Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009
Í fermingarblaði Morgunblaðsins er fjallað um allt
sem tengist fermingunni og fermingarundirbún-
ingnum ásamt því hvernig þessum tímamótum í lífi
fjölskyldunnar er fagnað.
Blaðið í ár verður sérlega glæsilegt og efnismikið.
Fermingarblaðið verður borið út á hvert einasta
heimili á höfuðborgarsvæðinu ásamt nágranna-
byggðum.
Meðal efnis:
• Veitingar í veisluna – heimatilbúnar eða keyptar
• Mismunandi fermingar
• Skreytingar í veisluna
• Veisluföng og tertur
• Fermingartíska, stelpur og strákar
• Fermingarförðun og hárgreiðsla
• Fermingarmyndatakan
• Fermingargjafir – hvað er vinsælast?
• Hvað breytist við þessi tímamót í lífi barnanna?
• Hvað merkir fermingin?
• Viðtöl við fermingarbörn
• Fermingarskeytin
• Ásamt fullt af spennandi fróðleiksmolum
Auglýsendur!
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00,
mánudaginn 2. mars.
fermingar
– tollir í tískunni
Fáðu þér áskrift að
Morgunblaðinu á mbl.is/askrift
kemur út föstudaginn 6. mars
Efnismikið sérblað Morgunblaðsins um
Rúnar Kristjánsson á Skaga-strönd rýndi í spjöld sög-
unnar:
Margir á 18. öld voru menn
með afburða vit og getu.
Þá börðust Prússar við pilsin þrenn,
Pompadour, Maju og Betu!
Þá fetuðu menn í frelsisátt
og fjarlægðust konungshylli.
Þá Voltaire og Rousseau risu hátt
og rituðu margt af snilli.
Þá gerðist margt sem varð grunnur að
því gengi sem birtist síðar.
Þó fáir vilji nú virða það
á villuför seinni tíðar.
En frelsisræturnar finnast þar
í fortíðar hljóðu safni.
Og benda okkur enn á sigursvar
í sannleikans góða nafni.
Jóna Guðmundsdóttir orti á
limrublogginu eftir yfirlýsingu
Jóns Baldvins Hannibalssonar um
helgina:
Hljóður og skelfdur varð skarinn
er skundaði Jón Baldvin þar inn.
Telja þó gestir
trúlega flestir
hans tími sé kominn – og farinn.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af frelsi og fortíðinni
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Garður | „Ég var bara að leika mér á
netinu og rakst á samskipti rækt-
enda á dýraspjallinu. Þannig kvikn-
aði áhuginn,“ sagði Auður Franz-
dóttir, 11 ára hamstraræktandi í
Garði, um upphaf áhugans. Hún hef-
ur nú ræktað Syrian-hamstra í
kringum eitt ár. Auður býr á miklu
dýraheimili. Heimilishundurinn Fífa
af ungversku Vizslu-kyni er þar í
heiðurssæti en nýlega bættist við
kötturinn Ketill sem Auður tók að
sér, en hann hafði þá verið heim-
ilislaus um nokkurt skeið. Eftir páfa-
gaukarækt sem Auður hóf ung að ár-
um er einn páfagaukur eftir en í
herbergi heimasætunnar eru sex
hamstrar. Þegar blaðamaður fór í
heimsókn til Auðar var von á
hömstrum úr nýju goti. Markmiðið
með þessu goti er alveg skýrt, Auður
vill fá fleiri blonde hamstra.
„Blonde-liturinn er sjaldgæfur og fá-
ir til á Íslandi. Núna blandaði ég
saman Black banded-mömmu og
blonde pabba og vonast til að fá fleiri
blonde.“
Auður sagði að allt frá einum upp í
12 unga gætu komið úr hverju goti,
en talan 7 væri algengust. Það var
auðheyrt á Auði að pabbinn, Santo,
væri í miklu uppáhaldi hjá henni.
„Hann er svo athugull og forvitinn
og líka svo rólegur.“
Ákveðnar reglur gilda við rækt-
unina sem ræktendur verða að fara
eftir, eins og aldur mömmunnar og
fyrri got og þess vegna þarf regluleg
endurnýjun að eiga sér stað. Auk
þess er líftími hamstranna ekki lang-
ur, 1- 4 ár. Nú hefur Auður hug á því
að flytja inn hamstra til að fá nýja liti
í flóruna.
Góð þjálfun í við-
skiptum og samskiptum
Tegundin sem Auður ræktar heit-
ir Syrian-hamstrar og þeir koma
upphaflega frá Sýrlandi. Þeir
flokkast í tvær tegundir,
loðhamstra og gull-
hamstra, sem eru
snögghærðir. Auður
segist blanda þeim
saman í ræktuninni og
fá þá ýmist loðhamstra
eða gullhamstra. Auður
tekur ekki undir að þetta
sé mikil vinna, enda væri
hún ekki að þessu nema
sér fyndist þetta skemmti-
legt.
Hún hefur lengi verið mik-
ill dýravinur og þó að stund-
um fylgi svona mörgum
hömstrum lykt sér móðir Auð-
ar, Hildur Vilhelmsdóttir, margt
jákvætt við þennan áhuga Auðar.
„Hún þjálfast bæði í viðskiptum
og mannlegum samskiptum,“ en
ræktendahópurinn, sem í eru á
bilinu 6 til 10 manns, heldur sam-
bandi bæði á netinu og með því að
hittast reglulega á svokölluðum
„nagdýrahittingi“.
Stundum eru þau að selja hvert
öðru ákveðið litaafbrigði en við-
skiptin ganga líka út á að finna kaup-
endur sem vilja eignast hamstra.
„Ég þarf að eiga mörg búr og mat,
ílát og leikföng handa öllum,“ sagði
Auður og nefndi jafnframt að
hamstrar væri í eðli sínu einfarar og
vildu því helst vera einir í búri.
„Sumir geta þó verið saman, eins og
þessir tveir,“ sagði Auður og benti á
Tristan og Dodda.
-Hvað getur gerst ef maður hefur
tvo saman?
„Þeir geta meitt hvor annan með
því að bíta og slást.“ Auður sagði líka
mjög mikilvægt að fylgjast vel með
mömmunum eftir got því ekki síður
þar getur orðið óhapp. „Það mega
ekki vera nein læti í húsinu eftir got.
Mamman getur stressast og það
kemur fyrir að hún éti ungana sína.
Ég lenti í því einu sinni og mamman
var búin að drepa fimm unga. “
Auður sýnir blaðamanni Skýja-
Krókus, Black banded-hamstur sem
slapp úr þessum hremmingum, en
Auður bjargaði honum undan móður
sinni og mataði sjálf. Hann er mun
minni en hamstrar almennt. Auður
tekur því ekki vel í þá umleitan
blaðamanns að fá að koma í heim-
sókn eftir gotið sem von var á innan
fárra daga frá viðtali og taka myndir
af nýjum Skýja-hömstrum. Skýja er
ræktunarnafn Auðar. Auður er dug-
leg að kynna hamstararæktunina en
í haust tók hún þátt í sýningu sem
haldin var í Garðinum auk þess sem
hún heldur úti vefsíðunni
www.skyja.bloggar.is.
Hamstrarækt með
ákveðin markmið
Ræktun ekki mikil vinna fyrir mikinn dýravin
Dýraáhugi frá unga aldri
Auður Franzdóttir fékk
áhuga á ræktun
hamstra eftir að
detta inn á
dýraspjall á
netinu. Hér
er hún með
uppáhaldið
sitt Santo.
Bjargað Auður
bjargaði Skýja
Krókus úr gini
móður sinnar.
Hann er mun
minni en aðrir
hamstrar úr
ræktun Auðar.
Pása Tristan fær sér gott í gogginn
eftir spretthlaup í hjólinu.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
ÚTLITIÐ er ekki fullkomnað fyrr
en rétti fylgihluturinn, oft hand-
taska, er fundinn. Á tískuvikunni í
New York var Carlos Miele meðal
þeirra sem sýndu og voru hand-
töskur hans áberandi.
Reuters
Fínir fylgihlutir