Morgunn - 01.12.1992, Blaðsíða 45
morgunn
Þjónusta englanna
sem undir þeirra umsjón voru og hve oft þeim tókst að
draga úr þrautum þeirra. Eg fór að bera saman mitt líf,
sem var þreytandi fyrir sjálfa mig og lagði ekkert til
ánægju nokkurs manns, saman við líf þessara
hjúkrunarkvenna. Ég fór að þrá það að ég gæti líka unnið
slíkt verk, en ég fann að ég var allsendis óhæf til þess,
óverðug þess og hafði ekki mátt til þess að losa mig við
þær dapurlegu hugsanir, sem snerust allar um sjálfa mig
og voru orðnar að föstum vana.
Fáeinum vikum eftir að ég kom á spítalann í fyrsta sinn
fór ég þaðan út einn morgunn og fann þá að ég gat ekki
lengur afborið þetta gagnslausa ógæfulíf, sem ég lifði þá
og var ráðin í því að finna einhverja leið til þess að losna
við það. Ég ráfaði stefnulaust stundum saman, settist við
og við niður, þegar ég fann eitthvert sæti og hugleiddi
réttmæti sjálfsmorðs. Eftir því sem tíminn leið, varð mér
sjálfsmorð alltaf hugleiknara, það varð veikara, sem með
lífinu mælti. Að lokum varð ég sannfærð um það að það
besta sem ég gæti gert, bæði fyrir sjálfa mig og þá, sem
áttu við þá óhamingju að búa að vera bundnir mér
skyldleikaböndum, væri það að fyrirfara mér. Ég átti ekki
annað eftir en að afráða, hvernig ég ætti að gera það.
Meðan ég var að velta fyrir mér ýmsum leiðum, sem ég
gat farið til þess að binda enda á þetta líf, sem ég var farin
að fá óbeit á og reyna að ákveða, hverja þeirra ég ætti að
velja, heyrði ég viðkvæði við gamlan sálni, sem ég
kannaðist við. Þá sá ég að ég var að fara framhjá kirkju.
Eitthvað, sem ég virtist ekki ráða við, knúði mig til að
fara þar inn. Það var fyrsta guðshúsið, sem ég hafði
komið inn í eftir andlát föður míns.
Sálmurinn, sem þarna var verið að syngja, var eftir-
lætissálmur föður míns, ég hafði oft sungið hann fyrir
hann á þeim ánægjuríku dögum, sem nú virtust svo langt
að baki mér. Orðin og lagið komu við einhvern til-
43