Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 45
Velvakandi 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009
Grettir
MAÐUR HEFÐI
HALDIÐ AÐ ÞAÐ KÆMU
LEIÐBEININGAR MEÐ
HEFTURUM
Kalvin & Hobbes
ÉG ER ORÐINN
ÓSÝNILEGUR ÉG HEF ALGJÖRT FRELSI
TIL AÐ GERA HVAÐ
SEM ÉG VIL
ÉG GET FRAMIÐ HVAÐA
GLÆP SEM ER
KALVIN, HVAÐ
ERTU AÐ GERA
BERRASSAÐUR
UPPI Á STÓL?
Kalvin & Hobbes
SJÁÐU!
MEXÍKANAHATTUR
NÚ ER ÉG
SVALUR ÞAÐ ER EKKERT SVALT VIÐ
AÐ VERA MEÐ MEXÍKANAHATT!
HVERNIG DETTUR ÞÉR ÞESSI
VITLEYSA Í HUG?
HVÍ
AÐ VERA
SVALUR
EF
MAÐUR
MÁ EKKI
VERA
MEÐ
HATT?
Kalvin & Hobbes
NÚ ER ÉG ORÐINN VIRKI-
LEGA SVALUR! SJÁÐU BARA
ÞESSAR STÓRU, GULU TÖLUR
ÞÚ ERT EKKI SVALUR. ÞÚ
LÍTUR ÚT EINS OG FÁVITI!
KANNSKI ER ÞETTA NÝ TÍSKA
KANNSKI
ERT ÞÚ
HEIMSKUR
SJÁÐU,
KALVIN! ÉG
FANN MIKKA
MÚS BUXUR
Hrólfur hræðilegi
ALLT Í LAGI!
HVER BJÓ
TIL ÞESSA
STIGA?!?
Gæsamamma og Grímur
BÍDDU
AUGNA-
BLIK...
ÉG ÞURFTI
AÐ SETJA INN
NÝJA FÆRSLU Á
BLOGGIÐ MITT
Ferdinand
Kátína skein úr andlitum barnanna sem léku sér á skólalóð Austurbæj-
arskóla á dögunum þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Leik-
urinn heitir að sögn barnanna „Úlfur úlfur.“
Morgunblaðið/Eggert
Úlfar að leik
Draumur
MIG dreymdi draum
fyrir nokkru. Þannig
var að mér fannst ég
syngja lag fyrir litla
ljóshærða stúlku, lag-
ið er í gömlum skóla-
söngvum fyrir barna-
skóla og heitir „Ég vil
elska mitt land.“
Ég vil elska mitt land.
Ég vil auðga mitt land.
Ég vil efla þess dáð.
Ég vil styrkja þess hag.
Ég vil leita’ að þess þörf.
Ég vil létta þess þörf.
Ég vil láta það sjá
margan hamingjudag.
Þessum holtum ég ann.
Þessum heiðum ég ann
Þessi hraun eru mein,
sem að græða mér ber.
Þessi fannhvítu fjöll
eru fornvinir öll
Og hver fossandi smálækur
vinur minn er.
Þetta’ er játningin mín,
kæra móðir til þín.
Ég get miklast af því,
að ég sonur þinn er.
Það er svipurinn þinn,
er í sál mér ég finn.
Hann er samgróinn öllu því
besta hjá mér.
Það var unaðslegt að vakna með
þennan draum á vörum og finna
áhrifin í sálinni.
Því legg ég til að útvarpið spili
nú meira af þessum gömlu söngv-
um til að m.a. rifja upp sakleysi og
fegurð Íslands.
Það er viss heilun í að lesa
gömlu skólaljóðin nú þegar allt
virðist vera í öngstræti hjá Íslend-
ingum.
Við þurfum að vera lítillátari og
virða það sem við höfum.
Þóra.
Brottfluttir Búrfellingar
KÆRU Búrfellingar. Við höfum
ákveðið að kalla þá saman sem
bjuggu við Búrfell á árunum 1969
til dagsins í dag eða í tæpa 40 ára
sögu staðarins.
Formleg dagskrá hefst laug-
ardaginn 6. júní nk. kl. 13 og verð-
ur fram á kvöld en fólki er vel-
komið að koma á föstudeginum og
tjalda á svæðinu til sunnudags.
Þátttöku þarf að staðfesta fyrir
miðvikudaginn 27. maí. Vinsamleg-
ast hafið samband við Benedikt G.
Sigurðsson (s. 863-4117,
ben.sig@simnet.is)
eða Huldu Böðv-
arsdóttur (s. 897-
2969, huldabodv-
ars@internet.is).
Ferðamálaráð-
herra
NÝLEGA var bent á
það hjá Velvakanda
að í viðræðum við
stjórnmálamenn og í
umræðum þeirra
væri aldrei talað við
eða um ferða-
málaráðherra. Síð-
ustu daga hafa marg-
ar umræður spunnist
um væntanlega ráðherra og
hverjir myndu hljóta þau emb-
ætti. Enginn virtist velta fyrir sér
hver yrði væntanlegur ferða-
málaráðherra. Enn hafa engar
fréttir borist um hver það er eða
verður.
Gummi gogg.
Góðan dag og daginn
MIG langar endilega að vita hvort
það sé rétt að segja „góðan dag-
inn“ eða „góðan dag“. Þótt við
heyrum í hvívetna notað „góðan
daginn“, meira að segja í fjöl-
miðlum, held ég að það sé rangt.
Ef það er rétt ættum við þá ekki
að segja „góða nóttina“?
Svör óskast.
Ágústa.
Stolin kerra
KERRA var tekin fyrir utan
heimili okkar á Álfaskeiði 56,
Hafnarfirði, aðfaranótt 10. maí.
Kerran er atvinnutæki ungs
manns í sumarvinnu svo að miss-
irinn er gríðarlegur.
Kerran er heimasmíðuð og auð-
þekkjanleg, galvaniserað járn og
stál í botni og skjólborðum. Hærri
skjólborð, vantar annað brettið,
aukasuða á beisli og fleira.
Ef einhver varð var við bíl eða
menn með kerru í eftirdragi á
þessum tíma eða veit hvar kerran
er niðurkomin er hann beðinn að
hafa samband við lögreglu eða
síma 862-9787. Fundarlaun.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | Handverkssýning,
sýnt það helsta sem unnið hefur verið í
félagsstarfinu í vetur. Sýningin stendur
til 29. maí og er opið virka daga kl. 9-16.
Línudanssýning á þriðjudögum kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Tón-
leikar Kórs Félags eldri borgara í Reykja-
vík og Hverafugla frá Hveragerði verð
22. maí í Grensáskirkju kl. 17. Miðaverð
1.000 kr.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur kl. 20-23.30, Borgartríó leikur fyr-
ir dansi. Sjá feb.is.
Félagsstarf Gerðubergi | Alla virka
daga kl. 9-16.30 er dagskrá. Þriðjud. og
föstud. kl. 10.30 er stafganga, og miðvi-
kud. kl. 10.30 er leikfimi. Fimmtud. 21.
maí (uppstigningardagur) kl. 11 syngur
Gerðubergskórinn við messu í Háteigs-
kirkju og kl. 14 í Hafnarfjarðarkirkju.
Hæðargarður 31 | Myndlistarsýning
Erlu Þorleifsdóttur og Stefáns Bjarna-
sonar er opin í dag kl. 14-17. Bókmennta-
hópur þriðjudag kl. 20, Soffíuhópur flyt-
ur dagskrána: „þá rigndi blómum“
föstudag kl. 14. Lokahóf 28. maí kl.
13.30. Aðgangur 400. kr.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum á mánud. kl. 10.40. Hringdansar í
Kópavogsskóla kl. 16 og línudans á
þriðjud. byrjendur kl. 14.30 og framhald
kl. 15.30. Hringdansar á miðvikud. í
Lindaskóla kl. 15. Uppl. í síma 564-1490,
554-5330 og 554-2780.