Morgunblaðið - 22.03.2009, Side 26

Morgunblaðið - 22.03.2009, Side 26
26 Tengsl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009 Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Sigrún Edda: Ég var 18 ára þegar Ragnar fæddist. Þegar aldursmun- urinn er svona mikill setur hann svip sinn á sambandið, ég fékk Ragnar eiginlega sem æfingabarn, því ég eignaðist dóttur tveimur árum síðar og þau urðu einsog systkini. Ragnar var mjög stórt barn, hálfgert trölla- barn allt frá fæðingu. Ég man að mamma kveið alltaf fyrir því að fara með hann í ungbarnaskoðun vegna þess að hún var alltaf skömmuð fyrir það hvað hann var þungur. En mér fannst hann sætasta barn í heimi og vorkenndi öðrum börnum á hans reki fyrir það hvað þau voru veikluleg og miklar píslir. Ragnar var ægilegt matargat. Það upphófst alltaf mikið kapphlaup þeg- ar maður mataði hann. Það þurfti að hafa snögg handtök að koma bitunum nógu hratt upp í hann svo hann næði ekki að góla. Ef eitthvað klikkaði þá fóru tilfinningarnar með hann og hon- um lá við köfnun af óhamingju. Til að ljúka máltíðum þurfti að setja í hann tappa. Sá tappi var snudda sem vætt var í hunangi. Sú aðgerð hafði reynd- ar þær afleiðingar að barnatennurnar hans komu skemmdar niður. Þannig að framan af aldri leit hann út eins og sætt feitabolluhrekkjusvín. Hans mesta skemmtun var að dingla í hopprólu undir harmonikkuleik. Önn- ur tónlist kom ekki til greina. Harm- onikka var það hljóðfæri sem hann hreifst fyrst af. Ég tók það oft að mér að passa hann. Kallaði hann alltaf Ragnar rúsínubollurass. Hann var mjög ánægður með það viðurnefni. En hann var ekki alveg sáttur þegar ég hélt því einhverntíma fram að presturinn sem skírði hann hefði ver- ið búinn að fá sér í aðra tána og hefði óvart sagt: „Ég skíri þig Ragnar Rús- ínubollurass.“ Hef reyndar grun um að viðurnefnið Rassi Prump sem var það listamannsnafn sem hann tók sér á yngri árum eigi sér rætur í Rús- ínubollurassinum. Rassi Prump kom reyndar fyrst fram opinberlega í fer- tugsafmælinu mínu og söng frum- samið hrokafullt lag til systur sinnar. Rassi var og er ótrúlega fyndinn kar- akter. Hann var alger andstæða við þann prúða dreng sem Ragnar gaf sig út fyrir að vera.“ Blanda af ljúflingi og skapmanni „Ég held að við gleymum því hvor- ugt þegar ég tók að mér að passa hann nokkra mánuði þegar foreldrar hans voru erlendis. Þá var ég nýút- skrifuð leikkona. Sambúðin gekk mjög vel, ég tók meðal annars að mér að klippa hann. Ég hafði ofurtrú á leikarahæfileikum mínum og var viss um að ef ég hermdi eftir góðum klipp- ara þá tækist mér að klippa drenginn. Mér tókst nokkuð vel upp með topp- inn en þegar kom að því að klippa á honum hnakkann fór að kárna gam- anið. Ég spurði hann þá hvort honum fyndist í lagi að vera dálítið pönkaður í hnakkann en hann var alls ekki á því. Hann hvítnaði af áhyggjum og fór að titra. Ég sá í hvað stefndi og flýtti mér með hann til rakara og hef ekki tekið að mér klippingar síðan. Ragnar hefur alltaf haft ákveðnar skoðanir varðandi hárgreiðslu að ég nú ekki tali um klæðaburð. Það mátti til dæmis aldrei vera blettur í föt- unum hans. Þá var hann alveg ómögulegur. Í fyrrnefndri sambúð var ég græn- metisæta, Ragnari til lítillar skemmt- unar. Þegar hann hafði búið við elda- mennsku systur sinnar, sem samanstóð af baunum, spelti og þrumara um nokkurt skeið þá and- mælti hann kröftuglega þegar hann fékk blómkál í ofni með bræddum osti í sunnudagsmatinn. Þá tók hann kastið. Fyrst trilluðu tár niður bollu- kinnarnar og svo rak hann upp org, skellti sér í gólfið og barði hnakk- anum í parketið þangað til að ég lof- aði því að ég skyldi fara með hann á Pulsuvagninn. Ragnar hefur alltaf verið þessi blanda af ljúflingi og skapmanni. Hann var til dæmis í ungmennahljómsveitinni Kósí sem heillaði allar verðandi tengdamæður upp úr skónum fyrir prúðmennsku og svo var hin hliðin, Rassi Prump, sem móðgaði menn hægri, vinstri með hroka og óþægilegum sann- indum. Fjölskyldumeðlimir voru mis- hrifnir af því þegar hann, strax eftir menntaskóla, varð fyrstur karl- manna til að setjast á skólabekk í Húsmæðraskólanum í Reykjavík. Sumum fannst mikið á sig lagt fyrir langan brandara, en mér fannst þetta frábært uppátæki enda Ragnar dekr- aður af kvenfólkinu í fjölskyldunni og hafði aldrei þurft að elda, hvað þá þvo af sér. Ég mætti á handavinnusýn- ingar hjá töffaranum mínum, skoðaði þar útsaumuð vöggusett og var heiðruð á sunnudegi með fölskum héra þar sem umræðuefnið var rétt blanda hreinsiefna og nauðsyn á heimilisbókhaldi. Ragnar hefur alltaf verið stemningsmaður. Þegar hann var 10 ára gamall eignaðist hann vin- konu sem var að læra á selló. Þá fór Ragnar að læra á fiðlu svo þau gætu spilað saman dúett. Ég held að hann hafi verið átta eða níu ára þegar hann fékk laun fyrir að leika í söngleiknum Land míns föður. Þessum aurum eyddi hann í að bjóða stelpunni sem hann var skotinn í út að borða. Það eru nú ekki margir á þeim aldri sem geta státað af annari eins sjéntil- mennsku. Nú er samband okkar öðruvísi. Hann er ekki lengur barn. Við erum vinir og jafningjar og samband okkar mótast af því. Það er einstaklega gott að tala við Ragnar. Við fylgjumst vel hvort með öðru bæði persónulega og í starfi. Hann er alltaf einlægur og hvetjandi.“ Sorgin sigrar hamingjuna „Mér finnst svo fallegt við Ragnar hvað hann er trúr sjálfum sér, hann hefur aldrei áhyggjur af því hvað öðr- um finnst . Hann fer sínar eigin leiðir, er óhræddur og laus við tilgerð. En hann er ekki allra. Viðfangsefni hans eru ögrandi og frumleg og hann hef- ur einu sinni náð að ganga fram af mér í óhugnaði, en heilla mig um leið. Það tengdist mögnuðum performans sem hann gerði undir Eyjafjöllum og hét „Ókyrrðin mikla.“ Það var reynd- ar þá sem ég uppgötvaði að bróðir minn væri snilli. Ragnar er laus við stæla, hann getur staðið við allt sem hann gerir og leggur mikið á sig fyrir list sína. Ég þekki fáa sem eru jafn heilir og heiðarlegir í því sem þeir gera. Það er einhver djúpur sársauki í verkum hans um leið og þau eru full af húmor. Það lá ekkert í augum uppi að hann yrði myndlistarmaður. Hann er fær á svo mörgum sviðum. Hann er líka góður leikari og hæfi- leikaríkur tónlistarmaður. Ég veit að hann þurfti að gera upp við sig hvað hann ætti að leggja áherzlu á og hann valdi myndlistina. En tónlist og leik- list eru ríkir þættir í myndlistinni hans. Eitt af uppáhaldsverkunum mínum eftir hann er rómantísk mynd af konu sem situr við á. Þegar betur er að gáð þá sér maður að handlegg- urinn hefur verið höggvinn af henni. Það er stór harmsaga á bakvið þetta annars fallega andartak. Þessi mynd var sýnd í tengslum við sýningu sem hét Scandinavian pain. Þá var Ragn- ar kominn í umboðssölu hjá galleríi og orðinn rándýr myndlistarmaður. Ég sagði honum að ég ætlaði að finna leið til kaupa málverkið. En áður en til þess kom seldi hann verkið úti í Frakklandi frægum kvikmyndaleik- ara. Það gladdi mig því mjög þegar hann færði mér þessa sömu mynd í afmælisgjöf. Hann tók sig bara til og málaði annað eintak. Þessi mynd ber með sér öll sterkustu höfund- areinkenni Ragnars; trega, húmor og heiðarleika. „Sorrow conquers happ- iness“ söng hann í einum af sínum flottustu gjörningum sem hann kall- aði því látlausa nafni „Guð“. Þessi setning finnst mér lýsa bezt lista- manninum Ragnari Kjartanssyni.“ Tregafullur húmoristi Morgunblaðið/Kristinn Þau hafa alltaf haft gaman af að leika sér. Systkinin Ragnar Kjartansson myndlistarmaður og Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona eru trúnaðarvinir og tala jafnt um lífið og listina, sem í þeirra tilfelli er oft einn og sami hluturinn. Hann fæddist 3. febrúar 1976, sonur leikaranna Guðrúnar Ásmunds- dóttur og Kjartans Ragnarssonar. Hann gekk í Melaskóla, Hagaskóla, MR, Hús- stjórnarskólann og útskrif- aðist frá Listaháskólanum 2001. Hann hefur fengizt við ýmsa miðla; myndbönd, innsetn- ingar, skúlptúr og málverk og gjörningar hans þykja frumlegir og eftirminnilegir. Hann er nú fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum og segir í kynningu frá Kynning- armiðstöð íslenskrar myndlistar að hann sé yngsti listamaður sem hafi verið valinn á Tvíæringinn. „Með honum teflir Ísland fram ung- um listamanni sem hefur á skömm- um tíma byggt upp eftirtektarvert höfundarverk og sýn ingaferil.“ Hann er kvæntur Ásdísi Sif Gunn- arsdóttur myndlistarmanni. Ragnar Kjartansson Hún fæddist 30. ágúst 1958 í Reykjavík, dóttir Guðrúnar Ás- mundsdóttur leikara og Björns Björnssonar flugvirkja. Hún útskrifaðist frá Leiklist- arskóla Íslands 1981, starfaði hjá Þjóðleikhúsinu 1981-1985 og 1996- 1998 og hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1985-1996 og frá 1998. Leikari hjá Alþýðuleikhúsinu 1982-1984. Hún hefur einnig leikið í sjónvarpsþátt- um, sjónvarpsleikritum, útvarps- leikritum og kvikmyndum, hefur leikstýrt verkum á sviði, í útvarpi og sjónvarpi og skrifað handrit fyrir sjónvarp og barnabækur. Hún hefur hlotið verðlauna- tilnefningar fyrir leik og leikstjórn og fyrir hlutverk Láru í Degi vonar var hún valin bezta leikkonan í aðal- hlutverki. Hún er tveggja barna móðir. Eig- inmaður hennar er Axel Hallkell Jó- hannesson leikmyndahönnuður. Sigrún Edda Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.