Morgunn - 01.12.1992, Side 31
Ingvar Björnsson:
Á ANDLEGU
FERÐALAGI
Góðir ferðafélagar. Þá höldum við áfram ferð okkar sem
hófst í síðasta hefti Morguns, það er fyrra hefti ritsins
1992.
Eins og góðum ferðamönnum sæmir þá erum við ekki
með of fastmótaöa ferðaáætlun, áætlun sem myndi þýða
það að við yröum að þjóta framhjá ýmsu merkilegu er á
okkar vegi kynni að verða og vert væri að skoða. Nei við
gefum okkur nægan tíma, skoðum fegurð þá sem við
okkur blasir og hlustum á það sem eyru okkar nema og
skýrum síðan frá því sem við heyrum og sjáum, hér á
næstu blöðum.
Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með fyrri grein minni
langar mig til að vitna í formála hennar, en þar segir m.a.
á bls. 34:
,,Að segja frá atvikum sem fyrir mig hafa komið
varðandi andleg mál, er í mínum huga gott mál. Eg tel
gott fyrir þá sem eru að feta sín fyrstu spor í þessum
málum (andlegum málum) að kynnast reynslu þeirra sem
komnir eru, þó ekki sé nema einu spori lengra en þeir, að
sjá þar að margt sem þeim finnst ekki ganga sem skyldi
or með eðlilegum hætti. Sjá að þolinmæðin og tíminn
vinna sín verk." Hér lýkur þessari tilvitnun.
Frá eigin brjósti vil ég segja það að mér hefur lengi
verið ljóst að það hafi veriö verulegur skortur á, hvað
29