Morgunn - 01.12.1992, Page 53
Kolbrún Hafsteinsdóttir:
Skýrsla forseta
fyrir starfsárið 1991-1992, flutt á aðalfundi
félagsins í maímánuði 1992.
Góðir félagar.
Nú er 73. starfsári Sálarrannsóknafélags íslands að
ljúka. Starfsemin í vetur hefur verið öflug sem endranær.
Margir góðir erlendir miðlar hafa komiö til starfa. Ray
Williams frá Wales starfaði í september og apríl, hann var
með einkafundi, bæði hefðbundna og dáleiðslufundi,
einnig var hann með námskeið í notkun Tarot-spila og
annað þar sem hann kenndi notkun pýramítaorku.
Einnig hélt hann fjöldafundi og svo kallaða „spíritista-
messu."
Zena Davis, einnig frá Wales, starfaði í nóvember og
rnars. Hún hélt einkafundi, fjöldafundi og var einnig með
námskeiö þar sem hún kenndi m.a. meðferð steina og
kristalla við heilun.
Coral Polge og Bill Landis frá London störfuðu í maí.
Coral er svo kallaður „teiknimiðill." Þau voru með fjölda-
og einkafundi. Þau unnu saman á fjöldafundunum en sitt
í hvoru lagi á einkafundunum.
Islenski miðillinn Þórunn Maggý Guömundsdóttir
starfaði hjá félaginu þrjá daga í viku, einnig hélt hún
fjöldafundi.
Hjá S.R.F.Í. störfuöu sjö manns við heilun, allir útskrif-
aðir frá Christian Spiritualist Society í Wales. Þau voru:
51