Morgunn - 01.12.1992, Qupperneq 44
Þjónusta englanna
MORGUNN
III.
Eftir að ég hafði misst föður minn, settist biksvört
örvænting að sál minni. Tilfinningar mínar voru eins og
steinrunnar. Mér var jafnvel neitað um þá huggun að geta
grátið. Ég herti hjarta mitt gegn guði. Ég sagði: „Guð
mundi aldrei hafa verið svo grimmur að taka föður minn
frá mér, svo að enginn guð er til." Ég hætti að fara í kirkju
og gaf mig dapurlegustu hugsunum á vald. Tök þeirra á
mér urðu fastari við aðrar sorgir og raunir, sem að mér
steðjuðu. Eftir andlát föður míns kom það upp úr kafinu,
að maður, sem hann hafði talið vin sinn og trúað fyrir
fjármunum sínum, hafði eytt þeim og ekkert var eftir
handa börnum hans. Bróðir minn réð af að vinna fyrir
okkur báðum, fór til breskarar nýlendu og drukknaði þar.
Sú frændkona mín, sem mér þótti vænst um, andaðist.
Taugar mínar biluðu og ég lá lengi veik. Ég var sannfærð
um, að lífið hefði ekkert mér að bjóða, sem vert væri að
lifa fyrir og ég hafnaði öllum tilraunum til þess að veita
mér huggun og hughreystingu.
Hér um bil tveim árum eftir lát föður míns fékk frændi
minn, sem ég dvaldist þá hjá, mig til þess að fara með sér
að heimsækja skyldmenni okkar, sem var forstöðukona
fyrir stórum spítala. Hann gerði sér von um, að þetta
kynni að verða til þess að ég færi að gera hjúkrun mér að
atvinnu, því að hann var sannfærður um að ég mundi
aldrei fá heilsuna aftur ef ekki væri unnt að koma inn hjá
mér áhuga á neinu sem sneri hugsunum mínum frá sjálfri
mér.
Forstöðukonan gaf mér leyfi til að vera nokkurn hluta
hvers dags í sjúkrastofunum. Þá fór ég að veita starfi
húkrunarkvennanna athygli. Að taka eftir því með hve
mikilli leikni, varfærni og þolinmæði þær þjónuðu þeim,