Morgunn - 01.12.1992, Side 32
Á andlegu ferðalagi
MORGUNN
eigum við að segja, já námsefni fyrir byrjendur í
andlegum málum. í hinu veraldlega lífi þykir sjálfsagt að
nýnemi setjist í fyrsta bekk og hann fær þar öll þau gögn
sem honum eru talin henta, síðan tekur annar bekkur við
og þar fær hann önnur og erfiðari gögn, o.sv.frv.
I andlegum málum er hér mikil brotalöm á, mér sýnist
svo að það séu nánast engin gögn til fyrir byrjandann en
þeim mun meira fyrir þá sem lengra eru komnir og byrj-
andinn á því varla samleið með. Hvort ég er fær um að
bæta hér úr er ekki mitt að dæma um, það eigið þið
lesendur góðir að gera og það hefur hvarflað að mér
hvort það væri fráleit hugsun að þið, sem eruð að byrja,
eða hafið spurningar í huga ykkar sem þið telduð gott að
fá svör við, kæmuð þeim á framfæri við Morgunn eða
bara undirritaðan, svo að hægt væri að taka þær hér til
meðferðar.
Þessi ferð sem hér er farin er ólík venjulegum ferðum að
því leiti að það má segja að hún sé huglæg og svörin því á
þeim nótum.
Og ég sé ekki betur en hér hafi myndast góð spurning.
Hvað merkir orðið huglægt? Huglægt er allt sem við
hugsum okkur, við t.d. förum ekki hefðbundna ferð hér
heldur hugsum okkur að við séum að stíga inn í andlegan
heim.
Vegna þess að síðan ég reit fyrri grein mína um þessa
ferð hafa margir, sem ekki hafa kynnst mikið andlegum
málefnum, spurt mig hvernig standi á því að sumir sem í
návist þeirra koma virðast draga frá þeim kraft. Þetta fólk
segir gjarnan að það hafi spurt ýmsa sem þeir viti að fáist
við andleg mál um þetta. Ein kona nefndi hér til reyndan
miðil og þar, eins og hjá öðrum, hafi svörin verið: „Þú
þarft bara að loka og verja þig." En loka hverju og verja
hvað? Við því fáum við engin svör.
Þessar spurningar um „lokun og vörn" eru að mínu