Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðinu hefur borist mikill fjöldi greina og pistla frá lesendum um ástandið í efnahagsmálum landsins. Margir höfundar lýsa áhyggjum sínum af þróun mála og margir gera tillögur um leiðir út úr efnahagsvanda þjóð- arinnar. Morgunblaðið leggur áherslu á að gera þessum umræðum góð skil í blaðinu á næstunni. Skoðanir fólksins Ef hins vegar fólk hyggst eiga núverandi húsnæði áfram og sér fram á að ráða við af- borganirnar þrátt fyrir mikla hækk- un þeirra, er trúlega hagstæðara að halda í erlenda lánið og halda áfram að greiða niður höfuðstól- inn, þótt ótrúlegt kunni að virðast nú um stundir. ’ FJÖLMIÐLAEIGN á Íslandi er að miklu leyti í höndum þeirra sem taldir eru eiga að- ild að þeim stórfelldu misgjörðum og ólög- mæta atferli er leiddi til efnahagshrunsins. Ef kosningar eiga að hafa einhverja þýðingu verður að tryggja að almenningur fái tím- anlega vitneskju um:  Hvað vissi Fjármálaeftirlitið og aðrir eftirlitsaðilar, og hvenær?  Gjafir (í hvaða mynd sem er).  Fjölskyldutengsl milli embættis- og stjórnmálamanna, bankanna og hlut- aðeigandi fyrirtækja.  Öll grunsamleg lán, úttektir, og milli- færslur í bönkunum síðustu vikurnar fyrir hrunið.  Hvers vegna Landsbankinn lét ekki breyta IceSave reikningunum í Eng- landi í breskt dótturfyrirtæki, eins og breska ríkisstjórnin hafi farið fram á.  Hvort eignir bankans voru seldar á sanngjörnu verði, og ef ekki, hver ákvað að salan gengi fyrir sig. Hvorki ríkisstjórnin né bankarnir hafa tek- ið markverð skref til að rannsaka ofangreind atriði, eða ef það hefur verið gert hefur tekist að halda upplýsingunum vel földum frá al- menningi. Dómsmálaráðherra skipaði fyrr í mán- uðinum sýslumanninn á Akranesi sérstakan saksóknara til að rannsaka mál sem án efa er flókið alþjóðlegt fjármálasamsæri (hér er ekki verið að halla á sýslumanninn, en ætla má að í málið þurfi her sérfræðinga, innlendra og bankanna?… FME er vanhæft í því verk- efni.“ Nema einhvern hugrökk sál – okkar eigin „Deep Throat“ – gefi sig fram, verða íslenskir kjósendur að gera ráð fyrir að allir kjörnir fulltrúar beggja stjórnarflokkanna hafi beint eða óbeint tekið þátt í þeim atburðum sem leiddu til hrunsins. Fulltrúar stjórnarandstöð- unnar ættu að þurfa að útskýra hvers vegna þeir sjálfir rannsökuðu ekki bankakerfið þrátt fyrir margítrekaðar viðvaranir inn- lendra og erlendra sérfræðinga undanfarin ár. Enginn sagði að lýðræði væri auðvelt, en við sennilega ímynduðum okkur aldrei að það gæti verið svona erfitt. Okkar eina von nú eru friðsæl umskipti frá spilltri auðvaldsstjórn til þess ábyrga, frjálsa lýðræðis sem við höfðum talið okkur trú um að við byggjum við. Þó lík- urnar virðist ekki hagstæðar, veita friðsamleg mótmæli síðustu vikna von um að Íslendingar muni taka landið aftur frá þessari smáklíku mikilmennskubrjálæðinga og að samfélags- og réttlætiskennd þjóðarinnar muni að lokum vinna bug á græðginni sem svo lengi hefur einkennt stjórnmál þessa lands. * Dr. Juris J.Henry Lee, Sr. Legal Editor, WestPu- blishing. taka ábyrgð á? Mun hann skýra frá allri vitn- eskju sem hann býr yfir eða var afsögn hans bara pólitískt bragð til að búa í haginn fyrir komandi kosningar? Það er jákvætt að stjórnin skuli vera fallin, en miklu meira þarf til. Það er til háborinnar skammar að ekki skuli vera búið að hreinsa út úr SÍ, FME og bönkunum. Núverandi eft- irlitsaðilar eru sama fólkið og það sem lagði blessun sína yfir loftkastalagerðina og Davíð og fjárhættufíklarnir sem lögðu efnahag og orðstír þjóðarinnar í rúst með glórulausa græðgi að leiðarljósi sitja sem fastast. Í alvöru lýðræðisríki væru þessir visku- brunnar bankanna skjálfandi á beinunum fyr- ir framan ríkissaksóknara, sem sennilega gæfi þeim loforð um langt frí við að skræla kartöflur. Á Íslandi hafa þeir haldið þeir vinnunni, vænum launagreiðslum og volgum valdastólum með óheftum áhrifum og aðgangi að sjóðum landsmanna. Það er vart hægt að hugsa sér ákjósanlegra umhverfi fyrir áfram- haldandi skuldasúpusull, með áherslu á svín- feita sérrétti fyrir útvalda og eiturbras fyrir íslenskan almenning. Þessi stórhreingerning er algjört forgangs- verkefni og hefði átt að fara fram strax eftir hrunið eins og Egill Helgason, umsjón- armaður Silfursins, segir á eyjan.is 24. jan.sl. Hann bendir einnig á: „Mikilvægt er að hafa betra eftirlit með störfum skilanefnda bank- anna... sem starfa í umboði FME. Þannig er rekstur gömlu bankanna á ábyrgð FME. Hver hefur þá eftirlit með rekstri gömlu erlendra). Framlög til efnahagsbrotadeildar lög- reglunnar voru skorin nið- ur á síðustu fjárlögum. Lög um bankaleynd í Lúx- emborg eru álitin koma í veg fyrir að skilanefndir bankanna fái aðgang að upplýsingum sem varpað gætu ljósi á ólögmæta pen- ingaflutninga, jafnvel þó bankarnir hafi verið teknir yfir af ríkinu, sem nú á og rekur þá! Þetta er auðvitað fyrirsláttur; þegar rík- isstjórnin tók við bankanum, tók hún við hlut- verki bankastjórnenda, og hefur rétt, sem eigandi og rekstraraðili bankans til að rann- saka alla reikninga viðskiptavina hans og til að rannsaka hvers konar athæfi, sem grunur leikur á að gæti verið ólögmætt, tengt fyrr- verandi eða núverandi starfsfólki bankans.* Sérhver flokkur sem býður sig fram til kosninga verður einnig að greina frá í smáat- riðum til hvaða aðgerða hann hyggst grípa til að létta undir með þjóðinni, hvernig afbrot þau sem leiddu til hrunsins verði rannsökuð og sótt til saka fyrir þau og hvaða skref verði tekin til að tryggja sjálfstæði stjórnmála- manna og eftirlitsaðila í framtíðinni. Ummæli Björgvins G. Sigurðssonar fv. fjármálaráðherra í kjölfar uppsagnar hans um að „mun fleiri beri ábyrgð“ á íslenska efnahagshruninu kalla á frekari útskýringar. Hyggst Björgvin skýra frá hverjir þessir að- ilar eru og hverju nákvæmlega er Björgvin að Stórhreingerning fyrir kosningar Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur, fv. ritstjóri Gestgjafans og fréttamaður á Stöð 2 og er dálkahöfundur fyrir vefmiðilinn Huffington Post, þar sem þessi grein birtist fyrst á ensku. AÐ UNDANFÖRNU hafa borist fréttir af fyrirætlunum stjórnvalda um að létta undir með þeim sem skulda síhækkandi húsnæðislán. Sum einkennast þessi úrræði af frestun á vandanum, að því er virð- ist í von um betri tíð innan skamms, og má þar nefna frystingu erlendra lána sem frestar greiðslu- vanda í fáeina mánuði. Algengir vextir á erlendum lánum eru á bilinu 6-7% með álagi. Algengir vextir á lánum í íslenskum krónum eru einnig um 6-7%, þó aðeins lægri hjá Íbúðalánasjóði, en svo bætist verðtryggingin við. Miðað við 18% verðbólgu eins og er í dag eru því vextirnir í raun um 24-25%. Jafnvel þó að verðbólgan fari lækkandi á þessu ári eins og spár gera ráð fyrir, er augljóst að lán í íslenskum krónum munu bera miklu hærri vexti en lán í erlendri mynt, nema verð- bólga verði svo gott sem engin. Hvað kostar að taka lán í íslenskum krónum? Tökum dæmi af láni upp á 20 milljónir til 40 ára. Ef verðbólgan yrði 2,5% eins og markmið Seðlabank- ans hefur verið að undanförnu, yrði heildargreiðslan rúmar 94 milljónir. Ef við gerum ráð fyrir hóflegri verðbólgu á lánstímanum upp á 5% verður heildar- greiðsla að lokum rúm 171 milljón. Miðað við 10% verðbólgu á lánstímanum yrði heildargreiðslan um 650 milljónir. Og ef verðbólga myndi áfram verða á þeim nótum sem hún er nú, þ.e. um 18%, yrði heild- argreiðslan um 2,1 milljarður! Þegar horft er á þessar háu tölur þarf þó að minna á það að ef við erum hæfilega bjartsýn munu laun vonandi fylgja verðbólgunni þannig að kaupmáttur haldist og jafnvel gott betur til lengri tíma litið þó að svo sé ekki þessa dagana. Hvað kostar að taka lán í erlendri mynt? Almennt býðst húsnæðiskaupendum ekki lengur að taka lán í erlendri mynt, en ef við tökum dæmi af láni upp á 20 milljónir í erlendri myntkörfu þar sem vextir eru 6,5% og lán tekið til 40 ára, yrði heildar- greiðsla um 45-50 milljónir. Það er allt og sumt. Það er um helmingi lægra en greiðsla af íslensku láni þar sem miðað er við mjög lága verðbólgu eða 2,5%. Til að lán í íslenskum krónum verði álíka ódýrt þyrfti verðbólga að vera engin. Hins vegar hefur gengisfall krónunnar að undanförnu valdið því að höfuðstóll er- lendra lána hefur hækkað gríðarlega í krónum talið eða a.m.k. tvöfalt og afborganir að sama skapi. En það er þó alltaf von um að höfuðstóllinn lækki aftur ef krónan styrkist að nýju. Íslensku lánin lækka aft- ur á móti ekki nema um verðhjöðnun verði að ræða, sem alltaf yrði í miklu minni mæli. Einnig ber að hafa í huga að verðbólga er alltaf hinu erlenda láni í hag í samanburði við krónulán, þar sem erlenda lánið er ekki verðtryggt. Er hagstætt að breyta erlenda láninu í íslenskt? Komi til þess að lántakendum erlendra lána verði boðið að breyta þeim í lán í íslenskum krónum miðað við lægra gengi en nú er með yfirtöku Íbúðalánasjóðs á þeim er að mörgu að huga. Ég geri ráð fyrir því að breyting þessi ef af verður yrði ekki þvinguð heldur gefist lántakendum kostur á að velja hvort þeir þiggi hana. Fyrir þann sem kominn er í mikil greiðsluvandræði sem viðkomandi sér ekki út úr á næstu misserum er eflaust besti kosturinn að þiggja slíka breytingu, þar sem það lækkar bæði höfuðstól og greiðslubyrði til skamms tíma litið. Í því sambandi má segja að það sé dýrt að vera fátækur. Eins ef ætlunin er að reyna að selja húseign á næstunni er skynsamlegt að breyta yfir í íslenskt lán til þess að auka eigið fé í húseign- inni fyrir söluna. Ef hins vegar fólk hyggst eiga núverandi húsnæði áfram og sér fram á að ráða við afborganirnar þrátt fyrir mikla hækkun þeirra, er trúlega hagstæðara að halda í erlenda lánið og halda áfram að greiða niður höfuðstólinn, þótt ótrúlegt kunni að virðast nú um stundir. Það mun að líkindum skila sér margfalt til baka til langs tíma litið. Gæta þarf jafnræðis Alls ekki er einsýnt hvernig ætti að standa að breytingu á erlendum lánum í íslensk. Á að miða við lánsfjárhæð í íslenskum krónum þegar lán var tekið, á að bæta við verðbótum til þess tíma þegar láninu verður breytt, hvað um höfuðstólinn sem fólk hefur greitt niður í mismiklum mæli m.a. eftir lánstíma, þrátt fyrir að hann hafi hækkað í íslenskum krónum talið? Af hverju eiga þeir sem tóku íslenskt lán ekki líka að fá aðstoð og hvernig verður hún sambærileg? Stjórnvöld ættu að huga að því að koma til móts við skuldara íbúðalána hvort sem er í íslenskri eða erlendri mynt vegna þess áfalls sem yfir þá hefur dunið, með jafnræði í huga. Það verður sennilega helst gert með almennum úrræðum eins og greiðslu vaxtabóta úr ríkissjóði, frekar en með breytingum á lánum þar sem erfitt verður að gæta jafnræðis milli lántakenda eftir því hvort þeir tóku íslenskt lán eða erlent. Vonandi tekst vel til. Breyta erlenda láninu í íslenskt? – helst ekki Rúrik Vatnarsson, lögfræðingur. ÞÁ ER búið að mynda nýja rík- isstjórn undir for- ystu Jóhönnu Sig- urðardóttur. Það fer vel á því að hún skuli vera þar í forystu. Líklega sú eina sem var fær um það við ríkjandi aðstæður. Í hugum fólks fer saman nafn Jóhönnu Sigurðardóttur og helstu baráttumál jafnaðarmanna og velferðarsinna. Svo reynir á hvort burðarbitarnir tveir haldi þegar á reynir. Til þess að svo megi verða þurfa þeir að færast nær hvor öðrum, vinna saman, bera sömu byrði. Þá sést hvers virði í raun þau eru helstu baráttumál jafnaðarmanna og vel- ferðarsinna. Þó ekki væri nema fyrir hina herskáu heiðingja sem sem finn- ast í hópi stuðningsmanna þessarar nýju stjórnar er rétt að biðja Guð að blessa hana. Og þá að öðru. Í þeim glefsum úr málefnasamningi nýrrar stjórnar sem höfundur þessara orða hefur heyrt var minnst á stjórnlaga- þing og lýðræði. Í umrótinu sem ein- kennt hefur íslenskt samfélag síðan í haust hefur lýðræðið verið mönnum venju fremur hugleikið. Leiðin fram í ljósið er vörðuð lýðræði og jöfnuði, – annars verður sú leið ekki farin. Ef við Íslendingar færum nú í alvöru að ræða lýðræði langar mig að leggja í púkkið. Það lýðræði sem við búum við í dag lýtur margskonar íþyngj- andi formreglum. Sem dæmi má nefna það þegar vald hvers og eins er framselt til fulltrúa, útfærsla þing- ræðis og lög og reglur um kosningar, kjörgengi og kosningarétt. Ef fært er ögn í stílinn til að auka skýrleika myndarinnar má segja að á Íslandi ríki stjórnskipan þar sem lýðurinn ræður eina sekúndu fjórða hvert ár. Þó að fulltrúalýðræðið og þingræðið hafi verið merkilegir áfangar í lýð- ræðisþróun eru þau ekki lýðræðið sjálft. Lýðræðið er, einsog nýlega hefur verið bent á, nær því að vera hugsunarháttur en fyrirkomulag og löngu tímabært að endurskoða hinar íþyngjandi formreglur. Leyfist mér í lokin að nefna eitt sérstaklega. Á Ís- landi hefur u.þ.b. fimmtungur þjóð- arinnar ekki kosningarétt. Þessi kúg- aði minnihlutahópur er svo nálægt okkur að við sjáum hann ekki og svo án málsvara að við heyrum ekki í honum. Um sumt minnir þessi hópur á stéttleysingjana indversku. Hér er átt við íslensk börn og unglinga. Merkilegasta plagg úr sögu seinni tíma stjórnmála á Vesturlöndum er sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna frá 1776. Þar er með eftirminnilegum hætti dregið fram það sem máli skiptir í baráttunni fyrir réttindum fólks. Þar segir m.a. að allir menn séu fæddir jafnir og þeir fái við það að fæðast réttindi sem ekki er hægt að taka frá þeim. Tímamótin í lífi fólks, önnur af tvennum, verða þegar það fæðist. Þá ætti það að fá kosninga- rétt. Um leið og barn þekkir mann- eskju og getur nefnt hana getur það kosið. Það eru nokkurn veginn þær vitsmunakröfur sem gerðar eru. Fram að þeim tíma ættu þeir sem ala önn fyrir barninu, – fæða það og klæða, að fara með atkvæði þess í kosningum. Það eykur líkurnar á því að til verði Nýtt Ísland ef raddir hinna ungu og óspilltu fá að heyrast og á þeim verði tekið mark. Um lýðræði á degi Katrínar og Jóhönnu Björn Vigfússon mennta- skólakennari á Akureyri. smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.