Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 25
ísku stúlkurnar eru flestallar mjög trúaðar. Glæpahringirnir múta vúdú-prestum til að standa með sér í að beita hótunum um að guðdómleg öfl beiti þær konur refsingum sem ekki standi fullkomlega við sitt.“ Að sýna sig og dyljast Stúlkurnar lifa raunar í marg- földum ótta. Ekki bara þurfa þær að leggja sig í líma við að uppfylla ströng skilyrði dólganna sem þær standa í skuld við, því að þær þurfa í leiðinni að forðast að lenda í klóm yfirvalda í því landi þar sem þær dveljast ólöglega. Það að forðast báða þessa hramma, þar sem bæði þarf að sýna sig og dyljast, getur verið ansi snúin jafnvægislist. Michelle segir að á síðari árum hafi það stuðningsnet sem fórn- arlömbum mansals í kynlífsþjónustu stendur til boða stórbatnað í Dan- mörku. Hins vegar séu dönsku inn- flytjendalögin stóra vandamálið: „Lögum samkvæmt eru konurnar settar í flokk ólöglegra innflytjenda og fá þar af leiðandi stöðu glæpa- manna. Þær eru settar í fangelsi eða lokaðar flóttamannabúðir. Ég heim- sæki þær reglulega þangað.“ Michelle segir að fangavistin og glæpastimpillinn leggist mjög þungt á þær flestar: „Konurnar líta á fangavistina sem gríðarlega refs- ingu. Fangavist er jú í eðli sínu refs- ing. Þetta hefur leitt til geðrænna vandamála hjá sumum þeirra. Það sem eykur á skelfingu þeirra í fanga- vistinni er sú skömm sem því fylgir og sú staðreynd að oft líta afrísku konurnar á fangelsi sem harða guð- lega refsingu og það eykur enn á ör- vinglan þeirra. Allt bætist það ofan á þá útskúfun sem þær hafa þegar orðið fyrir í mansalsferlinu öllu.“ Erfitt viðfangsefni Michelle segir að mansal sé alltaf stórlega vanmetið að umfangi í öll- um opinberum gögnum. Það að vega að rótum þess sé gríðarlega stórt og mikið verkefni. Að mati Michelle tengist þetta því að lokum misskipt- ingu gæða heimsins og því valda- ójafnvægi sem hún leiðir af sér. Lítil, fjárvana grasrótarsamtök í Kaup- mannahöfn eiga ef til vill erfitt með að snúa þeirri þróun við upp á eigin spýtur. Michelle segist enn fremur hreinlega ekki vera viss um það hvort hin svokallaða „sænska leið“ þar sem kaup á vændi eru gerð glæpsamleg muni leiða til betri stöðu fórnarlamba mansals. Það kunni að leysa ýmis vandamál en leiði jafnframt til annarra. Í tilviki afrísku kvennanna sem hún er í mestum samskiptum við breyti það þó ekki endilega öllu enda séu þær eftir sem áður ólöglegir innflytj- endur og þurfi því eftir sem áður að dyljast fyrir yfirvöldum. Mikilvægt að breyta innflytjendalöggjöf Það sem Michelle segir þess vegna einkum vera aðkallandi í til- viki fórnarlamba mansals í danska kynlífsgeiranum er að breyta inn- flytjendalögum þannig að þær séu ekki meðhöndlaðar sem glæpamenn þegar þær eru gripnar: „Í augna- blikinu eru þessi mál til nánari skoðunar hjá yfirvöldum. Það virð- ist til dæmis vera að renna upp fyrir þeim að það er mikill misskilningur að konurnar sjálfar kjósi helst að snúa heim aftur. Því eru konurnar ekki þvingaðar eins oft til heim- ferðar eins og er. Varanlegar lausn- ir virðast hins vegar ekki vera í aug- sýn.“ Michelle vonast til þess að geta haldið áfram að þróa og auka faglega þjónustu í þágu hins fjölskrúðuga hóps þeirra viljasterku en þó rétt- lausu kvenna sem evrópskir kúnnar og sölumenn fólks sameinast um að misbeita valdi sínu á: „Ég er loksins, nú á miðjum aldri, búin að finna mér hlutverk þar sem hæfileikar mínir njóta sín til fullnustu. Og ég hætti því ekki svo glatt!“ Ljósmyndir/Anja Dalhoff MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009 Afkoma Sameinaða lífeyrissjóðsins á árinu 2008 markast mjög af áföllum á fjármálamörkuðum; afleiðingum af falli viðskiptabankanna og mikilli gengislækkun verðbréfa hér á landi og erlendis. Þrátt fyrir að markvisst hafi verið unnið að því hjá sjóðnum að draga úr vægi innlendra og erlendra hlutabréfa á árinu 2008 og auka vægi innlendra skuldabréfa og innlána, rýrnaði eignasafn sjóðsins við þessar óvenjulegu aðstæður og var í árslok 90,5 milljarðar króna á móti 96,6 milljörðum króna árið áður. Við fall bankanna urðu hlutabréf og víkjandi skuldabréf þeirra verðlaus og mikil óvissa er enn um verðmæti annarra skuldabréfa sem þeir gáfu út og eru í eigu sjóðsins. Þá ríkir einnig mikil óvissa um verðmæti skuldabréfa annarra innlendra fyrirtækja sem sjóðurinn hefur fjárfest í. Vegna þessarar óvissu voru 7.761 milljón króna færðar í varúðarafskrift, sem rýrir eignir sjóðsins í sama mæli. Starfsemi Sameinaða lífeyrissjóðsins 2008 Borgartúni 30 • 105 Reykjavík • S. 510 5000 • lifeyrir.is E N N E M M / S ÍA / N M 37 24 0 Séreignardeild 1% nafnávöxtun var á skuldabréfaleið séreignarsparnaðar sjóðsins á síðasta ári, en þar eru um 80% inneignar rétthafa sjóðsins ávöxtuð. Vegna áhrifa fjármálakreppunnar tókst ekki að halda raungildi séreignar á árinu og var raunávöxtun neikvæð um 13,2%. Vert er að hafa í huga að séreignarsparnaður er langtímasparnaður og ef horft er til síðustu 5 ára er jákvæð raunávöxtun á skuldabréfaleið og öllum Aldursleiðum sjóðsins. Í Innlánsleið sjóðsins býðst rétthöfum að leggja séreign sína á verðtryggðan innlánsreikning, en innstæður slíkra reikninga eru með ábyrgð ríkissjóðs skv. yfirlýsingu ríkisstjórnar. Ávöxtun og tryggingafræðileg staða Árið 2008 var nafnávöxtun Sameinaða lífeyrissjóðsins neikvæð um 9,8% og raunávöxtun var neikvæð um 22,5%. Þetta er verulegur viðsnúningur frá afkomu síðustu ára eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Þróun erlendra verðbréfamarkaða það sem af er árinu 2009 hefur einnig verið sjóðnum óhagstæð þar sem verðbréf hafa lækkað og gengi erlendra gjaldmiðla hefur lækkað gagnvart íslensku krónunni. Áfallnar skuldbindingar umfram eignir voru 23 milljarðar króna og heildarskuldbindingar umfram eignir voru 26,1 milljarður og var tryggingafræðileg staða sjóðsins í lok síðasta árs samkvæmt því neikvæð um 13%. ÁRSFUNDUR 2009 Ársfundur sjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 27. maí nk. kl. 16.00 á Grand Hótel, Reykjavík. Í samráði við tryggingastærðfræðing sjóðsins hefur stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins ákveðið að leggja fyrir ársfundinn tillögu um 10% lækkun lífeyrisréttinda sjóðfélaga og lífeyrisþega. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar. Stjórn sjóðsins: Þorbjörn Guðmundsson, formaður Haraldur Þór Ólason, varaformaður Auður Hallgrímsdóttir Georg Páll Skúlason Hilmar Harðarson Sveinbjörn Hjálmarsson Framkvæmdastjóri: Kristján Örn Sigurðsson 2008 2007 Heildariðgjöld ..................................................................................... 5.926 millj. kr. 5.137 millj. kr. Heildarlífeyrisgreiðslur .................................................................... 2.710 millj. kr. 2.324 millj. kr. Nafnávöxtun ....................................................................................... -9,8% 5,9% Raunávöxtun ...................................................................................... -22,5% 0,0% Raunávöxtun sl. 5 ára (árlegt meðaltal) ..................................... 0,7% 7,5% Raunávöxtun frá stofnun sjóðsins, 1992 (árlegt meðaltal) .. 3,8% 5,8% Rekstrarkostnaður ............................................................................. 119 millj. kr. 119 millj. kr. Rekstrarkostnaður sem hlutfall eigna ......................................... 0,13% 0,11% Fjárfestingartekjur ............................................................................ - 9.195 millj. kr. 5.504 millj. kr. Hrein eign til greiðslu lífeyris ........................................................ 90.474 millj. kr. 96.573 millj. kr. Tryggingafræðileg staða ................................................................. -13% 2,5% Fjöldi virkra sjóðfélaga .................................................................... 12.213 12.077 Fjöldi lífeyrisþega .............................................................................. 4.610 4.421 Fjöldi stöðugilda ................................................................................ 16 16 Helstu kennitölur 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 2008 2007Bankainnstæður Ríkisskuldabréf Skuldabréf sveitarfélaga Skráð markaðsskuldabréf fyrirtækja Skuldabréf fjármálafyrirtækja Veðskuldabréf Erlend skuldabréf Erlend hlutabréf Innlend hlutabréf Eignasamsetning Sameinaða lífeyrissjóðsins í árslok 2007 og 2008 Einstakt tækifæri fyrir 12-13 ára unglinga CISV hefur verið starfandi á Íslandi í tæp 30 ár og sent yfir 1.000 þátttakendur út um allan heim. Í ár erum við með unglingaskipti fyrir 12-13 ára unglinga við jafnaldra þeirra í Trento á Ítalíu. Unglingaskiptin eru í fjórar vikur (27. júní til 27. júlí) og fara þannig fram að unglingarnir dvelja 2 vikur á Ítalíu inná heimilum jafnaldra sinna og svo koma ítölsku vinir þeirra til Íslands og dvelja í tvær vik- ur hjá fjölskyldum. Fararstjórar sjá um skipulagningu dagskrárinnar ásamt unglingunum og foreldrum þeirra. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins www.cisv.org, á netfanginu cisv@cisv.is eða í síma 861 1122 (Ásta).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.