Morgunblaðið - 29.04.2009, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
KNOWING kl. 10:20 B.i. 12 ára
MONSTER VS ALIENS m. ísl. tali kl. 3:40 3D LEYFÐ
MONSTER VS ALIENS m. ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
CHIHUAHUA m. ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
X MEN - ORIGINS WOLVERING kl. 3:40 - 5:40D - 8D - 10:20DB.i. 14 ára DIGITAL
X MEN - ORIGINS WOLVERING kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára LÚXUS VIP
NEW IN TOWN kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
OBSERVE AND REPORT kl. 6 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
OBSERVE AND REPORT kl. 3:40 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
17 AGAIN kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
I LOVE YOU MAN Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára
THE UNBORN m. íslensku tali kl. 8:20 - 10.20 16 3D DIGTAL
OBSERVE AND REPORT kl. 6D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
MONSTERS VS ALIENS m. íslensku tali kl. 63D LEYFÐ
LET THE RIGHT ONE IN kl. 8 (gangnrýnandinn) B.i. 16 ára
THE BAADER MEINHOF COMPLEX kl. 5:40 (gangnrýnandinn) B.i. 16 ára
“MONSTERS VS ALIENS HEFUR
ÞETTA ÞVÍ ALLT. SKEMMTILEGA
SÖGU, FLOTT ÚTLIT, GÓÐAN
HÚMOR OG FERLEGA FLOTT
LEIKARAGENGI Í SVO MIKLU STUÐI
AÐ ÞETTA GAT EKKI KLIKKAÐ.”
- Þ.Þ., DV
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
FYRSTA
DREAMWORKS
ANIMATION
TEIKNIMYNDIN SEM
ER GERÐ SÉRSTAKLEGA
FYRIR ÞRÍVÍDD(3D).
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
OG ENSK
U TALI
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
HÚN ELSKAÐI
ALLT SEM MIAMI
HAFÐI UPPÁ AÐ
BJÓÐA
EN TIL ÞESS AÐ FÁ
STÖÐUHÆKKUNINA
SEM HANA HEFUR
ALLTAF DRAUMT UM
VERÐUR HÚN AÐ
FLYTJA Í MESTA
KRUMMASKUÐ Í
HEIMI!
L
L
L
L
L
16
L
ÍSLENSKI Evróvisjón-hópurinn
heldur til Moskvu á sunnudaginn.
Síðasta föstudag hittist hópurinn
heima hjá Maríu Björk til að hrista
sig saman og efla andann fyrir
keppnina.
„Þetta er frábær hópur og ég sé
fram á skemmtilega tíma í Moskvu.
Þarna er valinn maður í hverju
rúmi og nokkrir eðalgrínistar eins
og Hera Björk sem er með fyndnari
konum,“ segir Óskar Páll Sveins-
son, höfundur Evróvisjón-lagsins
„Is it true?“
Verið er að leggja lokahönd á at-
riðið þessa seinustu viku fyrir brott-
för. „Það má segja að atriðið sé
tilbúið, það er bara verið að fínstilla
raddir og annað,“ segir Óskar sem
er hæfilega bjartsýnn á gengi lags-
ins.
„Ég er búinn að heyra öll lögin í
okkar riðli og mér finnst við í fyrsta
lagi heppin með riðil, lögin í hinum
riðlinum eru sterkari, og ef að á að
dæma þetta eftir gæðum laganna
ættum við skilyrðislaust að komast
áfram en eins og við vitum fer nú
þessi keppni ekki eftir gæðum. Ég
tel okkur samt eiga raunhæfa
möguleika og við erum hæfilega
bjartsýn.“
Spurður hvort hann sé með eitt-
hvert tromp uppi í erminni til að
vekja enn frekari athygli á þeim í
Rússlandi segir Óskar að trompið
sé Jóhanna Guðrún. „Hún er meira
en nóg, hún er það flott á sviði og
góð að það gæti skemmt fyrir að
vera með of mikið húllumhæ í
kringum hana. Mér hefur fundist
frá fyrsta degi að fókusinn eigi að
vera á henni því hún er allt sem
þarf.“
Óskar ætlar að nýta ferðina til
Moskvu og skoða helstu ferða-
mannastaði borgarinnar í frítíma.
„Þetta er borg sem mér hefur
lengi langað að koma til og ég ætla
sannarlega að njóta þessara frídaga
sem við eigum inn á milli og skoða
allt það helsta sem hún hefur upp á
að bjóða.“
ingveldur@mbl.is
Stoltir Foreldrar Jóhönnu Guðrúnar eru að vonum ánægðir. Hópurinn Jasmine og Friðrik í forgrunni.
Höfundurinn Óskar Páll með Ölmu.
Morgunblaðið/Eggert
Partístuð María Björk stillir græjurnar.
Unnustinn Ólafur Ólafsson fer með
sinni heittelskuðu til Moskvu.
Trompið er Jóhanna Guðrún