Morgunblaðið - 17.05.2009, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.05.2009, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009 orsport-liðinu úr bresku F3 í fyrra, Brendon Hartley, sem varð nýverið þriðji ökumaður Red Bull F1- liðsins. „Hann var farinn að keppa í grunnformúlu áður en ég byrja að keppa í gokarti. Hann var búinn að keppa í karti frá því hann var sex ára,“ segir hann og útskýrir nánar. „Ég er að vinna upp mörg ár á stuttum tíma og þegar ég kemst inn í Formúlu 3 í fyrra er ég í raun að fara að minnsta kosti fjögur ár fram úr sjálfum mér. F3 er fyrsti alvöru kappaksturinn og bíllinn er með sömu hreyfingar og aksturs- eiginleika og F1-bíll, þrátt fyrir að F1-bíllinn fari hraðar. Fyrir mig að fara beint úr 32 hestafla körtu upp í 200 hestafla Formúlu 3-bíl var svakalega stórt stökk,“ segir hann og undirstrikar sú staðreynd æv- intýrið í kringum þetta og hvað Kristján Einar hefur afrekað. Léttist um 40 kíló Þetta stökk kom ekki áreynslu- laust. „Þegar ég var í kringum sex- tán ára gamall, á gokart-árunum, var ég meira en 40 kílóum þyngri en ég er í dag. Ég var lífsleiður unglingur með tölvufíkn og alltof þungur. En loksins fann ég mig, reif mig upp úr þessu og fór að vinna hörðum höndum að því tak- marki að skapa mér feril sem öku- maður. Ég setti markið hátt og ætl- aði mér að komast þangað. Ég vann mig í gegnum þetta og vona að ég geti verið fyrirmynd einhverra,“ segir Kristján Einar og bætir við að það hafi hjálpað að hann var alinn upp í þeirri trú að hann gæti afrek- að það sem hann vildi. „Hingað til hefur ekki verið framtíð eftir gokartið á Íslandi. Það hefur enginn íslenskur ökumaður farið úr íslensku karti eða mót- orsporti í alþjóðlegar brautakeppn- ir,“ segir hann. „Fjölskylda mín hefur stutt við bakið á mér. Mamma lætur þetta allt gerast utan brautar og pabbi fylgir mér líka oft,“ segir hann en foreldrar hans eru Vilborg Ein- arsdóttir og Kristján Friðriksson. „Pabbi er ljósmyndari og hefur myndað margar keppnir. Mamma fer allt með mér en hún titlar sig ekki móður þegar við erum á ferð- inni heldur umboðsmann og er einn af þremur sem ég er með.“ Kristján Einar segir að sambönd og bakgrunnur foreldra sinna í fjöl- miðlun, auglýsingum og markaðs- málum hafi margoft hjálpað. Fékk góða umsögn eftir prufur Erlendir fjölmiðlar hafa veitt þessari sögu eftirtekt og hafa líkt honum við bobsleðaliðið frá Ja- maíka, sem sagt var frá skemmti- lega í kvikmyndinni Cool Runnings en hún var einmitt ein af uppá- haldsmyndum Kristjáns Einars þegar hann var krakki. Hann gefst ekki upp þó á móti blási. Í lok næsta mánaðar verða liðin tvö ár síðan Kristján Einar fór út í akstursprufur í Bretlandi og hefur margt gerst síðan þá. Stefnan var í fyrstu tekin á Formúlu BMW, virta byrjunarformúlu, og tilviljun hagaði því þannig að móðir hans ákvað að hringja í Carlin-liðið. Önnur til- viljun réð því að einn af eigendum liðsins svaraði í símann og hver veit hvað réð því að hann ákvað að gefa gokart-drengnum frá Íslandi séns. Þróun bílsins Áhugi á bílum var til staðar hjá Kristjáni Einari frá unga aldri. Hér má sjá hann á sérsmíðuðum kassabíl, þar næst að keppa í gokarti og loks á formúlubraut í Bretlandi. Sp ar að u

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.