Morgunblaðið - 22.03.2009, Page 37

Morgunblaðið - 22.03.2009, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009 Morgunblaðið/Golli Fögnuður Vinstri grænir eru brattir á landsfundi sínum, enda hefur flokkurinn byr í seglin í skoðanakönnunum og er nýseztur í ríkisstjórn. F orystumenn Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs eru brattir á landsfundi flokksins, sem nú stendur yfir í Reykja- vík. VG hefur vissulega byr í seglin. Flokkurinn hefur setzt í ríkisstjórn í fyrsta skipti. Skoðanakannanir sýna að ungt fólk fylgir honum í rík- um mæli. Mesta vinstrisveifla sögunnar? Skoðanakannanirnar sýna gríðarlega vinstri- sveiflu, þá mestu í íslenzkum stjórnmálum frá upphafi ef kosningaúrslitin verða í samræmi við vísbendingarnar nú. Fylgi VG mælist nú um 25%. Það er meira fylgi en forveri þess, gamla Alþýðubandalagið, hlaut nokkurn tímann í kosningum. Hinn stjórnarflokkurinn, Samfylkingin, mælist nú með um 31% fylgi. Þannig gætu núverandi stjórnarflokkar náð meirihlutafylgi og sterkum þingmeirihluta í kosningunum eftir mánuð. Slíkt hefur aldrei gerzt áður í íslenzkum stjórnmálum. Vinstriflokkar hafa aldrei náð meirihluta á þingi. Þegar þeim vegnaði bezt, í kosningunum 1978, fengu Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn um 22% atkvæða hvor flokk- ur. Vinstristjórnir hafa venjulega þurft á stuðn- ingi Framsóknarflokksins að halda og þannig hafa miðjusjónarmið vegið á móti róttækum vinstriskoðunum. Og þótt fylgi Sjálfstæð- isflokksins hafi verið mismunandi í gegnum tíð- ina, hefur hann alltaf verið stærsti flokkurinn í íslenzkum stjórnmálum. Nú benda skoð- anakannanir til þess að hann geti orðið næst- stærstur og eigi á hættu að fá sína verstu kosn- ingu í sögunni. Framsóknarflokkurinn hefur heldur ekki komizt upp úr þeirri lægð, sem hann hefur verið í undanfarin ár. Ýmislegt bendir þannig til að sjónarmið vinstriflokkanna geti orðið allsráðandi á Íslandi næstu árin, raunar meir en nokkurn tíma fyrr. Hugmyndafræðilegt þrotabú? Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, hamr- aði á þessu í ræðu sinni við setningu flokks- þingsins og sagði að Ísland stæði nú ekki sízt á hugmyndafræðilegum tímamótum. „Hér er að hrynja til grunna hugmyndafræði Sjálfstæðis- flokksins sl. 25-30 ár, eða allt frá því að nýfrjáls- hyggjumennirnir náðu þar undirtökum og hófu að prédika sinn boðskap,“ sagði Steingrímur. „Það er sem sagt meira, góðir fundarmenn, sem er komið í þrot en stóru bankarnir. Sjálfstæð- isflokkurinn er hugmyndafræðilegt þrotabú, eins og hann hefur rekið sína stefnu undanfarin ár og hún er því góð, sú spurning sem kviknaði norðan heiða fyrir um viku síðan, hvort ekki væri nauðsynlegt að skipa skilanefnd yfir Sjálf- stæðisflokknum.“ Formaður VG sagði að Sjálfstæðisflokk- urinn, öllum öðrum flokkum fremur, bæri ábyrgðina á því hvernig komið væri fyrir Ís- landi. „Þeim mun mikilvægara er, að hann kom- ist ekki aftur til valda, um langa framtíð; sér- staklega vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki vera fær um að endurmeta á nokk- urn hátt sinn hugmyndafræðilega grunn. Í framtíðarnefnd á vegum Sjálfstæðisflokksins sem nú hefur verið að störfum, gefur fyrst og fremst að líta að það þurfi að skipta um fólk, ekki um stefnu, það þurfi sem sagt nýtt fólk, en til að framkvæma sömu stefnu.“ Steingrímur vill sömuleiðis ekki leyfa Sam- fylkingunni að stilla sér upp sem höfuðand- stæðingi Sjálfstæðisflokksins og gefur lítið fyr- ir tveggja turna tal: „Þessir eru pólarnir í íslenskum stjórnmálum, þetta er hinn raun- verulegi valkostur. Sjálfstæðisflokkurinn eða við. Við, flokkurinn sem alls ekki hefur það á samvisku sinni að hafa leitt Sjálfstæðisflokkinn til valda eða haldið honum þar.“ Hver var stefnan? Hér er að ýmsu að hyggja. Steingrímur J. Sig- fússon útskýrir sjaldnast hvað hann á við með nýfrjálshyggju þegar hann notar orðið, enda hefur hann sjálfur viðurkennt að það sé ekki auðskýrt. Sú stefna í efnahagsmálum, sem hér hefur verið fylgt frá því að síðasta vinstristjórn fór frá völdum 1991 hefur ekki eingöngu verið stefna Sjálfstæðisflokksins. Alþýðuflokkurinn átti sinn stóra þátt í henni, síðar Framsókn- arflokkurinn og nú síðast Samfylkingin. Færa má rök fyrir því að þetta hafi verið svipuð stefna og fylgt hefur verið í megindráttum í flestum vestrænum ríkjum síðustu áratugi og hefur gengið út á að tryggja samkeppnishæfni atvinnulífsins í alþjóðavæddum heimi. Í henni hefur falizt að tryggja aðgang að alþjóðlegum mörkuðum og alþjóðlegu regluverki. Þar vega áhrif EES-samningsins þyngst. Hins vegar má gagnrýna ríkisstjórnir síðustu ára fyrir að hafa ekki gengið alla leið og útvegað Íslandi alþjóð- legan gjaldmiðil með inngöngu í Evrópusam- bandið. Efnahagsstefna undanfarinna ára hefur gengið út á að efla alþjóðaviðskipti og al- þjóðlega fjárfestingu. Hún hefur tryggt fólki og fyrirtækjum hagstætt skattaumhverfi og ýtt undir einkaframtak. Hins vegar er fjarstæða að stilla henni upp sem andstæðu félagslegrar samhjálpar og norrænnar velferðar. Útgjöld ríkisins til velferðarmála hafa sjaldan vaxið jafnmikið og á þessu tímabili. Það er deginum ljósara að mörg mistök hafa verið gerð í aðdraganda bankahrunsins. Fyrir utan það að leyfa alþjóðlegu bankakerfi að vaxa upp án alþjóðlegs gjaldmiðils, eru stærstu mis- tökin líklega þau að hafa ekki haft nægilegt eft- irlit með hinum frjálsa markaði, bæði með strangari löggjöf og með því að byggja upp eft- irlitsstofnanir sem höfðu raunverulega burði til að sinna hlutverki sínu. En megindrættir þess- arar stefnu eru ekki farnir í gjaldþrot. Þetta er stefna, sem er ennþá í fullum rekstri, mun víðar en á Íslandi. Fundir helztu iðnríkja heims, þar sem saman koma leiðtogar bæði af hægri og vinstri væng stjórnmálanna, vara við afturhvarfi til vernd- arstefnu og hafta. Slíkt afturhvarf er vísasta leiðin til að framlengja kreppuna og koma í veg fyrir að hið alþjóðlega hagkerfi hressist á ný. Sami tónn heyrist frá stofnunum á borð við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabankann. Þar er vissulega hvatt til að menn læri af mistökum síðustu ára, en hin frjálslynda efnahagsstefna alþjóðavæðingarinnar hefur ekki verið lögð fyr- ir róða. Það ríki, sem ákveður að gera það ein- angrar sig frá þeirri endurreisn, sem er núna sameiginlegt verkefni alþjóðasamfélagsins. Hvað bjóða vinstri græn? Upp á hvað býður Vinstrihreyfingin – grænt framboð sem valkost við stefnu Sjálfstæðis- flokksins og annarra þeirra flokka, sem hér hafa setið að völdum undanfarin átján ár? Klár- lega er meginþáttur í þeirri stefnu „hressi- legar“ skattahækkanir í anda Indriða H. Þor- lákssonar, ráðuneytisstjóra Steingríms Jóhanns í fjármálaráðuneytinu. Enda marg- ítrekaði flokksformaðurinn í ræðu sinni á lands- fundinum að flokkurinn hefði hvergi komið ná- lægt skattalækkunum undanfarinna ára. Flokkurinn virðist heldur ekki heillaður af hugmyndinni um frjáls alþjóðaviðskipti. Stein- grímur hvatti vissulega til þess að efla atvinnu- sköpun og útflutning. En eins og hjá svo mörg- um, sem aðhyllast verndarstefnu, virðist formaðurinn líta svo á að alþjóðaviðskipti séu bara í aðra áttina: „Það getum við líka gert með ýmis konar innlendri verðmætasköpun sem kemur í stað fyrir kostnaðarsaman innflutning. Innlend aðföng sem okkur nýtast til fram- leiðslu og verðmætasköpunar eru jafngild út- flutningi – það að bændur auki kornrækt, að við förum aftur að framleiða okkar eigin áburð, að við förum aftur að þjónusta og helst smíða okk- ar fiskiskip og flota, það að við leitum allra leiða til að fullvinna með sem mestum virðisauka okkar framleiðslu, allt kemur það að sama gagni.“ Enn og aftur hafa grundvallaratriði í hag- fræði farið framhjá forystumönnum vinstri- manna á Íslandi, illu heilli. Hugmyndin um inn- lenda framleiðslu, sem verður vernduð með styrkjum og tollum, er klassísk viðbrögð við kreppu – og alltaf jafnvitlaus. Það kemur ekki á óvart að Steingrímur hafn- aði erlendri fjárfestingu í stóriðju. Ekki nefndi formaður VG heldur gjaldmiðils- eða Evrópu- málin einu orði í ræðu sinni – enda liggur fyrir að þar eru núverandi stjórnarflokkar ósam- mála í grundvallaratriðum og vandséð hvernig þeir ætla að leysa úr þessu stærsta máli varð- andi hagstjórnina, sem æpir á hvern þann sem er „vakandi í vinnunni“ svo vísað sé til ræðu formannsins. Endurreisnarskýrslan Það er umtalsverð einföldun hjá formanni VG að taka eina setningu úr endurreisnarskýrslu sjálfstæðismanna og álykta að þar sé engin gagnrýni á stefnu undanfarinna ára. Í skýrsl- unni, sem Vilhjálmur Egilsson, formaður end- urreisnarnefndar flokksins, kynnti í Valhöll í gær, föstudag, er að finna harkalega gagnrýni á ýmsar ákvarðanir síðustu ára. Harðasta gagnrýnin er annars vegar á hlut eftirlitsstofn- ananna, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans, og þau skilyrði, sem þeim voru búin, hins vegar á peningamálastefnuna og gjaldmiðilsmálin. Endurreisnarnefndin gagnrýnir sömuleiðis harðlega ákvörðun síðustu ríkisstjórnar Sjálf- stæðis- og Framsóknarflokks um 90% húsnæð- islán. Mjög er átalið hvernig staðið var að einka- væðingu Landsbankans og Búnaðarbankans. „Ferlið var ógagnsætt og hagstæðari tilboð fyrir ríkissjóð á alla hefðbundna mælikvarða voru sniðgengin. Ekki var fylgt upphaflegri að- ferðafræði, s.s. um dreifða eignaraðild. Bank- arnir lentu, að einhverju marki eftir pólitískum línum, í höndum aðila sem voru reynslulitlir í bankastarfsemi (alþjóðlegri sérstaklega),“ seg- ir í endurreisnarskýrslunni. Um þessi atriði verða lesendur Morgunblaðsins vonandi dóm- bærari eftir að blaðið hefur birt úttekt sína á gögnum einkavæðingarnefndar, sem það hefur nú fengið aðgang að og birtist fyrsti hluti þeirr- ar úttektar í þessu tölublaði Morgunblaðsins. Í skýrslu endurreisnarnefndarinnar segir um gjaldmiðilsmálin: „Margir telja gjaldmið- ilinn óbrúklegan en virk og ábyrg umræða inn- an Sjálfstæðisflokksins komst aldrei af stað fyrr en síðastliðið haust, né heldur hafði rík- isstjórnin forgöngu um umfjöllun um málið á sínum vettvangi með þeim hætti að það gæti haft breytingar í för með sér.“ Í framhaldinu er hvatt til umsóknar um aðild að ESB og mynt- samstarfi Evrópuríkja. Slík umsókn „sendir af- ar sterk skilaboð til alþjóðasamfélagsins um stefnumótun Íslendinga til framtíðar,“ segir nefndin. Steingrímur J. Sigfússon kallar Sjálfstæð- isflokkinn hugmyndafræðilegt þrotabú. Þó virðist þar innandyra vera meira af skyn- samlegum hugmyndum um það hvernig megi endurreisa íslenzkt efnahagslíf en hjá vinstri grænum. Skýrsla endurreisnarnefndarinnar sýnir að sjálfstæðismenn virðast reiðubúnir að læra af mistökunum. VG býður hins vegar fram til næstu fjögurra ára eldgamla efnahags- pólitík, sem hefur aldrei virkað og er ekki líkleg til að gera það í þetta sinn heldur. Eru það hin hugmyndafræðilegu tímamót? Hugmyndafræðileg tímamót? Reykjavíkurbréf 210309

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.