Morgunn - 01.12.1992, Page 51
morgunn
Treystum grunninn
í því efni. Það verður nefnilega ekki bæði sleppt og
haldið, ef annar þátturinn er efldur þá fylgir hinn með.
Það er því afskaplega mikilvægt að fólk sem ætlar sér í
andlega þjálfun í þessa veru geri sér vel grein fyrir þeim
„aukaverkunum" sem slíku fylgja. Grundvallaratriði er
að það geri sér líka fulla grein fyrir því hversvegna það
hefur áhuga á að þjálfa andlega hæfileika sína. Er það til
þess að kynda undir sjálfsánægjunni? Er það til þess að
reyna að öðlast aðdáun fólks? Er það til þess að reyna að
upphefja sig yfir aðra? Ef svarið yrði jákvætt við einhverj-
um slíkum spurningum þegar viökomandi spyrði sjálfan
sig í fullkominni einlægni þá er óðara hægt að segja að
hann sé á alrangri braut. í slíkum tilfellum er oft verra af
stað fariö en heima setið, bæði og ekki síst fyrir þann sem
hóf að þjálfa sig og hina sem ef til vill eiga eftir að verða á
vegi hans í þessum málum.
Sumir kunna að hugsa sem svo að erfiðleikar séu til
þess að sigrast á þeim og þaö muni þeir gera sé slíkt
uauðsynlegt. Það má til sanns vegar færa en oft er það
hægara sagt en gert. Það er ekki fyrr en fólk stendur í
prófinu sjálfu sem raunveruleikinn knýr á. Og þá gilda
r>ú ekki alltaf fyrri skoðanir eða ætlanir. Og afskaplega
held ég að það sé misjafnt hvernig fólk fær risið undir
hinum ýmsu erfiðleikum sem að steðja.
hetta álít ég að fólk sem ætlar að vekja upp dulda
hæfileika sína ætti að hafa í huga, sem sagt að það er ekki
bara „dans á rósum" sem því fylgir. Fari svo aö fyrir
hendi reynist vera slíkir hæfileika og í þeim mæli að
nýtanlegir séu og þá takist aö „afhjúpa" ef svo má segja,
þú er það að mínu viti slík breyting, að fátt verði hið sama
°g áður hjá viðkomandi einstaklingi.
I upphafi skyldi því endirinn skoða og grunninn vanda
svo sem veröa má, því undirbúningur og frágangur hans
^un ráða afar miklu um framhaldið.
49