Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 55
Menning 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009
Álfheimar 74
Sími: 414 4000
hreyfing@hreyfing.is
www.hreyfing.is
21 DAGUR
ÁRANGUR & DEKUR
Forskot í átt að nýjum og betri lífsstíl
>> Þjálfun 4x í viku
Sérhannað æfingakerfi sem miðar að því að „ögra“ líkamanum
að komast út úr stöðnun og tryggja að þú komist í þitt
allra besta form
>> Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
>> Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti
og gufuböðum
>> Dagleg hvatning, fróðleikur og uppskriftir í tölvupósti
frá Ágústu Johnson
>> Sérstakt mataræði sem er byggt upp á sama hátt og vinsælt
er hjá Hollywood stjörnum sem þurfa að koma sér í toppform
fyrir rauða dregilinn – við tryggjum að það er heilsusamlegt
og skynsamlegt!
>> Mælingar – vigtun og fitumælingar – fyrir og eftir
Fljótandi djúpslökun –Sannkölluð draumameðferð sem felst í djúpri
slökun í vatni með náttúrulegri Blue Lagoon saltlausn. Slökunin er talin
jafnast á við allt að átta tíma svefn. Tilvalin endurnærandi meðferð
fyrir þá sem þjást af streitu og þreytu.
Kísil leirmeðferð – Í þessari einstöku meðferð berðu hvítan kísil á
húðina og slakar á í 20 mínútur í sérhönnuðum leirgufuklefa. Veitir
húðinni heilbrigðan ljóma og fallegt yfirbragð.
Húðgreining og vörukynning á BlueLagoon húðvörum
–Snyrtifræðingur aðstoðar þig við að finna út hvað hentar húðinni
þinni best til að vernda hana og ná fram því besta í henni.
Auk þess er 10% afsláttur af öllum meðferðum á meðan á námskeiðinu stendur.
Verð: 29.900 kr.
[Heildarverðmæti námskeiðsins 35.800 kr.]
Námskeiðið hefst 25. maí.
Þjálfun og mataræði tekið í gegn
Innifalið í námskeiðinu:
Glæsilegur dekurpakki í Blue Lagoon spa
Við erum stolt og ánægð yfir
framúrskarandi dómum frá
þátttakendum á námskeiðunum
Allar upplýsingar á www.hreyfing.is
97,7% segja námskeiðið hafa upp-
fyllt eða farið fram úr væntingum
þeirra.
99,5% segja að þær/þeir myndu
mæla með námskeiðinu við aðra.
Átaksnámskeið Hreyfingar hafa aldrei verið betri.
Leiðbeinendur sem búa yfir áralangri reynslu hafa
fengið sérþjálfun í að leiða hin nýju og árangursríku
námskeið sem skila þér pottþéttum árangri.
Veldu námskeið sem hentar þér:
Árangur
Árangur / FRAMHALD
Árangur / PÍLATES
Árangur / KARLAR
ÁRANGUR
Ný 4ra vikna námskeið
hefjast 2. juní
Verð: 22.900 kr.
Hann bendir á skóna mína.Þeir eru brúnir, ekki svart-ir. Það hlaut að koma að
því að snobbaða Cannes léti á sér
kræla, maður hlaut að verða fyrir
fatafasisma á endanum – þrátt fyrir
að vera í splunkunýjum jakkafötum
og með fagurrautt bindi. Og þeir
eru ekki einu sinni samkvæmir
sjálfum sér, sem skýrir af hverju ég
fór áhyggjulaus í þessari múnder-
ingu af stað eftir að hafa leitað ráða
hjá mér reyndari Cannes-förum.
Fyrsti vörðurinn gerði athugasemd-
ir við bindið (þess ber að geta að um
það bil helmingur allra karlmanna á
svæðinu var með bindi) og heimtaði
svarta slaufu – en sagði að slíkt
hálstau mætti nálgast á næstu
stoppistöð. Þeir voru hins vegar
fullkomlega sáttir við bindið mitt en
vildu svarta skó. Hversu ljúft það
hlýtur að vera að vera kona og geta
mætt í kjól í hvaða lit sem er og vera
samt hleypt í bíó – en kannski er
bara mátulegt á okkur karlana að
það megi einhvers staðar finna
ósanngjarna misnotkun í þessa átt-
ina.
Þessi ekki-bíóferð kristallaðiágætlega þennan þriðja dag í
Cannes, sem ólíkt tveimur þeim
fyrstu var ekki uppfullur af góðum
bíómyndum. Mér tókst meira að
segja að finna vondan matsölustað
sem er meira en að segja það hér í
Cannes. Og Michel Gondry, einn af
mínum uppáhaldsleikstjórum, brást
illilega. Þyrnir í hjartanu (L’épine
dans le coeur) fjallar um frænku
hans Suzette, sem var grunnskóla-
kennari í þrjátíu ár. Gondry leitar
uppi gamlar myndir og upptökur,
tekur viðtöl og málar mynd af
frænkunni en sú mynd er aldrei
nógu forvitnileg, þótt sú gamla virð-
ist vera það, og hefði aldrei átt að
yfirgefa fjölskylduboðið. Líklega
orðaði gagnrýnandi sem var á svæð-
inu, Mike D’Angelo, þetta best: „I
have half a dozen perfectly nice
aunts who’ve led happy nondescript
lives. Be glad I have no camera.“
Ang Lee gerði svo það sem hanngat til þess að bjarga deginum
og tókst það svona hálfpartinn. En
þegar maður sér tvo magnaða leik-
stjóra misstíga sig svona illilega
langar mann helst að stofna sál-
fræðiþjónustu fyrir kvikmyndaleik-
stjóra. Meðferðin myndi einfaldlega
byrja svona: „Hey, við vitum að þú
getur gert frábærar bíómyndir – af
hverju ertu eiginlega í þessu rugli?“
Þessi þjónusta hefði að sjálfsögðu
þann tilgang einann að fá þá til að
gera góðar bíómyndir aftur, ef þeir
verða að vera þunglyndir til þess
verður bara að hafa það – en mig
grunar hins vegar að flestir gleðjist
þeir frekar en hitt ef myndirnar
batna. asgeirhi@mbl.is
Handan rauða dregilsins
»Hey, við vitum að þúgetur gert frábærar
bíómyndir – af hverju ertu
eiginlega í þessu rugli?
Reuters
Svalur Quentin Tarantino á rauða
dreglinum fyrir frumsýningu á
myndinni Bak-Jwi.
FRÁ CANNES
Ásgeir H Ingólfsson
Morgunblaðið kynnir þær mynd-
ir sem keppa um Gullpálmann í
Cannes. Nú er komið að næstu
tveimur.
Taking Woodstock
e. Ang Lee
Ang Lee er
duglegur að
hoppa á milli
kvikmynda-
forma og hér
er hann að
gera Cameron Crowe-mynd. Og
það tekst honum engan veginn,
hippisminn er hvorki sérstak-
lega sannfærandi né heillandi
nema rétt í byrjun. En Ang Lee
er hins vegar meistari í sögum
af brotnum, bækluðum og
skrítnum fjölskyldum og ein slík
leynist í Taking Woodstock og
væri efni í miklu betri bíómynd
ef hipparnir væru ekki alltaf að
trufla þau.
Bright Star
e. Jane Campion
Skærustu
stjörnurnar
brenna upp
hraðast og
þessi mynd
Jane Camp-
ion gerist ár-
ið 1818 þeg-
ar ennþá var
einhver raunveruleiki í klisjunni
um ungskáldið sem tærðist upp
af berklum eða öðrum ófögnuði.
Það voru örlög enska sonnett-
uskáldsins Johns Keats, sem
lifði aldrei 26. afmælisdaginn,
en í myndinni rifjar Campion
upp kynni Keats og tískuhönn-
uðarins Fanny Browne.
Keppa um Gullpálmann