Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 43
CLEVERNESSHOME Upplýsingar í síma 618 9080 og clevernesshome@clevernesshome.is Vegna aukinnar eftirspurnar erlendra ferðamanna óskum við eftir fleiri sumarhúsum til leigu. SUMARHÚSAEIGENDUR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009 • Heildverslun með tæknivörur. Ársvelta 450 mkr. EBITDA 38 mkr. • Lítið vöruflutningafyrirtæki með örugga vinnu. Ársvelta 45 mkr. EBITDA 15 mkr. Mjög hagstætt verð. • Rótgróið innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vörur fyrir sjávarútveg. Ársvelta 320 mkr. EBITDA 48 mkr. Lítið trésmíðaverkstæði. Vel tækjum búið. • Heildverslun með vinsælar gjafavörur. Ársvelta 70 mkr. • Rótgróin bílaleiga í eigin húsnæði. Ársvelta 120 mkr. EBITDA 30 mkr. • Narfeyrarstofa. Glæsilegt veitingahús í eigin húsnæði á besta stað í Stykkishólmi. Góður og vaxandi rekstur. Góður hagnaður. Sjá nánar á www.kontakt.is. • Rótgróin heildverslun með neytendavörur. Ársvelta 160 mkr. EBITDA 45 mkr. • Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 90 mkr. Engar skuldir. Mjög hagstætt dæmi fyrir fjárfesta. FJÖLMIÐLAR fjalla með reglulegu millibili um starfs- hætti barnavernd- arnefnda. Því miður einkennist umræðan um of af vanþekkingu og upphrópunum. Erfitt er að koma réttum upplýsingum og útskýringum á framfæri, því barnaverndarnefndir eru bundnar trúnaði um máls- atvik. Vinnsla barnaverndarmála er vandasöm og krefst faglegra og vandaðra vinnubragða. Ávallt er byggt á markmiði barnavernd- arlaga um „… að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð“. Í þessu sambandi skal „… styrkja fjölskyldur í uppeldis- hlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við“. Barnaverndarnefndir njóta að- stoðar sérhæfðs starfsfólks sem annast vinnslu málanna í umboði þeirra. Starfsfólkið býr í flestum tilfellum yfir mikilli reynslu við að aðstoða og styðja fjölskyldur. Yf- irleitt fer vinnan fram í góðri sam- vinnu við foreldra, teknar eru sameiginlegar ákvarðanir um stuðning við barnið og fjölskyld- una og mál farsællega til lykta leidd. Þó kemur því miður fyrir að foreldrar þiggja ekki stuðning, hann dugar ekki til eða að for- eldrar eru vanhæfir til að búa börnum sínum viðunandi uppeldis- skilyrði. Í slíkum tilfellum er þörf fyrir inngrip barnaverndarnefnda, sem geta beitt ýmsum úrræðum og er sú afdrifaríkasta að aðskilja barn og foreldri. Þessu úrræði er ekki beitt nema í ýtrustu neyð og er endanleg ákvörðun í höndum dóm- stóla, þannig að barnavernd- arnefndir geta ekki tekið barn af foreldrum upp á sitt eindæmi. Það er þungbær ákvörðun að leggja til að barn skuli tekið frá foreldrum sínum en getur samt sem áður verið nauðsynleg til að tryggja hagsmuni barnsins eins og ávallt er haft að leiðarljósi. Ríkar ástæður þurfa að vera fyrir hendi og öll möguleg stuðnings- úrræði fullreynd. Jákvæð umfjöllun um störf barnavernd- aryfirvalda er sjald- gæf. Það þykir ekki fréttnæmt þótt tekist hafi að aðstoða fjöl- skyldu sem átti við vanda að stríða. Þau mál sem koma í fjöl- miðla fjalla nær ein- ungis um það hvort barn hafi verið tekið af foreldrum eða ekki. Niðurstaðan er yfirleitt annaðhvort sú að farið hafi verið offari og barn fjarlægt að ósekju eða að mistök hafi átt sér stað ef barn var ekki fjarlægt. Barna- verndarnefndir og starfsmenn þeirra gera sem sagt mistök sama hvaða ákvörðun er tekin. Augljóst er að slík gagnrýni er hvorki mál- efnaleg né sanngjörn. Hafa verður í huga að þegar til greina kemur að taka barn af foreldrum eru engir góðir kostir til, það er vont að taka barnið og það er vont að gera það ekki. Síðustu vikurnar hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum dómur þar sem faðir var dæmdur fyrir misnotkun á ungri dóttur sinni. Tveimur árum áður hafði barna- verndarnefnd lagt til við dómstóla að faðirinn yrði sviptur forsjá barnsins. Dómstóllinn óskaði eftir foreldrahæfnismati óháðs sálfræð- ings. Taldi sálfræðingurinn föð- urinn hæfan til að sjá um barn sitt með viðeigandi stuðningi. Í ljósi mats sálfræðingsins og ráðgjafar lögmanns ákvað barna- verndarnefnd að falla frá málinu, enda þótti sýnt að það ynnist ekki fyrir dómi. Barnaverndarnefndin hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki látið reyna á niðurstöðu dómsins. Taka verður fram að ekki lá á þessum tíma fyrir grunur um kynferðislega misnotkun. Nefndin og starfsmenn hennar voru ósammála mati sálfræðings- ins, enda hefði málið aldrei verið lagt fyrir dómstóla nema öll stuðn- ingsúrræði hefðu verið fullreynd. Hins vegar þóttu hverfandi líkur á því að kröfur nefndarinnar um for- sjársviptingu næðu fram þar sem foreldrahæfnismat (sem dómstóll- inn hafði sjálfur talið nauðsynlegt að yrði aflað) var föður barnsins hagfellt. Störf barnaverndarnefnda eiga að sæta aðhaldi frá fjölmiðlum. En þeir mega ekki fara offari og ganga gegn hagsmunum þeirra sem þeir telja sig vera málsvara fyrir. Þegar fjölmiðlar birta við- kvæmar upplýsingar um málsatvik virðast þeir gleyma að þau snerta börn sem eiga framtíðina fyrir sér. Umfjöllun fjölmiðla getur fylgt börnunum, sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér, um ókomna tíð. Það er umhugsunarefni hvort barnaverndarlögin séu of for- eldravæn og gæti ekki nægilega vel að hagsmunum barnanna sem er þó markmið þeirra. Þó að gæta verði að réttindum foreldra við meðferð mála má það ekki vera á kostnað réttinda barnanna. Einnig er mögulegt að sönnunarbyrði barnaverndarnefnda sé of rík á kostnað hagsmuna barnanna. Velta má fyrir sér hvort for- eldrahæfnismat óháðs sálfræðings sé líklegt til að bæta áreiðanlegum upplýsingum við þá vitneskju sem fyrir liggur í máli sem barna- verndarnefnd hefur haft til um- fjöllunar um árabil. Við getum öll gert betur og það gildir ekki síður um barnaverndaryfirvöld en aðra. Þau geta til dæmis kynnt almenn- ingi betur tilkynningarskyldu til barnaverndarnefnda, því mik- ilvægt er að koma sem fyrst að málum barna í vanda. Umræðan í fjölmiðlum og þjóðfélaginu þarf að vera ábyrg, stuðla að bættum hag barna og eflingu starfs barna- verndarnefnda í þágu þeirra. Vel- ferð barna er á ábyrgð okkar allra. Barnavernd og fjölmiðlar Rannveig Ein- arsdóttir skrifar um barnaverndarmál » Það er þungbær ákvörðun að leggja til að barn skuli tekið frá foreldrum sínum en get- ur samt sem áður verið nauðsynleg til að tryggja hagsmuni barnsins eins og ávallt er haft að leiðarljósi. Rannveig Einarsdóttir Höfundur er félagsráðgjafi í Reykjanesbæ. @
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.