Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 20
20 Kappakstur
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009
Þess má geta að í hópi Carlin-
ökumanna eru Sebastian Vetter,
sem er einmitt uppáhaldsökumaður
Kristjáns Einars, Robert Kubica og
Jenson Button.
Umsögn yfirmanna Carlin eftir
æfingadagana í Pembrey í Wales
lagði grunninn að fjármögnun og
upphafi ferilsins. Þar sagði meðal
annars: „Við höfum prófað og þjálfað
marga ökumenn sem hafa orðið
keppendur í Formúlu 1 og Kristján
Einar kemur vel út í samanburði við
þá bestu.“
Sjö mánuðum síðar hafði Kristján
Einar „æft“ sig upp um mörg þrep í
alþjóðlegum kappakstri og var kom-
inn á ráslínuna í hinni bresku Form-
úlu 3.
Skorti keppnisreynslu
Hlutirnir gerðust því hratt en til
undirbúnings fór Kristján Einar í
æfingakeppnir á Nýja-Sjálandi.
„Við vissum að ég hefði hraðann
en ég kunni í raun ekkert að keyra í
kappakstri. Ég man þegar ég var í
fyrsta sinn á ráslínunni á Nýja-
Sjálandi og hugsaði: Hvað er ég bú-
inn að koma mér út í? Adrenalín- og
tilfinningaflæðið var á fullu. Þetta er
eitthvað sem þú þarft að hafa stjórn
á fyrir keppni. Líka að venjast því að
vera fyrir framan svona marga
áhorfendur, læra hvernig koma eigi
fram við dómara, aðra keppendur og
fjölmiðla. Þetta er nokkuð sem ég
hefði átt að læra í einhverjum af
þessum byrjunarformúlum, sem ég
keppti aldrei í eins og hinir strák-
arnir.“
En Kristján Einar lét vaða og end-
aði á palli á Monza á sinni þriðju
keppnishelgi, sem er lygilegur
árangur, en þarna kom samanburð-
urinn við fyrrnefnda jamaíska bob-
sleðaliðið til dæmis upp.
Hann segir þetta hafa verið magn-
aða upplifun og jákvæðu stundirnar
hafi verið margar. Hin hliðin á pen-
ingnum hefur líka sýnt sig.
„Ég er reynslulaus ökumaður en
snöggur engu að síður og geri ekki
mikið af mistökum,“ segir Kristján
Einar sem rifjar upp „ömurlega
keppni í Brands Hatch í Englandi í
fyrra. Þar gerði ég öll reynsluleys-
ismistök sem hægt var að gera í
einu. Um kvöldið fór ég að borða á
veitingastað sem var skreyttur slag-
orðum og málsháttum og settist við
borð þar sem áletrun blasti við mér:
„Reynsla er eitthvað sem þú öðlast,
rétt eftir að þú þarfnaðist hennar
mest.“ Þetta átti svo vel við og ég
hugsaði með mér að ég myndi þá
ekki gera öll þessi mistök aftur.“
Baráttan um peningana
Þrátt fyrir að stuðningurinn frá
fjölskyldunni hafi verið ómetanlegur
þarf meira til, en mótorsportið er
dýrt og nauðsynlegt er að fá styrkt-
araðila. Margir aðilar hafa komið þar
að en sá sem ruddi brautina fyrir
Kristján Einar í kappakstrinum var
Róbert Wessman og SALT Invest-
ments. Kristján Einar hefur kynnt
sig sem The Icelander og var þannig
merktur í bak og fyrir. Róðurinn
þyngdist hjá Kristjáni Einari eftir
bankahrunið en hann segir að það að
vera Íslendingur hafi „ekki verið al-
veg það svalasta“ í Bretlandi á þess-
um tíma. Milliríkjadeilur Breta og
Íslendinga og bankakreppan gerðu
honum lífið leitt.
„Eins og að standa á brautinni tíu
mínútum fyrir keppni og vita ekki
hvort ég gæti keppt vegna þess að
greiðslur fyrir dekkjum eða ein-
hverju álíka væru kannski ekki
komnar í gegn. Þarna var ég gjör-
samlega að brotna niður en þurfti
samt að gera mig kláran.“
Honum var boðið annað ár hjá
Carlin en sá strax fram á að geta
ekki tekið því vegna þess að erfitt
yrði að finna styrktaraðila í Bret-
landi. Ákveðið var að líta til Banda-
ríkjanna og var Kristján Einar kall-
aður til fundar við Newman
Wachs-kappakstursliðið í Bandaríkj-
unum vegna Atlantic-mótarað-
arinnar. Hann var valinn einn af
fjórum í prófanir en það val reyndist
vera síðasta ákvörðun stofnanda
liðsins, Pauls Newmans, í kappakstri
áður en hann lést. Þetta féll um sjálft
sig eftir fimm mánaða vinnu þegar
styrktaraðilinn hætti við á síðustu
stundu. „Ég var byrjaður að leita að
íbúð í Chicago,“ segir Kristján Ein-
ar, sem þó lét ekki deigan síga. „Það
hefur enn ekkert neikvætt komið
fyrir án þess að það hafi orðið upp-
hafið að einhverju miklu jákvæðara.“
Þegar áform um kappakstur í
Bandaríkjunum gengu ekki upp
vegna efnahagskreppunnar frétti
Jalopnik.com, sem er víðlesinn
bandarískur bílafréttavefur, af mál-
inu og fjallaði um það í nokkrum
fréttum. Í framhaldinu var stofnuð
Facebook-síða stuðningsmanna sem
á þriðja þúsund manns eru skráðir á
en hún ber nafnið „I’m supporting
Kristján Einar, The Icelander“.
Kominn til Evrópu
Niðurstaðan varð sú að Kristján
Einar fékk sæti í breska Team West-
Tec í Opnu evrópsku F3.
„Þessir seinustu mánuðir hjá mér
hafa verið einhverjir þeir andlega
erfiðustu sem ég hef gengið í gegn-
um. Ég vissi bara viku fyrir keppn-
ina í Valencia að ég væri að fara að
keppa og þá var ég búinn að missa af
öllu æfingatímabilinu. Ég náði einni
æfingu í Belgíu fyrir keppnina.“
Honum var boðið sæti sem liðið
fjármagnar að stóru leyti en Krist-
ján Einar og félagar þurfa að fjár-
magna afganginn. Erfitt er að fá
styrktaraðila sem stendur en hann
vonast eftir því að þetta gangi upp.
Hann segir að það sé ekki nóg að
vera góður að keyra til þess að ná
langt í kappakstri. „Ég þarf líka að
vera söluvara til þess að geta komist
eitthvað áfram í kappakstri.“
Hraðinn er mikill í kappakstrinum
en Kristján Einar er ekki líf-
hræddur. „Ég er enginn ofurhugi en
væri ekkert í þessu ef ég hefði
áhyggjur af lífi mínu í hverri keppni.
Það deyja fleiri í golfi á ári en í kapp-
akstri!“
Tíma tekur líka að aðlagast nýju
Góð stund Ásamt hinum þekkta ökumanni Nigel Mansell. Nýja liðið Team West-Tec. Kristján Einar er einn í bílnum en liðið er samt fjölmennt.
Nýr bíll og nýtt fólk Handtökin eru mörg sem fylgja kappakstrinum, bæði hjá ökumanni og liðsfélögunum hjá breska liðinu Team West-Tec.
Vestanhafs Prufa fyrir Newman Wachs-liðið.
Á þeim 23 mánuðum sem eru liðnir frá því að
Kristján Einar keyrði fyrst kappakstursbíl í Pem-
brey hefur hann:
Æft og keppt á sjö mismunandi tegundum kapp-
akstursbíla: Formúlu BMW, Formúlu Renault,
Toyota Racing Series, Bresku F3, Atlantic Champ-
ionship, Formúlu Le Mans og Opnu evrópsku
Formúlu 3-mótaröðinni.
Æft og keppt á sautján kappakst-
ursbrautum í átta löndum og þremur
heimsálfum.
Ekið rúmlega 11.200 kílómetra á
kappakstursbílum á æfingum og í
keppnum.
Ekið rúmlega 71.000 kílómetra á
venjulegum bílum og venjulegum veg-
um á leiðinni til og frá kappakst-
ursbrautum vegna æfinga og keppna.
Sest 54 sinnum upp í flugvél til að
fljúga til og frá keppnum og æfingum.
Hann keppti fyrir framan fæsta áhorf-
endur á hinni afskekktu Croft-braut í
Norður-Englandi fyrir um 3.000 áhorfendur og
fyrir framan flesta áhorfendur í Spa í Belgíu þar
um 300.000 manns fylgdust með kappakstrinum.
Mesti hraði sem Kristján Einar hefur náð á
kappakstursbíl var 299 km/klst á Formúlu 1-
brautinni á Monza, þegar hann fór í fyrsta sinn á
verðlaunapall í F3.
300.000 MANNS HORFÐU Á