Morgunblaðið - 17.05.2009, Side 10

Morgunblaðið - 17.05.2009, Side 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009 Í nóvember 2007 skrifaði ég grein hér í Morgunblaðið undir fyrirsögn- inni Hræðsluþjóðfélagið. Tilefni greinarinnar var að mér var nóg boðið hvernig ýmis ráðandi öfl í þjóðfélaginu reyndu að beita kúgun þöggunar á þá sem höfðu vitneskju um margt sem betur mætti fara í þjóðfélaginu, eða væri beinlínis rangt, ólögmætt eða siðlaust. Nefndi ég sjómenn sem höfðu orð- ið vitni að kvótasvindli eða tekið þátt í því, að þeir þyrðu ekki að koma fram undir nafni; einnig verslunarfólk í stórmörkuðum sem orðið hafði vitni að því hvernig beitt var blekkingum í kringum verðkannanir, en þyrði ekki að greina frá vitneskju sinni undir nafni af hræðslu við vinnu- veitandann og loks nefndi ég lögfræðinga sem byggju yfir sérþekkingu á lög- fræðilegum álitamálum úr viðskiptalífinu, en þyrðu ekki að koma fram undir nafni, því þá væri allt eins lík- legt að þeir sem yrðu fyrir gagnrýni frá þeim, leituðu ekki til þeirra með lög- fræðileg verkefni eftir slíkar um- sagnir. Ég varpaði fram spurning- unni: „Er kúgun þöggunar að ná undirtökunum í þjóðfélags- umræðum á Íslandi?“ Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og mjög margt hefur breyst í íslensku þjóðfélagi. Til dæmis hefur heilt bankakerfi hrunið; útrásarvík- ingar hafa horfið af yfirborði jarðar; atvinnuleysi nálgast óðfluga 10%; fjöldi fyrirtækja er ýmist orðinn gjaldþrota eða stefnir í þrot og stórkostlegir erfiðleikar blasa við þúsundum, líklega tugþúsundum heimila í land- inu. Ekki er það fallegt! En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Ég held að hræðslan í þjóðfélaginu sé á hröðu und- anhaldi. Sennilega er það svo, að þeir eru margir nú, sem telja að þeir geti sagt sínar skoðanir um- búðalaust, án þess að eiga einhverjar kúgunar- aðgerðir yfir höfði sér. Svo eru ugglaust fjölmarg- ir aðrir sem telja að þeir hafi engu að tapa. Þeir ætli einfaldlega að standa með sjálfum sér og segja hug sinn, miðla af þekkingu og reynslu, án þess að hugleiða það einu sinni, hvort þeir séu þar með að brenna brýr að baki sér. Þetta finnst mér vera hið besta mál og afar já- kvætt fyrir þjóðfélag okkar. Við eigum hvorki að láta einn né neinn kúga okkur til þess að þegja yf- ir því sem rangt hefur verið gert, misfarið hefur verið með eða svindlað hefur verið á. Þess vegna er það, að við þær nýju þjóðfélags- aðstæður sem við nú búum við, þar sem engum stendur ógn af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni eða Sig- urði Einarssyni, eða öðrum útrásarvíkingum, ólíkt því sem áður var, að þjónkun Fjármálaeftirlitsins og undirgefni við þessa tvo er beinlínis hlægileg og hallærisleg. Þar vísa ég til brölts FME nú fyrir nokkrum vikum þegar eftirlitið sendi mér og Þorbirni Þórð- arsyni blaðamanni á Morgunblaðinu bréf, þar sem greint var frá því áliti FME að við hefðum brotið þagnarskyldu samkvæmt 58. gr. laga um fjár- málafyrirtæki nr. 161/2002. Ég átti að hafa brotið þagnarskylduna með birtingu upplýsinga úr lána- bókum Glitnis banka hf. í greininni „Sjónarspil og sýndarleikir Glitnis og FL“ og Þorbjörn átti að hafa gerst brotlegur með því að birta upplýsingar úr lánabók Kaupþings fyrr á þessu ári. FME ritaði okkur sitt bréfið hvoru, þar sem okkur var gefinn kostur á að koma á framfæri andmælum, skýringum og sjónarmiðum. Í bréf- unum var tilgreint að meint brot gæti varðað allt að 20 millljóna króna sektum og allt að tveggja ára fangelsi! Hreint ótrúlega margir hafa komið að máli við mig frá því að FME sendi ofangreint bréf til mín, sem nota bene var sent þann 1. apríl sl. en var, að mér skilst, alls ekkert aprílgabb. Það sem menn og konur furða sig mest á, er að FME skuli nú hafa fundið hjá sér hvöt, jafnvel djúpa þörf, til að rann- saka einmitt þetta. Rannsaka hvaðan lekinn úr lánabók- um Glitnis og Kaupþings kom, hverjir voru heim- ildarmennirnir og hvernig við Þor- björn komumst yfir þær upplýs- ingar sem við komumst yfir. Þeir Jón Ás- geir og Sig- urður Ein- arsson kröfðust rann- sóknar á því hvernig stóð á því að ofan- greindar upplýsingar birtust í Morg- unblaðinu á sínum tíma. Þarf ekki FME eins og aðrir á „Nýja Íslandi“ að forgangsraða upp á nýtt?! agnes@mbl.is Agnes segir… Hræðslan á undanhaldi? Sigurður Krafðist rannsóknar FME á upplýsingaleka. Jón Ásgeir Þjónkun FME við hann og Sigurð er hlægileg. Núverandi ríkisstjórn er ákvarð-anafælin. Þeir sem eru hræddir við að taka ákvörðun ýta vandamál- unum á undan sér.     Þetta sést þegar rýnt er í sam-starfsyfirlýsingu nýju ríkis- stjórnarinnar, sem Jóhanna Sigurð- ardóttir og Steingrímur J. Sigfússon kynntu.     Hundrað dagaáætlunin er ekki eina áætl- unin í þeirri yf- irlýsingu.     Orðin áætluneða áætla koma alls 44 sinnum fyrir í samstarfsyfirlýsingunni og 100 daga áætluninni.     Þeir sem geta ekki komið sér sam-an um hlutina gera áætlanir svo hægt sé að vinna áfram án þess að fá niðurstöðu í mál.     Það hefur verið raunin þegar barinvar saman samstarfsyfirlýsing sem sagði fátt annað en að gera ætti áætlanir um hitt og þetta. Það vant- ar hins vegar bráðnauðsynlegar að- gerðir.     Og ef einhver heldur að það faribatnandi með tímanum þá verð- ur hinn sami fyrir vonbrigðum.     Eftir fyrsta ríkisstjórnarfundinn áAkureyri var send út frétta- tilkynning. Þar komu orðin áætlun eða áætla 23 sinnum fyrir!     Og hvað ætli hafi verið mikilvægurpunktur í þessari fyrstu frétta- tilkynningu ríkisstjórnarinnar? Jú, „samþætting áætlana“.     Auðvitað! Jóhanna Sigurðardóttir Áætlanaríkisstjórnin Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 7 léttskýjað Lúxemborg 7 heiðskírt Algarve 16 heiðskírt Bolungarvík 2 þoka Brussel 9 léttskýjað Madríd 13 heiðskírt Akureyri 6 léttskýjað Dublin 8 léttskýjað Barcelona 12 heiðskírt Egilsstaðir 3 alskýjað Glasgow 10 léttskýjað Mallorca 12 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 5 skýjað London 10 súld Róm 17 léttskýjað Nuuk 3 skýjað París 11 skýjað Aþena 20 skýjað Þórshöfn 8 heiðskírt Amsterdam 10 léttskýjað Winnipeg 0 heiðskírt Ósló 11 heiðskírt Hamborg 11 skýjað Montreal 8 heiðskírt Kaupmannahöfn 9 heiðskírt Berlín 10 skúrir New York 16 heiðskírt Stokkhólmur 7 heiðskírt Vín 14 skýjað Chicago 14 alskýjað Helsinki 10 heiðskírt Moskva 8 þoka Orlando 22 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 17. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6.07 1,3 12.15 2,7 18.18 1,4 4:05 22:44 ÍSAFJÖRÐUR 1.31 1,6 8.09 0,6 14.08 1,4 20.09 0,8 3:43 23:16 SIGLUFJÖRÐUR 3.37 1,1 10.06 0,4 16.35 1,0 22.28 0,6 3:25 22:59 DJÚPIVOGUR 3.04 0,9 8.58 1,5 15.05 0,9 21.45 1,6 3:28 22:20 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á mánudag og þriðjudag Norðaustanátt, 3-8 m/s. Sums staðar þokuloft við N-ströndina og A-lands, annars léttskýjað að mestu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast SV-lands. Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag Hægviðri og víða þokuloft við sjávarsíðuna, einkum þó A- lands, skýjað með köflum og yf- irleitt þurrt V-lands, en bjart inn til landsins. Áfram milt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s, en norðaustan 8-13. Þokuloft eða súld úti við N- og A-ströndina, en annars víða léttskýjað. Hiti 8 til 17 stig að deginum, hlýjast SV-lands. AUGLÝSINGASÍMI 569 1100 ADR-RÉTTINDI Gilda m.a. á Evrópska efnahagssvæðinu Fyrirhugað er að halda eftirtalin námskeið í Reykjavík fyrir stjórnendur ökutækja sem öðlast vilja réttindi (ADR-skírteini) til að flytja tiltekinn hættulegan farm á vegum á Íslandi og annars staðar á Evrópska efna- hagssvæðinu: Grunnnámskeið – Flutningur á stykkjavöru (fyrir utan sprengifim- og geislavirk efni): 25.-27. maí 2009. Flutningur í tönkum: 28.-29. maí 2009. Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiði fyrir flutning í tönkum er að viðkom- andi hafi setið grunnnámskeið (stykkjavöruflutningar) og staðist próf í lok þess. Skrá skal þátttöku og greiða námskeiðs- og skírteinisgjald í síðasta lagi miðvikudaginn 20 maí 2009. Skráning og nánari upplýsingar hjá skrif- stofu Vinnueftirlitsins í Reykjavík, Bíldshöfða 16, sími 550 4600 (sjá einnig heimasíðu Vinnueftirlitsins www.vinnueftirlit.is ).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.