Morgunblaðið - 17.05.2009, Side 1

Morgunblaðið - 17.05.2009, Side 1
1 7. M A Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 132 . tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is TVÍTUGUR ÖKUÞÓR: KRISTJÁN EINAR KEPPIR Í FORMÚLU 3 LEBRON JAMES Góður, sterkur og mjúkur MYNDAALBÚM HEIÐU GENGISVÍSITALA EVRÓVISJÓN SUNNUDAGUR FEÐURNIR STÍGI FRAM»6GRÓÐAVON ÁN ÁHÆTTUNNAR»4 Miklar líkur eru á því að Kauphöll Íslands vísi niðurfellingu Teymis á skuldum stjórnenda félagsins til Fjármálaeftirlitsins (FME). Teymi tók yfir félög, og skuldir, í eigu forstjóra og fjármálastjóra félagsins í október síðastliðnum þegar Teymi var afskráð. Yfirtakan var hluti af kaupréttarsamningi við mennina sem tryggði að þeir gátu ekki tapað á hlutabréfa- kaupum sínum í félaginu. Skuldin, sem er við Ís- landsbanka, stóð í 829 milljónum króna í lok febrúar. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphall- arinnar, segist telja að málið, og önnur af sama meiði, þurfi frekari skoðun. „Það er langlíklegast að við munum einfaldlega vísa málinu áfram til frekari skoðunar vegna þess að Teymi er ekki lengur í samningssambandi við okkur eftir afskráningu. En við svona aðstæður eins og eru núna þá er Fjár- málaeftirlitið sá aðili sem við vísum málum til. Við teljum eðlilegast að þeir skoði þetta frekar en við, þar sem það er ekki hægt að fá botn í svona mál með öðrum hætti en að spyrjast fyrir um þau.“ Niðurfellingum á skuldum stjórnenda verður vísað til FME Þórður Friðjónsson Víða um lönd hefur lögum verið breytt og körlum sem gefa eða selja barnlaus- um hjónum sæði gert skylt að heimila barninu að fá upplýsingar um faðernið við 18 ára aldur. Þeir sem vilja að leyndinni sé aflétt vísa í hagsmuni barnsins, sem eigi rétt á að þekkja upp- runa sinn. Aðrir óttast að færri fáist til að gefa sæði ef börnin geti haft uppi á þeim síðar. Nokkur mál hafa komið til kasta dómstóla, t.d. í Bandaríkj- unum, þar sem tekist hefur verið á um nafnleynd sæð- isgjafa. Hvaða maður gaf sæðið? HVAÐA STYRKI FENGU FLOKKAR NIR? ENN VANTAR UP PLÝSINGAR UM FJÁRMÁL FL OKKANNA NOKKUR PÚSL E RU KOMIN EN HEILDARMYNDI N ER ÓLJÓS »28 NEYTENDAMÁLUM hefur vaxið fiskur um hrygg hérlendis á umliðn- um árum og eru þau loksins orðin sérstakur málaflokkur sem stjórn- völd huga að og almenningur og fyr- irtæki hugsa um. Þetta er álit Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda. „Þetta er svipað og jafnréttismálin áður. Lengi vel voru þau ekki „al- vöru“ málaflokkur en eftir ákveðinn þróunar- og baráttutíma urðu þau þverfagleg og allir hugsa um þau. Ég vona að sama máli gegni um neytendamálin,“ segir Gísli. Hann nefnir ákveðna atburði sem hafa aukið á vitund neytenda. „Í fyrsta lagi matarskattslækkunina í hittifyrra og ótta almennings um að kaupmenn myndu stinga henni í vas- ann. Í öðru lagi nefni ég efnahags- hrunið síðastliðið haust. Það getur ekki gert annað en auka vitund um mikilvægi þessa málaflokks enda þótt það hefði að ósekju mátt koma með minni kollsteypu.“ Kjör neytenda betri í ESB Nefnd á vegum forsætisráðuneyt- isins leitaði um daginn eftir sjón- armiðum talsmanns neytenda um það hvaða áhrif ESB-aðild kynni hugsanlega að hafa. Hann svaraði því til að þar sem við hefðum verið einskonar aukaaðilar að bandalaginu í fimmtán ár myndu réttindi neyt- enda ekki mikið breytast. „Efnislega eru þau nokkuð góð. Hins vegar tel ég að möguleikar til að hafa áhrif í Brussel í þágu neytenda myndu stórbatna og það sem er meira um vert, kjör neytenda myndu batna verulega. Það er óumdeilt af þeim sem til þekkja,“ segir Gísli. | 22 Mál neyt- enda loks á dagskrá Kjörin myndu batna við aðild að ESB Morgunblaðið/Eggert Talsmaður Gísli Tryggvason. Opið 13–17 Nýtt kortatímabil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.