Morgunblaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009 ✝ Sigurbjörg Guð-mundsdóttir fæddist á Búðum á Fáskrúðsfirði 28. nóv- ember 1923. Hún lést á dvalarheimilinu Grund 12. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðmundur Jónsson frá Gestsstöðum á Fá- skrúðsfirði, f. 28.1. 1881, d. 28.1. 1951, og Þuríður Kristín Indr- iðadóttir frá Vatt- arnesi, f. 14.2. 1884, d. 10.5. 1949. Systkini Sigurbjargar eru: 1) Borgþór, f. 1907, dó ungur, 2) Borgþóra, f. 1909, d. 1978, 3) Jón Björgvin, f. 1911, dó ungur. 4) Elín, f. 1916, d. 2002, 5) Jóna Björg, f. 1919, d. 2002, 6) Garðar, f. 1921, d. 1974, og 7) Þorgils, f. 1926, d. 1962. Hinn 1. desember 1946 giftist Sig- urbjörg Gunnþóri Guðjónssyni, f. og fimm barnabarnabörn. 6) Rut, f. 19.10. 1958, gift Eiði Sveinssyni, þau eiga þrjú börn, Söndru, Rafn og Kristínu, d. 2006 og 3 barna- barnabörn. 7) Rakel, f. 19.10. 1952, gift Ævari Agnarssyni, þau eiga þrjú börn, Írisi Björgu, Rakel Ingu og Jóhönnu Maríu og tvö barna- barnabörn. 8) Þorgils, f. 16.10. 1963, kvæntur Helgu Steinunni Hauksdóttir, þau eiga tvö börn, Tómas Þór og Steinar Darra. 9) Rebekka, f. 31.7. 1965, dætur henn- ar Sif og Karen Rut. Sigurbjörg gekk í barnaskóla Búðahrepps. Hún gegndi ýmsum störfum um ævina, var ráðskona og lengst af gegndi hún fisk- vinnslustörfum. Sigurbjörg og Gunnþór bjuggu lengst af á Fá- skrúðsfirði. Þau hófu búskap sinn í Sætúni, uppeldisheimili Sig- urbjargar, svo fluttu þau í Bjarkar- lund sem Gunnþór byggði, síðar í Breiðholt sem hann einnig byggði. Árið 1995 fluttu þau hjónin til Reykjavíkur. Síðustu þrjú árin bjó Sigurbjörg á dvalarheimilinu Grund þar sem hún naut sín vel til hinstu stundar. Útför Sigurbjargar fer fram frá Seljakirkju í dag kl.13. 17.2. 1924, d. 1.2. 2001. Börn þeirra eru: 1) Hilmar, f. 17.10. 1943, d. 24.4. 1995, maki Þórunn Ólafsdóttir, þau eiga fjögur börn, Ólaf, d. 1995, Sigurbjörgu, Lindu og Bryndísi og ellefu barna- barnabörn. 2) Kristín, f. 6.8. 1946, gift Sig- urgeiri Þór Sig- urgeirssyni, þau eiga tvö börn, Gunnþór og Ágústu Ingu og fjög- ur barnabarnabörn. 3) Guðmundur, f. 22.9. 1949. 4) Guðjón, f. 23.5. 1951, kvæntur Helenu Medvedeva, hann á fjögur börn, Evu Hlín, Gunnþór, Jón og Ríkharð af fyrra hjónabandi og þrjú barna- barnabörn. 5) Eygló, f. 3.6. 1952, hún á fjögur börn, Vigni Þór, Gunn- þór Ægi, Ásdísi Rán og Hrefnu Sif Móðir mín var alveg einstök kona og vil ég þakka henni fyrir vel unnin störf með þessum fátæku orðum. Það var ekki auðvelt á þessum ár- um að fæða og klæða níu börn en fyr- ir móður mína virtist þetta barnaleik- ur einn. Faðir minn sálugi var endalaust á sjó til að draga björg í bú og kom það í hlut hennar að sjá um heimili og börn. Með hennar stjórn, elju, dugn- aði og útsjónarsemi reyndist þetta vera barnaleikur einn. Þetta hefði enginn getað nema móðir mín, hún var alveg einstök kona. Mínar bernskuminningar um hana eru geymdar í hugskoti mínu og hef ég verið að rifja þær upp í huga mér síðustu daga. Oft var mikið fjör við eldhúsborðið hjá móður minni og hennar bestu vin- ir voru tíðir gestir þar og var mikið spjallað og hlegið. Man ég eftir mörg- um þannig stundum. Ég var ekki há í loftinu þegar ég man eftir Helgu í Rúst, Nínu á Sólbakka, Kalla skæ, Jónasi langa, Gæja frænda og fleir- um sem komu flesta daga heim í Bjarkalund að spjalla og var mikið gasprað og hlegið. Hún hafði alltaf nógan tíma, en samt var alltaf bakað, skúrað, eldað, þveginn þvottur og fleira. Í dag skilur maður ekki hvernig allt þetta var hægt. Enginn gat þetta nema hún móðir mín. Hún var drottning síns tíma og fór enginn í hennar fót- spor. Núna er hún komin í arma föður míns og veit ég að þar voru miklir fagnaðarfundir. Elsku mamma, hvíl þú í friði. Eygló Gunnþórsdóttir. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Hvíldu í friði, elsku mamma. Þín dóttir, Rebekka. Minningarnar líða gegnum hugann þegar þú kveður, elsku tengda- mamma. Frá því við kynntumst fyrst hefur vinátta okkar í milli verið ein- læg og samverustundirnar óteljandi. Heimilislífið í Breiðholti þar sem stórfjölskyldan átti sér samkomuhús á heimili ykkar Gunnþórs og þú stjórnaðir með röggsemi á þeim ár- um sem við Rut fórum að skjóta okk- ur saman og þar til við fluttum saman á Seljabraut. Alltaf líf og fjör, fullt hús af gestum, mikið spjallað og hleg- ið. Það var einhvern vegin eins og fjölskyldan sogaðist saman að kjarn- anum og þar var þinn vettvangur í eldhúsinu með tuskuna á eldhús- bekknum, plastið orðið gegnum slitið af nuddi þar sem þú tókst ósjálfrátt eina stroku í viðbót á meðan samræð- ur héldu áfram yfir kaffibollanum. Jóladags fjölskylduboðin og gamlárs- kvöldin alltaf sama fjörið. Eftir að við fluttum saman á Selja- brautina á ævikvöldi ykkar Gunnþórs urðu tengslin okkar sterkust. Alltaf gott að kíkja inn til tengdó eftir vinnu í smáspjall og kaffisopa, setjast í sóf- ann og hafa það notalegt. Gott að hafa ömmu í húsinu sem hún Kristín okkar gat leitað til eftir skóla þegar mamma og pabbi voru ekki heima, ég vona að þið séuð saman núna hvar sem það er og þú skilar kveðju frá pabba og mömmu. Á Grund leið þér vel og þegar við litum inn var greinilegt hvert hug- urinn leitaði – það var eins og þú vær- ir komin austur aftur: „Hvernig er veðrið? Eru þeir að róa?“ var spurt svona eins og af gömlum vana. Takk fyrir árin okkar saman og all- ar minningarnar. Ykkur systkinum, tengdafólki, barnabörnum og barna- barnabörnum votta ég samúð mína. Eiður Sveinsson. Nú er elsku Sibba amma látin. Þó að hún væri komin á háan aldur kom fréttin eins óvænt og þruma úr heið- skíru lofti. Þar sem ég bý í Danmörku hef ég ekki hitt hana ömmu svo oft undanfarin ár, en það er ósjaldan sem mér verður hugsað til hennar og þá einna helst hversu dugleg og æðrulaus hún var. Hún og Gunnþór afi eignuðust 9 börn, og var hún að mestu ein í upp- eldinu þar sem afi var alltaf á sjónum. Sjálf var hún útivinnandi. Hún var mjög félagslynd og átti margar góðar vinkonur sem tala um hversu glettin og skemmtileg kona hún var, hrein og bein, beinskeytt og aldrei neitt kvart og kvein. Það er ljúft og gott að heyra hvað hún skilur mikið eftir sig í hugum þeirra sem hana þekktu, en minningar mínar eru samt þær sem ylja mér mest af öllu. Ég var mikið hjá ömmu og afa sem barn á Fáskrúðsfirði. Þar var yfir- leitt fullt hús af fólki og mikið líf og fjör. Oft lenti það á mér að skottast niður í Kaupfélag að kaupa eitthvað smávegis inn, og rembdist ég við að fá ömmu til að skrifa „venjulega stafi“ svo ég gæti lesið miðann, með misgóðum árangri. Ekki var samt húsið alltaf fullt af fólki, en þá tók hún heimilisköttinn á eintal. Svona aðeins að skammast í honum yfir einu og öðru. Eða það héldum við þar til hann dó, en þá sáum við að hún var einfald- lega bara að spjalla við sjálfa sig. Í minningunni settist amma afar sjaldan niður, var alltaf eitthvað að snurfusast. Eldhústuskan var ómeð- vitað orðinn óaðskiljanlegur hluti af henni, og sveiflaði hún henni fimlega um skápa og bekki eldhússins oft á dag allan ársins hring. Og ég man þegar að hún í fyrsta sinn fékk hús- hjálp, þá þreif hún íbúðina hátt og lágt áður en hjálpin kom, svo að kon- an sæi nú ekki allan skítinn hjá henni. Þegar ég átti Garðar Egil og amma kom á Keflavíkurspítalann til að halda honum undir skírn, spurði ég hana hvort það hefði ekki verið erfitt að fæða tvíbura. En hún hélt nú ekki „Neih, það var ekki mikið mál, fyrst kom eitt barn, og svo kom hitt barn- ið“. Já, minningarnar eru margar, og ótalmargt sem ég er þakklát fyrir. Takk amma, fyrir að búa svona ná- lægt grunnskólanum svo að það var örstutt í kaffi til þín. Takk fyrir að fá að sofa á milli þín og afa þegar ég var í pössun. Takk fyrir að leyfa mér og Garðari að vera í litla herberginu hjá ykkur fyrst eftir að við fluttum suður. Takk fyrir allt. Kveðja. Þín Sandra. Örfá kveðjuorð skulu færð á blað þegar hún Sigurbjörg Guðmunds- dóttir hefur lokið sinni góðu lífs- göngu. Minningar liðins tíma sækja á, svo sem kvöldstund hjá þeim hjón- um Sigurbjörgu og Gunnþóri í góðum fagnaði þar sem húsmóðirin hafði töfrað fram með litlum fyrirvara dýr- indis veizluborð, spegilmynd hennar góðu eiginda. Sigurbjörg átti annríka ævi, það er ekkert smáhlutverk að ala upp 9 börn og koma þeim svo vel til manns, gott var þeirra veganesti úr foreldrahús- um og þar var Sigursbjörg hinn örláti veitandi svo sannarlega. Þegar ég hóf kennslu á Fáskrúðsfirði fyrir margt löngu þá voru þau börn hennar Krist- ín og Hilmar kærir nemendur mínir sem báru góðu og kærleiksríku upp- eldi gott vitni og ég vissi að Sigur- björg fylgdist vel með framgangi þeirra í skólnum, nokkuð sem er dýr- mætt öllum, ekki sízt kennurunum. Hilmar, minn góði og tryggi félagi og vinur, varð alltof skammlífur, andlát hans var mikið áfall og hans sárt saknað af öllum sem til þekktu, ekki sízt móður hans. Sigurbjörg var greind kona er átti sínar ákveðnu skoðanir og lét þar í engu hlut sinn. Hún var kona með reisn, enda afar hugguleg og ekki síð- ur var þar reisn í ranni. Við tímamót í ævi hennar sagði ég m.a.: Alltaf glöð og hjartahlý, hrein og bein í öllum svörum. Löngum glettni lék á vörum, listahögust verkum í. Fönguleg og falleg er hún, festu og dugnað með sér ber hún. Þetta voru og eru orð að sönnu og með hlýrri þökk er hún nú kvödd. Fá- skrúðsfjarðarveturnir mínir tveir og öll samskipti við það dugmikla og góða fólk þá og síðar merla í minni. Þar eiga þau trygglyndu og vinföstu hjón Sigurbjörg og Gunnþór sinn kæra sess. Börnum hennar og þeirra fólki öllu sendum við Hanna samúð- arkveðjur. Blessuð sé björt minning Sigurbjargar. Helgi Seljan. Meira: mbl.is/minningar Sigurbjörg Guðmundsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir og amma, HANNA GUÐMUNDSDÓTTIR MONRAD frá Sæbóli, Aðalvík, lést miðvikudaginn 4. febrúar á sjúkrahúsinu Helsingör í Danmörku. Jarðarförin fór fram miðvikudaginn 11. febrúar. Jarðsett var í Hörsholm kirkjugarði. Chris Monrad, Marianne Monrad, Jan Kieler, Gudmund Monrad, Christian Monrad, Lonnie Monrad, Sigríður Guðmundsdóttir, Ingveldur Guðmundsdóttir, Finnbjörn Guðmundsson, Sveinn Þráinn Jóhannesson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar áskærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR SIGRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR, Þorragötu 5, Reykjavík. Jón Reynir Magnússon, Magnús Reynir Jónsson, Bjarnveig Sigríður Guðjónsdóttir, Birna Gerður Jónsdóttir, Guðlaugur Gíslason, Sigrún Dóra Jónsdóttir, Jóhann Gunnar Stefánsson, ömmubörn og langömmubarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, SIGURÐUR ÞÓRIR HANSSON kennari, Miðmundarholti 1, Hellu, lést af slysförum fimmtudaginn 12. febrúar. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ, mánudaginn 23. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjálparsveit skáta í Garðabæ, 0546-26-901 kt. 431274-0199. Elísabet Einarsdóttir, Guðrún Helga Sigurðardóttir, Einar Sigurðsson, Þórey Haraldsdóttir, Lóa Hansdóttir, Steinunn Hansdóttir, Sigmunda Björg Pálsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS SIGURÐSSONAR, Móaflöt 15, Garðabæ. Sérstakar þakkir til Þórs Haukssonar prests og kirkjukórs Árbæjarkirkju, svo og starfsfólks heimahjúkrunar. Guðmunda Katrín Jónsdóttir, Kristbjörg Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Gísli Þorsteinsson, Sigurður Þorsteinsson, Gisela Lobers, Erlingur Þorsteinsson, Kristín Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ HELGI ÍVARSSON bóndi á Hólum, Stokkseyrarhreppi, síðast Austurmýri 21, Selfossi, verður jarðsunginn frá Gaulverjabæjarkirkju laugar- daginn 21. febrúar kl. 13.30. Guðmundur Ívarsson, Jón Ívarsson og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.