Morgunblaðið - 18.02.2009, Síða 4

Morgunblaðið - 18.02.2009, Síða 4
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „VIÐ eigum að vinna að því að hér verði fjölþjóðleg svæðismiðstöð eftir- lits á hafinu undir forystu Landhelg- isgæslu Íslands. Fjármunum til öryggismála verði varið til þess frek- ar en til að reka Varnarmálastofn- un enda geta borgaralegar stofnanir tekið við verkefnum henn- ar,“ sagði Björn Bjarnason, fyrrv. dómsmálaráðherra, á málþingi sem Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg stóðu fyrir um auðlindir og hagsmunagæslu á norðurslóðum. Björn sagði Varnarmálastofnun Ís- lands vera tímaskekkju. „Með Varn- armálastofnun er verið að leggja rækt við leifar liðins tíma,“ sagði Björn. Að hans mati er það í senn sjálfstæðis- og öryggismál að standa vörð um Land- helgisgæslu Íslands og störf hennar, þótt á móti blási í opinberum fjármál- um. Sagði hann að forgangsraða ætti í hennar þágu, þegar hugað væri að varnar- og öryggishagsmunum Ís- lands. Benti hann á að með nýrri flug- vél og varðskipi til handa Gæslunni yrði hún færari en áður til að taka þátt í samstarfi af því tagi sem óhjá- kvæmilegt væri við nágrannaþjóðir Íslands á norðurslóðum og boðað væri í skýrslu Thorvalds Stolten- bergs, fyrrv. utanríkisráðherra Nor- egs, sem fjallar um aukið samstarf Norðurlanda í öryggis- og utanrík- ismálum. Erum í fremstu röð „Skýrsla Stoltenbergs fellur vel að stefnu okkar sem höfum lagt höfuð- áherslu á nauðsyn þess að treysta borgaralegt öryggi í norðurhöfum. Hún gerir Íslendingum kleift að verða virkir þátttakendur í nýju norrænu samstarfi,“ sagði Björn og benti á að Íslendingar væru í fremstu röð á þessu sviði, hefðu bæði tæki og mann- afla, og að Íslendingar gætu sinnt öll- um verkefnum, sem væru borg- aralegs eðlis. „Stoltenberg-tillögurnar eru um séum þátttakendur í umræðunni enda eru hagsmunir okkar ríkir. Við eigum að leyfa okkur að spyrja spurninga, bæði nýrra en líka á að vera leyfilegt að spyrja gamalla spurninga sem áður þóttu ekki tækar eða voru hálfgert tabú á tímum kalda stríðsins. Sú öld sem rétt er hafin kallar á nýja sýn og við þurfum að setja punkt aftan við kalda stríðið. Við eigum ekki að burðast með það lík í lestinni inn í 21. öldina. Norræn samvinna, sem mörgum hefur þótt á undanhaldi á umliðnum árum, getur vel gengið í endurnýjun lífdaga og þau gildi sem kennd eru við velferðarsamfélagið eiga brýnt erindi við þá kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi. Kynslóð sem tekur við samfélagi sem að mörgu leyti er brot- ið og með hrunið efnahagskerfi í fanginu. Markmiðið á að vera að draga úr hernaðarumsvifum hvers konar og leggja þess í stað aukna rækt við uppbyggingu innviða, frið- samlega sambúð þjóða og öryggi og velferð íbúanna,“ sagði Árni. Morgunblaðið/Golli Ný sýn Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði öldina sem rétt er hafin kalla á nýja sýn. Virkir í nýju samstarfi  Í senn sjálfstæðismál og öryggismál að standa vörð um Landhelgisgæsluna  Draga á úr hernaðarumsvifum og leggja fremur rækt við uppbyggingu innviða 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 „HVAÐ varðar umhverfisvernd stöndum við frammi fyrir nýrri og breyttri mynd. Vitað er að við komum aldrei í veg fyrir óhöpp. Við þurfum hins vegar að finna leiðir til að draga úr líkum á þeim og undirbúa og æfa við- brögð við slíkum tilvikum,“ sagði Kristján Geirsson, deildarstjóri á sviði umhverfisgæða hjá Umhverfisstofnun. Í erindi sínu ræddi hann samhæfð viðbrögð við bráðamengun sjávar með hliðsjón af fyrirsjáanlegri aukinni skipaumferð á Norður-Atlantshafi. Sagði hann í bígerð, með styrk frá Norðurlandaráði, að útbúa samhæft siglingarvákort af öllu N-Atlantshaf- inu eftir fyrirmynd þess vákorts sem Umhverfisstofnun hefur látið útbúa fyrir suðvesturströnd Íslands. „Viðbúnaður og viðbrögð við stórum meng- unaróhöppum er eitthvað sem eitt ríki gerir ekki einsamalt. Það er til sam- starf og við erum aðilar að því en við þurfum að sinna því aðeins betur og bæta búnað okkar til að vera gildandi í því samstarfi.“ Ný og breytt mynd ALLS höfðu 5,8% þeirra sem tóku þátt í könnun MMR, sem unnin var dagana 11. og 12. febrúar, misst atvinnuna vegna krepp- unnar og 12,5% svarenda sögðu starfshlutfall sitt skert. Þá óttuðust 13,9% aðspurðra að missa vinnuna og 25,3% sögðu kreppuna hafa kostað einn eða fleiri fjölskyldumeðlimi vinnuna. Sé litið til kyns, aldurs og búsetu sést að áhrif kreppunnar hafa verið meiri á atvinnu karla, þá sem yngri eru og þá sem búsettir eru á höf- uðborgarsvæðinu. Þannig hafði 7,1% karla misst atvinnuna vegna kreppunnar á móti 4,4% kvenna og 16,7% karla sögðu starfshlutfall sitt skert samanborið við 8,2% kvenna. Hlutfall þeirra sem óttast að missa vinnuna er 15,4% á höfuðborgar- svæðinu samanborið við 11,5% úti á landi. Í yngsta aldurshópnum (18-29 ára) segjast 8,6% hafa misst vinnuna samanborið við 6,1% fólks á aldr- inum 30-49 ára og 2,3% einstaklinga á aldrinum 50-67 ára. annaei@mbl.is Áhrif krepp- unnar mest á unga fólkið LAUN hækkuðu um 30% á al- mennum vinnu- markaði á ára- bilinu 2005-2008, að því er fram kemur í Launa- greiningu ParX Viðskiptaráð- gjafar IBM. Hækkuðu laun mest hjá fjármála- og tryggingafélögum á tímabilinu, eða um 39%. Þá hækkuðu laun í framleiðslu og iðn- aði um 29% og 20% í verslun og þjónustu. Frá semptember 2007 til septem- ber 2008 hækkuðu laun um tæp 11% og var hækkunin mest í sölu-, afgreiðslu- og þjónustustörfum og í iðnaðar- og tæknistörfum, eða 15%. Jón Emil Sigurgeirsson, umsjón- armaður Launagreiningar ParX, telur líklegt að fram komi tölur um launalækkun á næstunni og færa megi rök fyrir því að ný viðmið við launaákvarðanir á almennum vinnumarkaði hafi nú skapast. annaei@mbl.is 30% launa- hækkun árin 2005-2008 Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „ÉG hef heyrt í aðilum sem þessu tengjast og þá fyrst og fremst til þess að setja mig inn í nákvæmn- isatriði. Málið er fyrst og fremst á borði Seðlabanka Íslands og það verður leyst á þeim vettvangi,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um jöklabréfaeign erlendra fjárfesta í íslenskum krónum hér á landi. Samtals eru á gjalddaga jöklabréf upp á meira en 200 milljarða króna á þessu ári. Auk þess eru innstæður í bönkum í eigu erlendra fjárfesta um- talsverðar en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins nema heildareignir 400 til 500 milljörðum króna. Gylfi segir líklegt að þetta fé færi út úr hagkerfinu á skömmum tíma ef ekki væri fyrir gjaldeyrishöft, sem myndi þýða mikið gengisfall krón- unnar. Féð gæti farið snögglega „Ef ekki væri fyrir gjaldeyr- ishöftin þá gæti þetta fé farið úr landi snögglega með miklum skammtímaáhrifum, þótt ekkert sé öruggt í þeim efnum. Ég tel að það þurfi að leita leiða til þess að binda þetta fé í landinu. Ef það er gert rétt þá ætti það að verða íslensku hag- kerfi, ekki síður en erlendum eig- endum bréfa og innstæðna hér á landi, til heilla.“ Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafa nokkrar hugmyndir um hvernig hægt yrði að leysa úr stöðunni verið ræddar að und- anförnu innan stjórnkerfisins, á vett- vangi ríkisstjórnarinnar og í Seðla- bankanum. Meðal annars hefur verið rætt um að bjóða þeim sem eiga hagsmuna að gæta hér á landi að þeir yfirtaki eignir banka eða ís- lenskra lífeyrissjóða fyrir þá upphæð sem þeir eiga í íslensku hagkerfi. Gylfi segir engar beinar viðræður, þar sem „tilboðum er kastað á milli“, hafa farið fram svo hann viti til. Frá því Glitnir, Kaupþing og Landsbankinn voru yfirteknir af skilanefndum Fjármálaeftirlitsins í október hefur gengi krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum fallið mikið. Krónan veiktist töluvert allt síðasta ár en hrundi síðan eftir að bankarnir féllu. Frá þeim tíma hafa aðgerðir íslenskra stjórnvalda og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins fyrst og fremst miðast við að styrkja gengi krónunnar. Gjaldeyrishöft voru sett á til að flýta þeirri þróun og koma í veg fyrir að gengi krónunnar félli enn meira. Fyrirtæki og heimili í landinu eiga mikið undir í þeim efn- um en skuldir í erlendri mynt hér á landi nema mörg hundruð millj- örðum króna. Gengisvísitala krón- unnar stendur nú í 190 en hún var 216 í byrjun árs. Brýnt að leysa úr málum til að minnka þrýsting á krónuna Hugmyndir komið fram um að binda fé í landinu til að hindra frekara gengisfall MAÐURINN sem lést í vinnuslysi í Hafnarfirði fimmtudaginn 12. febrúar sl. hét Sigurður Þórir Hansson, til heimilis að Miðmunda- holti 1 í Ásahreppi í Rangárþingi. Sigurður heitinn var fæddur 18. maí 1949. Hann lætur eftir sig eig- inkonu, tvö uppkomin börn og fjög- ur barnabörn. Lést í vinnuslysi í Hafnarfirði Björn Bjarnason margt merkilegar og sögulegar. Segja má að þær séu að hluta til sömu ættar og utanríkis- og varnar- málastefna vinstrimanna á Norð- urlöndum allt kalda stríðið og verða að því leyti eins konar uppreisn æru fyrir þá stefnu,“ sagði Árni Þór Sig- urðsson, formaður utanríkismála- nefndar. Sagði hann næstu skref framundan eiga að vera að meta raunhæfni einstakra tillagna út frá íslenskum hagsmunum og hefja við- ræður um útfærslur, að meta kostn- að við einstaka liði og setja þá í þjóð- hagslegt samhengi, að stilla saman norræna strengi og hlusta eftir sjón- armiðum annarra ríkja og hvort al- mennt sé vilji til að þróa framkomnar tillögur áfram að hluta eða öllu leyti. „Það er brýnt að við Íslendingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.