Morgunblaðið - 29.04.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson og
Magnús Halldórsson
STJÓRNARFLOKKARNIR fara
sér í engu óðslega við gerð nýs
stjórnarsáttmála og liggur ekki fyr-
ir hvenær Alþingi kemur aftur sam-
an. Í gær voru skipaðir fleiri starfs-
hópar sem samþætta eiga sjónarmið
flokkanna í helstu málum.
Snemma dags kom í ljós að Evr-
ópumálin eru í höndum Dags B.
Eggertssonar og Össurar Skarp-
héðinssonar fyrir hönd Samfylk-
ingar, en Katrínar Jakobsdóttur og
Ögmundar Jónassonar fyrir VG. Sá
hópur hefur líklega flóknasta verk-
efnið, enda bilið einna mest þar og
ekki einfalt að koma ESB-málinu í
farveg sem báðir flokkar þola, þrátt
fyrir að vera á algerlega öndverðum
meiði í málinu. Meðal annars hvern-
ig stjórnvöld geti komið með trú-
verðugum hætti fram gagnvart
ESB í hugsanlegum aðildar-
viðræðum, en ekki sem klofin og
sundurlynd. Einnig er rætt um
hvernig verði staðið að hugsanlegri
umsókn og þá á hvaða stigi skuli
setja málið í dóm þjóðarinnar, ef
niðurstaðan verður sú að hefja við-
ræður við ESB.
Annar hópur ræðir um breytingar
á stjórnarráðinu, uppskiptingu
ráðuneyta og málefnasviða þeirra
og hugsanlega líka val á fólki í ráð-
herraembætti. Sá hópur er skipaður
þeim Margréti S. Björnsdóttur og
Hrannari B. Arnarssyni fyrir Sam-
fylkingu, en Drífu Snædal og Árna
Þór Sigurðssyni fyrir hönd VG.
Aðrir starfshópar eru um ríkis-
fjármál annars vegar og um at-
vinnu- og efnahagsmál hins vegar.
Fundað var í gærkvöldi um hvernig
skyldi skipa þá. Svo virðist sem ekki
hafi verið einfalt mál að velja fólk í
þessa starfshópa þar sem þingmenn
stjórnarflokka sem rætt var við í
gær vildu lítið tjá sig um þessi mál
og voru ekki allir á því að yfirleitt
ætti að gefa upp hverjir skipuðu
hópana. Þykir því hugsanlega varða
stöðu og virðingu manna innan
hvers flokks hvort þeir fái sæti í
starfshópi sem þessum.
Ríkisstjórnin fundaði í fyrsta sinn
eftir kosningar í gærmorgun og
byrjaði þá strax að móta á hvaða
grunni flokkarnir tveir gætu haldið
áfram samstarfi, með framtíðarsam-
starf í huga.
Seinnipartinn í gær héldu for-
ystumenn flokkanna áfram að funda
í Alþingishúsinu en þeim fundi lauk
skömmu fyrir hálfsjö í gær.
Í kjölfar hans kom þingflokkur
Vinstri grænna saman og ræddi um
þau mál sem forystumenn flokkanna
hafa rætt. Þá helst hvernig mögu-
legt yrði að sætta ólík sjónarmið
flokkanna um ESB.
ESB enn þrætuepli
Stjórnarflokkarnir hafa tekist á um ESB-mál í þrjá daga
Deilt um á hvaða stigi setja skuli málið í dóm þjóðarinnar
Morgunblaðið/Heiddi
Ræða saman Forystufólk Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ræddi saman á fundi í Alþingishúsinu seinni part-
inn í gær. Enn er deilt um Evrópusambandið og hvort stefna skuli að aðildarumsókn.
Viðræður stjórnarflokkanna hafa
öðru fremur miðast við að ná nið-
urstöðu sem báðir flokkar geta
sætt sig við varðandi ESB. For-
ystumenn flokkanna segjast hafa
nægan tíma.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa viðræður stjórnar-
flokkanna, er varða málamiðlun
um ESB, snúist um með hvaða
hætti verður hægt að leggja málið
í dóm þjóðarinnar, og þá á hvaða
stigi.
Meðal þess sem komið hefur til
umræðu í þingflokki VG er hvort
tvær þjóðaratkvæðagreiðslur eigi
að fara fram. Annars vegar um
hvort sækja skuli um aðild og svo
um hvort Ísland eigi að gerast aðili
að ESB verði það niðurstaða við-
ræðna.
Skiptar skoðanir hafa verið
um þessi mál innan þingflokk-
anna, eins og gefur að skilja,
enda stefnur flokkanna gjör-
ólíkar.
Fleiri hafa þó verið á móti
þessari leið innan VG en með
henni, en hjá Samfylkingunni er
stefnan sú að tvöföld þjóðar-
atkvæðagreiðsla sé óþörf.
Þar lítur forysta flokksins til
þess að umsókn um aðild að ESB
geti verið mikilvægasta bráða-
aðgerð við vanda íslensks efna-
hagslífs.
Deilt um þjóðaratkvæðagreiðslur
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
TVEIR karlmenn, á tvítugs- og
þrítugsaldri, sem ruddust inn á
heimili aldraðra hjóna á laug-
ardagskvöld, hótuðu þeim og
rændu fjármunum, voru í gær úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til 19.
maí.
Lögreglan krafðist gæsluvarð-
halds í fjórar vikur, en dómari
veitti þriggja vikna gæsluvarðhald
og var úrskurðurinn gerður á
grundvelli rannsóknar og almanna-
hagsmuna. En mennirnir tveir hafa
játað sök í málinu.
Gefa ekkert upp um
hugsanleg tengsl
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun hluti málsins hafa
upplýst þegar ræningjarnir, eða að-
ilar tengdir þeim, ætluðu að koma
hlutunum í verð. Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirmaður rannsókn-
ardeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu vill hvorki játa því
né neita. „Við látum eiginlega ekk-
ert meira frá okkur en nú þegar
hefur verið gert,“ segir Friðrik
Smári.
Lögregla hefur heldur ekkert
gefið upp um það hvort ræningj-
arnir, eða einstaklingar sem kunna
að hafa verið í vitorði með þeim,
tengist gömlu hjónunum á einhvern
hátt.
Hluti þýfisins fannst strax á
mánudag, en þjófarnir tóku með
sér úr húsi hjónanna upptökuvél,
fartölvu, peninga og skartgripi.
Undir kvöld í gær hafði ekki enn
tekist að finna fleiri hinna stolnu
muna.
Konunum sleppt
Þrjár konur voru einnig hand-
teknar vegna málsins og hefur
þeim öllum verið sleppt. Tvær
kvennanna voru handteknar, önnur
um hádegi og hin um miðjan dag á
mánudag, og játaði önnur þeirra
strax aðild að málinu. Hin konan er
nú, að sögn lögreglu, ekki talin
eiga neinn hlut að máli en óljóst
þótti á mánudag hver aðild hennar
væri. Þriðja konan, sem var hand-
tekin síðast, er hins vegar talin
tengjast málinu.
Yfirheyrslur og rannsókn hafa
annars gengið vel að sögn Friðriks
Smára. „Við teljum að málið sé
nánast að fullu upplýst og menn-
irnir komnir í gæsluvarðhald til 19.
maí,“ segir hann.
Gerðu tilraun
til að koma
þýfinu í verð
Úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. maí
Morgunblaðið/Golli
Í varðhaldi Mennirnir hafa verið
skipaðir í gæsluvarðhald.
Morgunblaðið/Golli
Hulinn Mennirnir huldu andlit sitt
er farið var með þá í héraðsdóm.
Í HNOTSKURN
»Ránið þykir með þeimhrottalegri sem framin
hafa verið hér í áratugi.
» Ábendingar frá almenn-ingi urðu til þess að ræn-
ingjarnir fundust og málið
leystist jafn hratt og raun ber
vitni.
»Mennirnir sem nú sitja ígæsluvarðhaldi eru á tví-
tugs- og þrítugsaldri. Þeir
hafa áður komið við sögu lög-
reglu vegna ofbeldis- og fíkni-
efnabrota.
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
TIL stendur að auglýsa eignir Nýsis fasteigna til sölu
á almennum markaði í næstu viku en félagið er gjald-
þrota. Þetta staðfesti Ástráður Haraldsson hrl., annar
tveggja skiptastjóra félagsins, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það verður svo kannað hvort nýir
rekstraraðilar eru tilbúnir til þess að koma að rekstr-
inum,“ sagði Ástráður.
Sjálfstæð rekstrafélög sem voru í eigu Nýsis fast-
eigna, Borgarhöllin hf. og Rekstrarfélag Egilshall-
arinnar ehf., hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta og er
þess nú freistað að rekstur Egilshallarinnar verði
tryggður með aðkomu nýrra rekstraraðila. Að sögn
Ástráðs er unnið að því að fá nýtt félag að rekstri Eg-
ilshallarinnar. „Vonandi tekst að fá aðila að rekstrinum
sem kunna til verka og geta haldið rekstrinum gang-
andi. Það er mikilvægt að reksturinn stöðvist ekki al-
veg og þess vegna er unnið að gerð skammtímasamn-
ings til þess að brúa bilið þangað til varanlegar
niðurstöður fást varðandi eignarhald á eignum,“ sagði
Ástráður.
Áhyggjuefni hvort einhver getur keypt
Samningur við nýja aðila er unninn í samráði við
stærsta lánardrottin að baki Nýsis fasteigna sem er
Landsbankinn. Þrotabúið hefur gert samning við nýtt
félag um yfirtöku á rekstrinum. Samningurinn er gerð-
ur í samráði við veðhafa sem er stærsti kröfuhafinn í
þrotabúið, Landsbankann. Í burðarliðnum er svo
samningur við Reykjavíkurborg um áframhaldandi
þjónustusamning. Til stendur að reyna að koma rekstri
í það far að tekjur séu nægilegar til þess að reka höll-
ina með hagnaði. Nýsir fasteignir á nokkurn fjölda
eigna, meðal annars opinberar byggingar. „Eina
áhyggjuefnið er að það geti enginn keypt þessar eignir
nú um stundir. En okkur er sama hvaðan gott kemur,“
sagði Ástráður. magnush@mbl.is
Eignir auglýstar til sölu