Morgunblaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 47
Menning 47 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009 LAGERHREINSUN 90% AFSLÁTT URALLT AÐ CINTAMANI FLÍSPEYSUR FRÁ 3.900.- CASALL BOLIR OG BUXUR FRÁ 1.990.- TONY HAWK OG O’NEILL BOLIR FRÁ 990.- Opið: 10-18 mán – fös. 11-14 laugard. Austurhrauni 3 210 Garðabæ Re yk ja ne sb ra ut ka pl ak ri ki JENNIFER Aniston ætlar að mæta með kærast- ann sinn, John Mayer, upp á arminn á Ósk- arsverðlaunahátíðina á sunnudag. Aniston og Mayer láta ekki oft sjá sig saman á opinberum vettvangi svo nú munu ljósmyndarar fá gullið tækifæri til að mynda turtildúfurnar á rauða dreglinum. Í síðustu viku fagnaði Aniston fertugsafmæli sínu með stórveislu, kósí kvöld- verði með kærastanum og nánustu vinum og svo fjölskylduboði á heimili sínu í Beverly Hills. Svo flaug parið til Bahamaeyja í tilefni Valentínus- ardagsins og verður Óskarsverðlaunahátíðin lokapunkturinn á þétt skipaðri samkvæmisviku hjá þeim. Mayer getur þó lítið slakað á eftir það. „Ég verð að standa við samning um að klára næstu plötu svo strax á mánudagsmorgun mun ég hverfa inn í stúdíó um óákveðinn tíma,“ segir hann. Turtildúfur til sýnis Reuters Hamingjusöm Jennifer Aniston hefur ástæðu til að brosa. ÞEGAR Mickey Rourke tók við Golden Globe-verðlaunum fyrir bestan leik í kvikmyndinni The Wrestler nefndi hann hundana sína sérstaklega í þakkaræðunni. „Ég vil þakka öllum hundunum mínum, bæði þeim sem eru hér núna og þeim sem eru horfnir yfir móðuna miklu. Þeir eru mér kærari en nokkuð annað í heiminum.“ Nú er Loki, 17 ára chihuahua-tíkin hans, horfin á vit feðra sinna en hún drapst í fanginu á eiganda sínum. „Ég sakna Loki sárt en hún er enn með mér í anda. Mér finnst það blessun að hún fékk hægt andlát í örmum mínum,“ sagði leikarinn skrautlegi. Harðnagli syrgir hund Reuters Hundavinur Töffarinn Mickey Rourke kemur fólki sífellt á óvart. AÐÞRENGDA eiginkonan Nicol- lette Sheridan vill endilega finna þann eina rétta, en setur það sem skilyrði að hann komi vel fram við sig. „Ég er stöðugt á höttunum á eftir manni en einungis sannir prinsar koma til greina.“ Leik- konan segist ekkert líkjast persónu sinni í þáttunum, Edie Britt, og vill alls ekki að karlmenn líti á hana sömu augum og Edie. Sést hefur til Nicolette í fylgd ýmissa manna eft- ir að trúlofun hennar og Michael Bolton lauk, og nú síðast mættu hún og austurríski viðskiptajöf- urinn Richard Lugner saman á hinn árlega dansleik Vínaróper- unnar. Reuters Glæsileg Nicollette Sheridan. Á höttun- um eftir manni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.