Morgunblaðið - 22.03.2009, Síða 29

Morgunblaðið - 22.03.2009, Síða 29
ára. Þaðan var Ribéry hins vegar lát- inn fara þremur árum síðar þar sem námsárangur hans var undir vænt- ingum. Þá er hann sagður hafa flogist linnulítið á við félaga sína. „Það blasti við að Franck var frábær í fótbolta en það mátti ekki hafa augun af honum frekar en hraðsuðupotti. Hann hafði alist upp á götunni,“ segir einn þjálf- aranna, José Pereira. Ribéry sneri heim til Boulogne og fór að starfa með föður sínum í bygg- ingavinnu. Eigi að síður var hann ekki reiðubúinn að gefa drauminn upp á bátinn en það er til marks um ístöðuleysi hans á þessum árum að frá 2001 til 2004 lék hann með þrem- ur smærri félögum í Frakklandi, US Boulogne, Olympique Alès og Stade Brestois. Síðastnefnda félagið lék í 3. deild og þar gerði kappinn sinn fyrsta atvinnusamning. Það mátti ekki seinna vera enda hafði hann varla til hnífs og skeiðar um þær mundir. Slagsmál á diskóteki Vegur Ribérys óx hratt hjá Brest og árið 2004 festi fyrstudeildarlið FC Metz kaup á honum. Minnstu munaði þó að ferillinn færi í vaskinn eftir að- eins tuttugu leiki því Metz úthýsti Ri- béry eftir að hann efndi til hópslags- mála á diskóteki í bænum. Þannig háttalag féll ekki að gildum félagsins. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Tyrkneska stórliðið Galatasaray ákvað að taka Ribéry upp á sína arma. Allt lék í lyndi í fyrstu og Ribéry vann sinn fyrsta titil á ferlinum vorið 2005, tyrkneska bik- arinn. Stuðningsmenn Galatasaray tóku Fransmanninum líka með kost- um og kynjum og gáfu honum nafnið „Ferraribery“ vegna hraðans. Svo syrti að. Galatasary hætti að greiða leikmanninum laun og eftir fjóra mánuði ákvað hann að rifta samningi sínum. Það mál endaði fyrir gerðardómi sem komst að þeirri nið- urstöðu að Ribéry hefði verið í fullum rétti vegna þess að félagið hefði ekki efnt samninginn. Gamla stórveldið Olympique de Marseille leysti Ribéry úr hinni tyrk- nesku prísund. Skemmst er frá því að segja að hann féll eins og flís við rass að l’OM-liðinu og varð þar að þeim leikmanni sem öll heimsbyggðin þekkir í dag. Hann er gimsteinninn Leiðin inn í franska landsliðið var greið og frá og með heimsmeist- aramótinu í Þýskalandi, þar sem Frakkar hrepptu silfrið, hefur Ribéry verið í hópi fremstu sparkenda þessa heims. „Hann er gimsteinninn í franskri knattspyrnu,“ hefur sjálfur Zinedine Zidane sagt. Og orð hans eru lög. Ribéry er almennt álitinn arf- taki Zidanes í landsliðinu. „Það er gífurlegur heiður að vera líkt við Zinedine Zidane,“ tjáði Ri- béry þýska blaðinu Die Welt. „Hann er risi meðal sparkenda, ef til vill sá besti frá upphafi. Mig dreymir um að ná sama árangri og hann.“ Mörg stærstu félög heims fóru að sína Ribéry áhuga eftir HM í Þýska- landi og l’OM þótti gott að geta haldið honum veturinn eftir. Átti hann drjúgan þátt í því að liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar vorið 2007 á eftir hinu óvinnandi vígi, Olympique Lyonnais, sem unnið hefur titilinn sjö ár í röð. Sumarið 2007 sá l’OM aftur á móti sæng sína uppreidda. Það var bara spurning hvort Ribéry færi til Eng- lands eða Spánar. Það kom því mörg- um í opna skjöldu þegar hann ritaði undir samning við þýska stórveldið Bayern München sem eftir slæma sparktíð átti ekki einu sinni sæti í Meistaradeild Evrópu. Bæjarar greiddu metfé fyrir leikmanninn, 25 milljónir evra. Leikmaður ársins í Þýskalandi Ribéry tók til óspilltra málanna í Bæjaralandi og samvinna hans við miðherjana, Miroslav Klose og Luca Toni, var rómuð en þeir höfðu einnig gengið til liðs við Bayern um sumarið. Samtals gerðu þessir þrír menn 73 mörk fyrir liðið í fyrravetur, þar af Ribéry nítján. Varla þarf að minna nokkurn mann á það að Bayern München vann öruggan sigur í Bún- deslígunni og Ribéry var valinn leik- maður ársins í Þýskalandi. Liðið hefur ekki verið eins sprækt í vetur en er ennþá með í baráttunni um titilinn, fjórum stigum á eftir toppliði Herthu Berlin þegar tíu um- ferðir eru óleiknar. Þá eru Bæjarar til alls líklegir í Meistaradeildinni en mergjað var að sjá þá taka Sporting frá Lissabon til kostanna í viðureign liðanna í sextán liða úrslitunum, 12:1 samanlagt. Glíma þeirra við Börs- unga í næstu umferð verður raf- mögnuð. Franck Ribéry hefur synt á móti straumnum. Raunar tjáði hann The Washington Post að hann væri gang- andi dæmi um það að allt geti gerst í knattspyrnu. „Það er hægt að rísa úr öskustónni og láta drauminn rætast. Þetta hefur allt gerst mjög hratt en núna finnst mér ég loksins vera að lifa lífinu.“ Og lífið er rétt að byrja. Lífsháski Ribéry er minntur á bíl- slysið sem hann lenti í tveggja ára í hvert sinn sem hann lítur í spegil. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009 @ www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Stuðningshlífar fjölbreytt úrval Ársfundur 2009 Ársfundur sjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 28 apríl, kl. 17:00. Verður hann auglýstur nánar síðar. Erfitt ár - Réttindi óbreytt! Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · Fax 510 7401 · s l@sl . is · www.sl . is Efnahagsreikningur (í flús. kr.) Yfirlit um breytingar á hreinni eign til grei›slu lífeyris Lífeyrisskuldbindingar skv. ni›urstö›u tryggingafræ›ings Kennitölur Ávöxtun séreignardeildar 2008 Sjó›félagar 15.709.032 38.183.476 2.343.348 436.342 1.235.103 19.267 57.926.568 -134.030 57.792.538 2.785.709 -753.462 278.178 -56.648 -78.339 2.175.438 55.617.100 57.792.538 658.000 1,1% -1.792.000 -1,7% 0,3% -13,8% 3,6% 3,7% 7.028 5.113 0,14% 75,5% 24,5% 19.923.271 32.703.798 1.796.224 396.971 801.157 21.960 55.643.381 -26.281 55.617.100 2.525.318 -637.592 3.248.848 -46.962 -66.863 5.022.749 50.594.351 55.617.100 8.267.000 16,8% 4.983.000 5,6% 6,1% 0,2% 8,7% 5.7% 7.001 4.352 0,13% 75,7% 24,3% Ver›bréf me› breytilegum tekjum Ver›bréf me› föstum tekjum Ve›lán Bankainnistæ›ur Kröfur A›rar eignir og rekstrarfjármunir Skuldir I›gjöld Lífeyrir Fjárfestingartekjur Fjárfestingargjöld Rekstrarkostna›ur Hækkun á hreinni eign á tímabilinu Hrein eign frá fyrra ári Eignir umfram áfallnar skuldbindingar Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum Eignir umfram heildarskuldbindingar Í hlutfalli af heildarskuldbindingum Tekið er tillit til falls bankanna þ.m.t. Straums og afleiðingum þess m.a. með niðurfærslu eigna. Nafnávöxtun Hrein raunávöxtun Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal Fjöldi virkra sjóðfélaga Fjöldi lífeyrisþega Rekstrarkostnaður í % af eignum Eignir í íslenskum krónum Eignir í erlendum gjaldmiðlum Nafnávöxtun séreignardeildarinnar var 4,3% eða -10,4% raunávöxtun. Fall bankanna og afleiðingar þess hafa áhrif á ávöxtun beggja deilda. Í uppgjöri er færð út sannanleg töp ásamt því að eignir eru færðar niður til að mæta mögulegum töpum framtíðar. Heildareignir séreignardeildarinnar eru 430,7 milljónir króna í árslok 2008 og vaxa um 12%. Sjóðurinn er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi mönnum sem eiga ekki kjarasamningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann getur því verið góður kostur fyrir ýmsa aðila sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð. Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign. 31.12.2008 31.12.2007 Í stjórn sjó›sins eru Baldur Gu›laugsson forma›ur, Hrafn Magnússon varaforma›ur, Arnar Sigurmundsson, Gunnar Gunnarsson, Þorbjörn Guðmundsson, fiorgeir Eyjólfsson, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Framkvæmdastjóri er Sigurbjörn Sigurbjörnsson Traustur sjóður, trygg framtíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.