Morgunblaðið - 22.03.2009, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.03.2009, Qupperneq 16
16 Einkavæðing bankanna MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009 B reski bankinn HSBC var ráðinn til að veita ís- lenskum stjórnvöldum ráðgjöf við söluna á rík- isbönkunum. Á meðal verkefna hans var að vinna mat á þeim tilkynningum um áhuga sem Samson, Kaldbakur og S-hópurinn höfðu sent inn. Vert er að taka fram að ekki er um formleg tilboð að ræða heldur einungis tilkynn- ingar um áhuga sem voru sendar inn án þess að bjóðendur hefðu fengið aðgang að nokkrum upplýs- ingum um Landsbankann utan þess sem almennt var aðgengilegt. Komast að „réttri“ niðurstöðu Edward Williams hjá HSBC var helsti ráðgjafi íslenskra stjórn- valda í ferlinu. Í tölvupósti frá honum sem er dagsettur 29. ágúst 2002 leggur hann fram tillögur um hvernig ætti mögulega að meta bjóðendurna. Þar segir Williams frá nýlegu mati sem HSBC hafði komið að varðandi sölu á fjár- málastofnun. Þar hafði vægi fjár- hagslega þáttar tilboðsins, sem er fyrst og fremst verð, verið 40 pró- sent en þrír aðrir þættir metnir 20 prósent hver. Í niðurlagi póstsins frá Williams segir síðan að „með því að skil- greina viðmið og vega þau vand- lega, þá er mögulegt að komast að „réttri“ niðurstöðu við að velja þann aðila sem þykir ákjósanleg- astur, en á sama tíma vera með hálf-vísindalega (semi-scientific) réttlætingu fyrir ákvörðuninni sem myndi standast utanaðkomandi gagnrýni.“ Þurftu hámarks siðferði Matið var síðan unnið á næstu dögum á þann hátt að rætt var við bjóðendurna sjálfa. Williams segir frá því í tölvupósti dagsettum 6. september að hann hafi loks náð tali af Björgólfi Thor Björgólfssyni þann dag til að fara yfir ákveðin mál varðandi söluna. Athyglisvert er að tölvupósturinn er sendur klukkan 15:59 og í honum kemur fram að samtalið við Björgólf Thor hafi hafist um klukkan hálf fjögur. Því leið tæpur hálftími frá því að samtalið hófst og þar til að tölvu- pósturinn var sendur út. Williams segir síðan frá því að hann hafi upplifað Björgólf Thor sem alvarlegan og staðfastan fjár- festi. Hann ræðir líka í tölvupóst- inum að breska fjármálaeftirlitið muni þurfa að samþykkja alla kjölfestufjárfesta í Landsbank- anum vegna eignar bankans í breska Heritable-bankanum. Williams segir frá því að hann hafi fengið þau svör að slíkur einstaklingur þyrfti að vera „fit and proper.“ Að mati Williams er slíkt mat huglægt, en byggist helst á því að „einstaklingarnir séu með hámarks siðferði og að þeir hafi ekki gert neitt sem kasti rýrð á getu þeirra til að reka banka.“ HSBC kynnir mat sitt Tveimur dögum síðar, 8. sept- ember, kynnti HSBC mat sitt á bjóðendunum þremur fyrir einka- væðingarnefnd. Í upphafi mats- skýrslunnar kemur fram að við- miðin sem stuðst var við og vægi hvers þeirra væru huglæg, en að grunnur hverrar ákvörðunar og þær staðreyndir sem matið væri byggt á væru sett fram til að gera einkavæðingarnefndinni kleift að meta hvert vægi hvers þáttar ætti að vera. Þar kemur einnig fram að í „hefðbundnum uppboðsferlum, þá sé ákvörðun um að fara í einka- viðræður ekki tekin fyrr en áreið- anleikakönnun hefur farið fram og fjármögnun tilboðsins kláruð þannig að söluaðilinn sé ánægður.“ Engar staðfestingar Alls var mat HSBC skipt upp í fimm þætti: fjárhagslega stöðu, verðtilboð, framtíðarsýn, þekkingu og reynslu og fyrirvara í tilboð- unum. Fjárhagsleg staða bjóðendanna var metin út frá því sem fram hafði komið í skrif- legum yfirlýs- ingum frá þeim og öðrum al- mennum upp- lýsingum sem voru aðgengilegar matsaðilanum. Engrar staðfest- ingar var leitað á því sem sett var fram í hinum skriflegu yfirlýs- ingum enda yrði það stór hluti af áreiðanleikakönnun sem hinn valdi bjóðandi þyrfti að gangast undir. Samson með lægsta verðið Varðandi verðtilboðið þá kemur fram í mati HSBC að bankinn skilji að einkavæðingarnefnd „muni mögulega ákveða að minni- háttar mismunur í verði á hvern hlut væri ekki endilega aðalatriði þegar kæmi að því að ákveða hvaða bjóðandi yrði valinn.“ Sam- son bauð á bilinu 3,0 til 3,9 krónur á hvern hlut og var með lægsta til- boðið. S-hópurinn bauð 4,10 og Kaldbakur 4,16 á hvern hlut, en allir höfðu þó þann fyrirvara á að áreiðanleikakönnun á Landsbank- anum gæti breytt verðinu. Athygl- isvert er að í neðanmálsgrein í mati HSBC er tiltekið að ómögu- legt sé „á þessari stundu að dæma um hvort að verðin sem eru gefin til kynna séu raunveruleg tilboð eða tilraunir til að tryggja sér einkaviðræður, til að semja síðan niður á síðari stigum. Þetta er áhætta sem fylgir því að fara í einkaviðræður svona snemma í ferlinu.“ Í mati HSBC á framtíðarsýn bjóðenda skoraði Samson- hópurinn langhæst, fékk átján af 25 prósentum sem voru í boði. Til- gangur þess að meta þennan þátt var að athuga hversu vel áætlanir bjóðendanna færu saman við markmið ríkisins með sölunni. Samson var eini hópurinn sem lagði mikla áherslu á útrás og vöxt í sínu tilboði, var með skýra stefnu varðandi eignarhald og var talinn geta unnið vel með þeim stjórn- endum sem þegar voru í Lands- bankanum. Fyrir vikið skoraði hópurinn hátt varðandi framtíð- arsýn. Í umsögn HSBC er þó tekið fram orðrétt að „augljóslega hefur enginn af bjóðendunum neina sér- fræðiþekkingu á bankarekstri.“ Sambönd skipta máli Samson-hópurinn fékk fjórtán af 20 prósentum fyrir þekkingu og reynslu þrátt fyrir að hafa enga reynslu af rekstri fjármálafyr- irtækja. Í rökstuðningi er fyrst og fremst vísað í víðtæk alþjóðleg sambönd hópsins sem höfðu skap- ast í gegnum viðskiptagjörninga hans og þau talin honum til tekna. Orðrétt segir í umfjöllun HSBC að reynsla af alþjóðlegum fjár- málamörkuðum sé mikilvæg þar sem „alþjóðlegur vöxtur sé álitinn lykil-vaxtarsvæði fyrir bankann.“ Að lokum voru hóparnir metnir á grundvelli þeirra fyrirvara sem þeir settu fram í tilboðum sínum. Í umsögn HSBC kemur skýrt fram að „mjög erfitt er að flokka bjóð- endur samkvæmt þessum mæli- kvarða,“ og þar vitnað til þess að allir bjóðendurnir lögðu fram til- boð sín með fyrirvara um nið- urstöðu áreiðanleikakönnunar. Þrátt fyrir að Samson-hópurinn hafi sett fram langflesta fyrirvara í sinni tillögu þá skoraði hópurinn hæst í þessum flokki, fékk átta af tíu mögulegum prósentum. Niðurstaða HSBC Vegna fjölda þeirra mála sem enn átti eftir að fá skýringu og/eða úrlausn á áður en að hægt væri að ganga frá samningi þá mælti HSBC með því að a) ef frétta- tilkynning um val á bjóðanda til einkaviðræðna yrði send út þá væri skynsamlegt að segja frá því að einkaviðræðurnar væru skil- yrtar því að samningsaðilar myndu ná saman um mörg „grundvall- aratriði“ í tillögu Samson-manna. Það var sagt nauðsynlegt til að blekkja ekki markaðinn til þess að halda að sala á bankanum væri yf- irvofandi þegar það væri alls ekki víst. b) Það þyrfti að semja við hinn valda bjóðanda um nákvæma tímaáætlun, sem fæli í sér að einkavæðingarnefnd gæti dregið sig út úr viðræðunum ef henni fyndist þær ekki ganga nógu vel og c) að lágmarksverð yrði há- marksboð Samson, 3,90 á hlut, en einkavæðingarnefnd áskildi sér rétt til að semja frekar um verðið. Hægt að komast að „réttri niðurstöðu“ Fjárhagsleg Framtíðar- Þekking Bjóðendur staða Verðtilboð sýn og reynsla Fyrirvarar Alls (Hámark) 25% 20% 25% 20% 10% 100% Samson 20 10-15 18 14 8 70-75 S-hópur 15 17 12 16 6 66 Kaldbakur 13 18 10 14 6 61 Mat á tilboðum í kjölfestuhlut í Landsbanka Íslands Glaðbeittir Björgólfsfeðgar ásamt Jón Sveinssyni, fulltrúa ut- anríkisráðherra í einkavæðing- arnefnd, og Halldóri J. Krist- jánssyni, bankastjóra Landsbankans á gamlársdag 2002. Skömmu eftir að myndin er tekin var skrifað undir samn- ing um að selja feðgunum og Magnúsi Þorsteinssyni Lands- bankann. M or gu nb la ði ð/ K ri st in n
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.