Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 43
Auðlesið 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009
Lista-hátíð var sett á Kjarvals-stöðum
síðast-liðinn föstu-dag um leið og sýningin
Unu-hús og West 8th street var opnuð, með
verkum Nínu Tryggvadóttur og Louisu
Matthíasdóttur. Meira en 70 við-burðir koma
við sögu með þátt-töku um 500 inn-lendra og
er-lendra lista-manna. Við-burðirnir eru á
götum úti, í leik-húsum, sýningar-sölum,
óperu-húsum, lista-söfnum, galleríum, vitum,
heima í stofum og úti á landi.
Listahátíð í Reykjavík
Morgunblaðið/Golli
Ekkert lát er á bar-dögunum á Srí Lanka. Að
minnsta kosti fimm-tíu manns féllu og fjörutíu
særðust er sprengjur höfnuðu á eina
sjúkra-húsinu á átaka-svæðinu á norður-hluta
landsins á miðviku-dag. Fyrr í vikunni féllu 49
sjúklingar og einn starfs-maður í
sprengju-vörpu-árás á sjúkra-húsið.
Talið er að um 50.000 ó-breyttir borgarar
séu nú inni-króaðir á um þriggja fer-kíló-metra
svæði vegna átakanna. Gervi-hnatta-myndir
virðast sýna að ný-lega hafi verið beitt
sprengju-vörpum og öðrum þunga-vopnum á
svæðinu sem stjórn landsins hefur lýst
öruggt fyrir flótta-menn. Hundruð ó-breyttra
borgara eru sögð hafa látið lífið í átökum á
svæðinu undan-farna daga en alls er talið að
um 1.000 manns hafi fallið í á-tökum
stjórnar-hers og upp-reisnar-manna
tamíl-tígranna. Báðir aðilar saka hvorir aðra
um sprengju-árásir á ó-breytta borgara.
Harðir bar-dagar á Srí Lanka
Reuters
Sögu-leg stund var á
Bessa-stöðum síðast-liðinn
sunnu-dag þegar fyrsta
vinstristjórn með
þing-meirihluta hér á landi
kom saman í fyrsta sinn.
Sam-fylkingin og
Vinstri-hreyfingin – grænt
fram-boð mynda ríkis-
-stjórnina sem í sitja tólf
ráð-herrar og er hún önnur
stjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur
forsætis-ráðherra. Tveir
ráð-herrar létu af embætti og
fjórir bættust í hópinn.
Ríkis-stjórnin áætlar að
fækka ráðu-neytum í níu
síðar á kjör-tíma-bilinu. Þeir
ráð-herrar, sem sitja áfram
auk Jóhönnu eru Steingrímur
J. Sigfússon,
fjár-mála-ráð-herra, Össur
Skarphéðinsson,
utan-ríkis-ráð-herra, Katrín
Jakobsdóttir,
mennta-mála-ráðherra,
Ögmundur Jónasson,
heilbrigðis-ráð-herra og
Kristján L. Möller,
samgöngu-ráð-herra. Fjórir
ráð-herrar eru nýir: Árni Páll
Árnason félags- og
trygginga-mála-ráðherra, Jón
Bjarnason land-búnaðar- og
sjávar-útvegs-ráðherra,
Katrín Júlíusdóttir
iðnaðar-ráðherra og Svandís
Svavarsdóttir
umhverfis-ráðherra. Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir
er forseti Alþingis. Gylfi
Magnússon er
efnahags-mála-ráð-herra og
Ragna Árnadóttir
dóms-mála-ráðherra.
Ríkis-stjórnin kom saman
til fyrsta fundar síðast-liðinn
þriðju-dag á Akureyri.
Ný ríkis-stjórn fundaði á Akureyri
Minnst 10 milljarða króna
vantar í eigna-safn Sjóvár svo
að eigin-fjárhlut-fall félagsins
teljist já-kvætt, sam-kvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Sjóvá upp-fyllir því ekki
lág-marks-kröfur um
gjald-þol, sem er
nauð-synlegt eigið fé til að
geta starfað sem
trygginga-félag sam-kvæmt
lögum. Heimildir
Morgun-blaðsins herma að
slæma stöðu Sjóvár megi
rekja til þess að fyrr-verandi
eigandi félagsins, Milestone,
færði eignir inn í það á árinu
2007. Eignirnar, sem meðal
annars eru erlendar
fast-eignir og inn-lend
verð-bréf, voru færðar til
Sjóvár til að jafna út
viðskipta-skuld sem hafði
skapast á milli félaganna í
tengslum við kaup Milestone
á Moderna í Svíþjóð.
„Ekki er gert ráð fyrir að
endur-skipu-lagning Sjóvár
hafi áhrif á dag-legan rekstur
félagsins,“ segir meðal
annars í til-kynningu frá
skila-nefnd Glitnis.
Veð-settu
bóta-sjóð
Sjóvár
Svif-ryks-
mengun
Svif-ryks-mengun hefur
verið mikil í Reykjavík í
síðast-liðinni viku og hefur
fólki með of-næmi eða
alvarlega hjarta- eða
lungna-sjúkdóma verið
ráð-lagt að vera ekki úti í
grennd við miklar
umferðargötur. Þetta mikla
svif-ryk má rekja til
mengunar sem berst til
landsins með sterkum
vindum frá megin-landi
Evrópu og sand-foks af
Suður-landi. Þá hefur
óvenju-mikið óson verið í
andrúms-loftinu.
Lið Stjörnunnar úr Garðabæ
fer vel af stað á
Íslands-meistara-mótinu í
knattspyrnu. Liðið hefur
spilað tvo leiki á mótinu og
unnið þá báða. Stjarnan
vann Þrótt 6-0 í annarri
umferð en þetta er stærsti
sigur liðsins í deildinni frá
upphafi. Liðið er því í efsta
sæti deildarinnar.
Þessi góði árangur
Stjörnunnar er frekar
óvæntur því liðið vann sig
upp um deild á síðasta
sumri.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Störnunnar, var ánægður
eftir sigurinn á móti Þrótti.
Hann sagði að leikmenn
sínir væru ferskir. Liðið væri
sam-stillt og spilaði þéttan
varnar-leik.
„Þetta var mjög gaman,“
sagði Steinþór Þorsteinsson
Stjörnu-maður sem kosinn
var maður leiksins. Hann
sagðist staðráðinn í að
vinna næsta leik, en hann
er á móti ÍBV.
Auk Stjörnunnar eru KR,
Fylkir og Breiðablik með fullt
hús stiga.
Stjarnan
kemur á
óvart
Daníel Laxdal
Morgunblaðið/Kristinn