Morgunn - 01.12.1992, Síða 46
Þjónusta englanna
MORGUNN
finningastreng, sem ég hafði haldið að ekki væri lengur
til í mér. Ég lét fallast niður í næsta sætið, tók höndunum
fyrir andlitið og grét beisklega.
Eftir nokkra stund, ég veit ekki hvað langa, varð ég þess
vör að guðsþjónustan var um garð gengin og að ég kraup
ein í kirkjunni, þar var nú skuggsýnt, aðeins fáein gasljós.
Eitthvað líkt því logni, sem oft kemur á eftir óveðri, hafði
lagst yfir stormhrakta sál mína.
Eg lyfti upp höfðinu og leit upp og nú starði ég í annað
skiptið á hina hvítklæddu mynd frelsarans, umkringda
björtu Ijósi, sem virtist stafa frá honum sjálfum. Stutta
stund starði ég, heilluð af þeirri ósegjanlega viðkvæmu
meðaumkun, sem stóð afmáluð á þessu ljómandi andliti.
„Ó, hjálpaðu mér!" hrópaði ég, „því að ég er hrædd við
að lifa og þori þó ekki að deyja."
Frelsarinn rétti út hendur sínar ástúðlega og tók til máls
með rödd, sem fólgið var í meira djúp samúðar og
viðkvæmni en fram getur komið í nokkurri mannsrödd:
„Kom þú til mín, þreytta og örvæntingarfulla sál og ég
mun hugga þig og fá þér verk að vinna fyrir mig. Far þú
nú í friði."
Sýnin hvarf mér. Það var eins og mikilli byrði væri lyft
af sál minni og ég fór út úr kirkjunni staðráðin í því að
byrja nýtt líf, líf, sem gæti orðið öðrum að einhverju
ga^ni.
Ég man ekkert, hvernig ég komst heim í húsið, sem ég
dvaldist í, en seint næstu nótt kom ég til sjálfrar mín og sá
forstöðukonuna lúta niður að mér. É.g lá þá ofan á
rúminu, alklædd. Hún varð hrædd, þegar hún sá,
hvernig ég var til reika og sótti frænda minn. Ég sagði
honum frá því, sem ég hafði séð.
„Guði sé lof!" sagði hann innilega. „Þetta verða
tímamót í lífi þínu."
44