkt verk, en ég fann að ég var allsendis óhæf til þess, óverðug þess og hafði ekki mátt til þess að losa mig við þær dapurlegu hugsanir, sem snerust allar um sjálfa mig og voru orðnar að föstum vana. Fáeinum vikum eftir að ég kom á spítalann í fyrsta sinn fór ég þaðan út einn morgunn og fann þá að ég gat ekki lengur afborið þetta gagnslausa ógæfulíf, sem ég lifði þá og var ráðin í því að finna einhverja leið til þess að losna við það. Ég ráfaði stefnulaust stundum saman, settist við og við niður, þegar ég fann eitthvert sæti og hugleiddi réttmæti sjálfsmorðs. Eftir því sem tíminn leið, varð mér sjálfsmorð alltaf hugleiknara, það varð veikara, sem með lífinu mælti. Að lokum varð ég sannfærð um það að það besta sem ég gæti gert, bæði fyrir sjálfa mig og þá, sem áttu við þá óhamingju að búa að vera bundnir mér skyldleikaböndum, væri það að fyrirfara mér. Ég átti ekki annað eftir en að afráða, hvernig ég ætti að gera það. Meðan ég var að velta fyrir mér ýmsum leiðum, sem ég gat farið til þess að binda enda á þetta líf, sem ég var farin að fá óbeit á og reyna að ákveða, hverja þeirra ég ætti að velja, heyrði ég viðkvæði við gamlan sálni, sem ég kannaðist við. Þá sá ég að ég var að fara framhjá kirkju. Eitthvað, sem ég virtist ekki ráða við, knúði mig til að fara þar inn. Það var fyrsta guðshúsið, sem ég hafði komið inn í eftir andlát föður míns. Sálmurinn, sem þarna var verið að syngja, var eftir- lætissálmur föður míns, ég hafði oft sungið hann fyrir hann á þeim ánægjuríku dögum, sem nú virtust svo langt að baki mér. Orðin og lagið komu við einhvern til- 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.