Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 22
22 Neytendamál
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009
!!!" #$"%&'
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
É
g líki neytendum oft
við gangandi vegfar-
endur. Það þarf að
vernda þá betur í
umferðinni en fólk á
vélknúnum ökutækjum sem í þess-
ari yfirfærðu merkingu eru at-
vinnurekendur. Staða neytenda og
atvinnurekenda er ekki jöfn,
ábyrgð atvinnurekenda er meiri en
neytenda. Það þýðir ekkert fyrir
gangandi vegfarendur að hugsa:
„Ég á réttinn“ og ganga yfir göt-
una á gangbraut ef ökumenn virða
ekki rétt hinna gangandi. Það er
lítið gagn af réttinum ef búið er að
aka yfir mann.“
Höfundur þessarar beittu sam-
líkingar er Gísli Tryggvason tals-
maður neytenda en um þessar
mundir eru fjögur ár frá því emb-
ætti hans var sett á laggirnar með
lögum. Tveimur mánuðum síðar
tók Gísli til starfa og hefur síðan
orðið einskonar holdgervingur bar-
áttunnar fyrir bættum réttindum
neytenda í þessu landi. Baráttu
sem lengi hafði lítinn hljómgrunn.
Sýn Gísla er skýr: „Efnisrétt-
urinn er til staðar en hann dugar
ekki alltaf til. Þess vegna þarf að-
hald. Mitt verkefni er að finna
jafnvægi milli hagsmuna og rétt-
inda neytenda og atvinnulífsins.
Draga úr slagsíðunni sem löngum
hefur verið mikil.“
Hrifnastur af norska módelinu
– Hefur róðurinn verið þyngri
en þú áttir von á?
„Ekki endilega. Þetta hefur ver-
ið svipaður róður og ég átti von á.
Ég reiknaði með að það yrði
spennandi að móta nýtt embætti
og skapa vitund um neytendamál.
Það markmið hefur vonandi náðst.
Ég held líka að ég hafi komið
ágætlega undirbúinn til leiks, hafði
starfað bæði á fjölmiðlum og í
hagsmunagæslu fyrir launafólk,
þannig ég vissi nokkurn veginn að
hverju ég gekk.“
– Hvað varð til þess að emb-
ættið var sett á laggirnar?
„Það voru einkum áhrif frá öðr-
um – ekki síst norrænum – ríkjum.
Við erum oft á eftir hinum Norð-
urlöndunum en þar hafa sambæri-
leg embætti verið starfrækt í
kringum þrjá áratugi. Efnislega er
löggjöfin svipuð og á hinum Norð-
urlöndunum en mönnum þótti
ástæða til að styrkja aðhaldið og
eftirfylgnina. Norrænu módelin
eru misjöfn að gerð en persónu-
lega er ég hrifnastur af því
norska. Þar er umboðsmaður neyt-
enda með öflugt starfslið og vald-
heimildir.“
– Eru völd embættisins af
skornum skammti hér heima?
„Já. Ég nýt góðs formlegs sjálf-
stæðis þó að skerpa mætti á því en
það skortir svolítið á hin raunveru-
legu úrræði, þ.e. valdheimildirnar.
Eina valdið sem ég hef er að krefj-
ast upplýsinga en ég hef ekki oft
þurft að beita því. Yfirleitt fæ ég
þær upplýsingar sem ég bið um
hjá stofnunum og fyrirtækjum.
Það hefur þó komið fyrir að ég
hafi þurft að láta í valdið skína.
Það valdaleysi háir mér því ekki.“
– Þú beinir sem sagt fyrst og
fremst tilmælum út í samfélagið?
„Já, hlutverk mitt er fyrst og
fremst að gera tilmæli til úrbóta.
Ég eyði fyrir vikið meira púðri í
að senda frá mér tilmæli til fyr-
irtækja um að bæta verklag í
framtíðinni fremur en að amast við
því sem orðið er. En fylgi menn
ekki tilmælunum hef ég fátt annað
en pennann að vopni. Það hefur
samt virkað ágætlega. Fyrirtæki
og hagsmunasamtök fara yfirleitt
að tillögum mínum. Sumir segja
líka að penninn sé beittara vopn
en sverðið.“
Heppilegt að hafa andlit
– Háir smæð embættisins þér?
Þú ert eini starfsmaður þess.
„Smæðin getur vissulega verið
veikleiki en ég hef reynt að nota
hana sem styrkleika með því að
sýna snerpu og koma mér upp
óformlegu neti tengiliða og ráð-
gjafa víðsvegar um samfélagið. Ég
er mjög duglegur að leita ráða og
hafa samráð við ýmsa aðila. Ég
neita því ekki að fjárheimildirnar
mættu vera rýmri en ég hef ekki
eytt kröftum í að kvarta undan
því. Stoðþjónustu fæ ég hjá Neyt-
endastofu þar sem ég hef aðsetur
samkvæmt lögum.“
– Þú hefur stundum verið gagn-
rýndur fyrir að persónugera emb-
ættið um of.
„Það er rétt og ég hef reynt að
taka eðlilegt tillit til þeirrar gagn-
rýni. Það liggur hins vegar í hlut-
arins eðli að meðan maður er eini
starfsmaður embættisins er erfitt
að komast hjá þessu. Sumir hafa
líka bent á, að það sé kostur að
það sé andlit á neytendamálunum
fyrir hönd hins opinbera. Enda
þótt ég hafi ekki mikil völd hef ég
vonandi einhver áhrif. Það þarf því
alls ekki að vera galli að andlit sé
sett á þennan málaflokk.“
– Því hefur lengi verið haldið
fram um okkur Íslendinga að við
séum lélegir og illa upplýstir neyt-
endur. Er það að breytast?
„Tvímælalaust. Þessum mála-
flokki hefur vaxið fiskur um hrygg
á umliðnum árum. Neytendamál
eru loksins orðin sérstakur mála-
flokkur sem stjórnvöld huga að og
almenningur og fyrirtæki hugsa
um. Þetta er svipað og jafnrétt-
ismálin áður. Lengi vel voru þau
ekki „alvöru“ málaflokkur en eftir
ákveðinn þróunar- og baráttutíma
urðu þau þverfagleg og allir hugsa
um þau. Ég vona að sama máli
gegni um neytendamálin.“
Penninn getur verið beittari
Morgunblaðið/Eggert
Talsmaður „Hlutverk mitt er fyrst og fremst að gera tilmæli til úrbóta. Ég eyði fyrir vikið meira púðri í að senda frá
mér tilmæli til fyrirtækja um að bæta verklag í framtíðinni fremur en að amast við því sem orðið er. En fylgi menn
ekki tilmælunum hef ég fátt annað en pennann að vopni. Það hefur samt virkað ágætlega. Fyrirtæki og hagsmuna-
samtök fara yfirleitt að tillögum mínum,“ segir Gísli Tryggvason talsmaður neytenda.
Sú var tíðin að neytendamál mættu afgangi á
Íslandi. Það hefur breyst. Liður í þeirri þróun
var að koma á fót embætti talsmanns neyt-
enda sem Gísli Tryggvason hefur nú gegnt í
tæp fjögur ár. Hann er nokkuð ánægður með
afraksturinn – tekist hafi að skapa vitund um
embættið – en vildi að ósekju hafa meiri vald-
heimildir og meira fé úr að moða. „Nú held
ég að efndir verði að fylgja orðum.“
TALSMAÐUR
NEYTENDA
Stendur vörð um hagsmuni
og réttindi neytenda.
Stuðlar að aukinni neyt-
endavernd.
Gefur út rökstuddar álits-
gerðir.
Gerir tillögur um úrbætur.
Kynnir reglur um neytenda-
mál.
Leiðbeinir um meðferð
ágreiningsmála.
Bregst við brotum gegn rétt-
indum og hagsmunum neyt-
enda.
Er óháður fyrirmælum frá
öðrum.
Er með heimasíðuna tals-
madur.is. Leiðarkerfi neyt-
enda má nálgast á slóðinni
neytandi.is.