Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 35
Í Avaldsnes var þeim falið að segja Noregssöguna frá víkingatímanum. Þar voru kempur á borð við Ólaf Tryggvason og Har- ald hárfagra í aðal- hlutverki. Ernst segir sýninguna í Færeyjum byggj- ast á sömu hug- mynd og sýn- ingin í Perlunni. Hún verði þó „ennþá hrylli- legri“. Sautján per- sónur verða á sýningunni og komu hingað jafn margir vel valdir núlif- andi Fær- eyingar til að mótin yrðu sem raunverulegust, meðal annarra safn- stjórinn í Vestmanna og fjölskylda hans. Þá leggur ann- ar tveggja fulltrúa Færeyinga á danska þinginu til líkama sinn og höfuð, ef svo má að orði komast. Öf- ugt við höfuðin eru líkamarnir gerðir úr trefjaplasti. Ekki fyrir fólk með innilokunarkennd Fyrirsæturnar þurftu ekki aðeins að mæta á staðinn, þær urðu að sýna ákveðin blæbrigði í andliti eftir því hvernig fyrir viðkomandi persónu er komið í sögunni. Sumir þurftu að vera undrandi á svip, aðrir ótta- slegnir og þar fram eftir götunum. Halda þarf svipnum í nokkrar mín- útur meðan silíkoninu er smurt framan í fólk og segir Ernst fyr- irsæturnar upp til hópa hafa staðið sig vel. „En þetta er ekki fyrir fólk sem þjáist af innilokunarkennd.“ Fjöldi aukahluta fylgir persónun- um utan, svo sem vopn, skartgripir og forláta rúnastafur, sem Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði hafði hönd í bagga með. „Við leggjum áherslu á, að allt sé eins vel úr garði gert og unnt er. Þetta er mikið hand- verk,“ segir Ernst og bætir við að öll klæði persónanna séu saumuð í smiðjunni. „Við höfðum líka til fleiri skyn- færa en augnanna,“ heldur Ágústa áfram en þau leggja einnig til lykt- ina á sýningunni. Ég þori ekki einu sinni að spyrja hvaðan hún er fengin. Færeysku víkingarnir fara utan með skipi á fimmtudaginn kemur og munu Ágústa og Ernst koma í hum- átt á eftir en þau setja sýninguna upp sjálf. Áformað er að opna hana 1. maí. Silíkon hentugra en vax Spurð um tilurð Sögusafnsins segjast Ágústa og Ernst vera mikið safnafólk. „Við höfum komið á söfn út um allan heim þar sem okkur hef- ur þótt vanta upp á framsetn- inguna,“ segir Ágústa en yfirleitt eru persónur á sýningum af þessu tagi unnar í vax eða gifs, svo sem í Madame Tussauds-safninu í Lund- únum. „Að okkar áliti er silíkonið mun hentugra efni enda gerir það persónurnar trúverðugri.“ Spurður hvers vegna víkingar hafi orðið fyrir valinu svarar Ernst því til að þau hjónin hafi margoft verið spurð að því af erlendum vinum og kunningjum sem hingað koma hvar þá sé að finna. „Fólk er komið til Ís- lands til að sjá víkinga og við því höf- um við brugðist.“ Samhliða færeyska verkefninu hafa verið tekin upp heimildarmynd og kynningarmyndband. „Hug- myndin er að gera átak,“ segir Ágústa. „Senda kynningarefni á sem flest söfn í heiminum, kynna aðferð- ina og sjá hver viðbrögðin verða.“ Ernst er sannfærður um sókn- arfærið. „Möguleikarnir eru miklir og vonandi á þetta eftir að verða mannaflsfrek starfsemi í framtíð- inni.“ Auk hugsanlegrar útrásar hafa hjónin augastað á verkefnum hér heima. „Sagan er bara hálfsögð í Perlunni,“ segir Ernst. „Það má bæta miklu við þar þegar aðstæður leyfa. Síðan væri spennandi að glíma við þjóðsögurnar og ævintýrin. Per- sónur eins og Gísla, Eirík og Helga. Ég sé þá kumpána ljóslifandi fyrir mér.“ Fjölskylda Ýmsir lögðu til höfuð sín, meðal annarra safnstjórinn í Vestmanna, eiginkona hans og bróðir. Morgunblaðið/RAX Raunverulegir Ernst leggur lokahönd á valinkunnar kempur úr Færeyinga sögu. Hann og starfsfólk hans hafa helgað sig verkefninu í heilt ár. 35 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.