Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009
liði og aðstæðum.
„Mótorinn, bíllinn og
ekki síst dekkin eru
allt öðruvísi en ég er
vanur. Ég sé því
ekki fram á að vera
kominn í toppform
fyrr en á þriðju
keppnishelginni því
þetta eru allt nýjar
brautir.“
Kristján Einar
býr núna á Íslandi
og ferðast héðan til
þess að keppa og
æfa. Á keppn-
ishelgum er æfing á
föstudegi, tímataka á laugardegi og
keppt á sunnudegi.
„Ég er með allt of fáa kílómetra
undir beltinu miðað við þá sem ég er
að keppa á móti. Það hamlar mér
auðvitað mikið að vera frá Íslandi að
því leyti að það er engin kappakst-
ursbraut hérna,“ segir Kristján Ein-
ar, sem keyrir þó körtuna sína reglu-
lega og segir það gott fyrir líkama og
sál. „Það er góð þjálfun fyrir hálsinn,
sem þarf að slást við margfalda lík-
amsþyngd í keppnum, og mikil af-
slöppun fólgin í því fyrir mig þegar
ég er ekki búinn að keyra lengi. Ég
er með ADHD eins og næstum allir
ökumenn,“ segir Kristján Einar,
sem segist ganga vel í því námi sem
hann hefur áhuga á og einbeitir sér
að. Með akstrinum er hann í námi við
Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Hann
segir alla stærðfræðikunnáttu
hjálpa. „Mótorsport gengur út á rök-
hugsun og allir ökumenn eru góðir í
raungreinum.“
Alls enginn leikur
Hann segir að mikil ástríða og
vinna fjölda fólks liggi að baki
árangri sínum. „Maður er vakinn og
sofinn yfir þessu. Við erum með fólk
út um allt með öll net úti til þess að
reyna að láta þetta gerast,“ segir
Kristján Einar, sem stundum hefur
heyrt það að hann sé „bara heppinn“
og „fái að leika sér“. Svarið við því
liggur kannski í móttóinu hans, sem
er: „Því harðar sem þú leggur að
þér, því heppnari verður þú.“
Kristján Einar
segir feril öku-
mannsins ekki vera
langan eða til um
fertugs. Formúla 1
er takmark en
stærsti draumur
hans er að vinna Le
Mans 24, liðakeppni
sem tekur sólar-
hring og snýst um
úthald og þol. „Ég er
hávaxinn og þannig
byggður að ég hef
gott akstursúthald.
Það er helsta tak-
mark mitt í lífinu að
vinna þennan kappakstur.“
Lífsstíll ökumannsins er óvenju-
legur, byggist mikið á ferðalögum og
getur verið einmanalegur. Kapp-
akstur er í grunninn einstaklings-
íþrótt, þótt hann byggist á samvinnu
margra liðsfélaga. „En þegar ég er
kominn út á brautina hleypi ég liðs-
félögum mínum ekkert fram úr
mér!“
Kristján Einar á kærustu heima á
Íslandi, Völu Laufeyju Þráinsdóttur.
„Ég er oft spurður af hverju í ósköp-
unum ég sé ekki á lausu því ég er að
ferðast um heiminn og það eru alltaf
grúppíur á brautunum. En það er
nógu mikil spenna í lífi mínu þótt
hún sé ekki á þessu sviði líka. Mér
finnst svo gott að geta komið heim til
hennar.“
Vinur Kristjáns Einars, Unnar
Helgi Daníelsson, hefur ferðast mik-
ið með honum en hann er að taka
upp heimildarmynd um hann. „Það
hefur verið gaman að hafa hann með.
Þetta getur orðið einmanalegur
heimur.“
Kristjáni Einari finnst hann
heppnasti tvítugi Íslendingurinn í
heiminum. „Ég hef fengið tækifæri
til að gera svo mikið og upplifa
margt. Ég hef tekið út svo mikinn
einstaklingsþroska síðan ég byrjaði
og finnst ég hafa verið krakki þegar
ég horfi til baka ekki meira en rúm-
lega eitt ár! Þessi heimur er svo
krefjandi. Ég þurfti að standa mig,
hætta að vera unglingur og verða
ungur maður.“
Carlin-félagar Kristján Einar, Brendon Hartley og Jamie Alquersuari.
‘‘FYRIR MIG AÐ FARABEINT ÚR 32 HEST-AFLA KÖRTU UPP Í200 HESTAFLA
FORMÚLU 3-BÍL
VAR SVAKALEGA
STÓRT STÖKK.
Íslensk verðbréf hf. I Strandgötu 3 I 600 Akureyri
Sími: 460 4700 I iv@iv.is I www.iv.is
Íslensk verðbréf eru sjálfstætt, sérhæft eignastýringarfyrirtæki
sem hefur þjónað einstaklingum og fagfjárfestum í meira en tuttugu ár
og býr að mikilli reynslu og þekkingu á verðbréfamarkaði.
Leitar þú að traustum og óháðum aðila til að ávaxta fjármuni þína?
Kynntu þér málið á iv.is eða talaðu við sérfræðinga okkar í síma 460 4700.
Við stöndum vörð
um fjármuni þína
össur hf. óskar eftir snyrtilegri íbúð til leigu
frá og með 1. júlí í Árbæjarhverfi, Kringluhverfi eða miðbænum.
Íbúðin leigist í am.k. 2 ár, án húsgagna og þarf að vera með
3 svefnherbergi og sér þvottaaðstöðu á hæð.
Lýsing á íbúð ásamt myndum og upplýsingum
um leigukjör sendist til mottaka@ossur.com
fyrir 24. maí n.k.
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum,
Maður lifandi, Blómaval, Á grænni
grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa
og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík,
Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin,
Hagkaup, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykja-
víkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek
Vesturlands, Barnaverslanir og sjálfstætt
starfandi apótek um allt land.
Ekki gleyma að drekka Birkisafann
frá
Safinn er
vatnslosandi
Safinn virkar vel á eðlilega
úthreinsun líkamans
Lífrænt ræktaður, án aukaefna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr
líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað
Velkomin að skoða
www.weleda.is