Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.05.2009, Blaðsíða 37
Umræðan 37 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009 ÞAÐ ER áhugavert fyrir íslenskt lýðræði að styrkja ábyrgð- arsamband kjósenda og alþingismanna með því að taka upp persónu- kjör. En hvernig er best að standa að því? Með þessum orðum vil ég leggja til að per- sónukjör fari fram í for- kosningum sem lands- kjörstjórn heldur. Þær leysi af hólmi prófkjör sem margir stjórn- málaflokkar halda, en í leiðinni verði ákveðnir ágallar þeirra lagaðir og fullt persónukjör tekið upp sem að- alregla. Þá legg ég til að engin breyt- ing verði gerð á framkvæmd kosn- inga, sem er með ágætu og föstu sniði. Almenningur þekkir reglur kosninga og kann að notfæra sér þær, til dæmis reglur um útstrikanir. Það er óvarlegt að breyta verulega grund- vallarkerfi í lýðræðinu eins og kosn- ingum, nema brýna nauðsyn beri til og í þessu efni er hægt að fara leið sem er miklu minni kerfisbreyting og veld- ur minni óvissu í sam- félaginu, en nær mark- miðum breytingarinnar, þ.e. persónukjöri. Með þessari tillögu er mælt með því að áhætt- an með breytingunni sé minnkuð verulega frá róttækustu tillögum um persónukjör. Kosningar Fram hafa komið hugmyndir um að persónukjör fari fram í kosningum og að kjósendur geti endurraðað nöfnum á lista sem þeir kjósa. Þær hugmyndir hafa nokkra galla sem eru helstir: a) Kjósandi veit ekki endilega hvaða þingmenn hann er að kjósa því röðin á listanum gæti breyst við per- sónukjörið, jafnvel verulega. Þetta er því ekki mjög lýðræðislegt og gerir val kjósenda ógagnsætt og er jafnvel í andstöðu við tilgang breytinganna, sem er að auka vald kjósenda á því hver verður fulltrúi hans. b) Ábyrgð í kosningaundirbún- ingnum er óljós. Mér virðist mik- ilvægt að einhver skipi fyrsta sæti á lista og beri pólitíska ábyrgð á fram- boðinu, ef eitthvað fer úrskeiðis. Jafn- framt þarf einhver að sitja annað sæt- ið og vera varamaður fyrir fyrsta sætið og svo koll af kolli. c) Persónukjör í kosningum getur gert kosninguna flókna, sem væri mjög óheppilegt, því kosningar eru fyrir alla hópa samfélagsins. d) Frambjóðendur á lista berjast innbyrðis fram að kjördegi ef per- sónukjör fer fram þá. Þessar athugasemdir eru senni- lega svo alvarlegar að þær kalla á aðra nálgun við að ná markmiðum sterkara ábyrgðarsambands, en hingað til hefur verið álitið. Þannig má mæla með því að reglum um kosn- ingar verði ekki endilega breytt, en hugað að annari nálgun. Fátt kemur til greina annað en forkosningar. Forkosningar Landskjörstjórn gæti haldið for- kosningar með hæfilegum fyrirvara fyrir alþingiskosningar og væru þær persónukjör fyrir alla stjórn- málaflokka og hlutverk þeirra ein- vörðungu að tryggja það. Kostirnir við þetta skipulag eru eftirfarandi: a) Hver og einn kjósandi tæki bara þátt í að stilla upp nöfnum á einum lista. Þetta er mikilvægt. b) Í þeim prófkjörum sem nú tíðk- ast er hugsanlegt að sömu aðilarnir í samfélaginu, gjarnan skipuleg fé- lagssamtök, hafi veruleg áhrif á próf- kjör allra stjórnmálaflokka. Úr því myndi draga. c) Ákjósanlegt er að hver kjósandi í forkosningu velji jafnvel tvo fulltrúa fremur en einn. Það munar miklu hvort einn eða tveir eru valdir, því ef tveir eru valdir aukast líkur á því að frambjóðandi sem sameinar fram- boðið og margir setja í annað sætið, fái það fyrsta. Hins vegar skiptir minna máli hvort fleiri eru valdir eða ekki, þótt það sé ágætt. d) Forkosningar myndu neyða öll framboð í prófkjör, ef svo má segja. e) Forkosningar gæfu nið- urstöðutölur fyrir komandi kosn- ingar, sem myndu auka spennuna fyrir kosningunum og gefa stjórn- málaflokkunum ný markmið í sókn fram að hinum eiginlega kjördegi. Þetta gæti aukið áhuga almennings á alþingiskosningum. f) Talning atkvæða eftir persónu- kjör er tafsöm og því heppilegt að hafa hana ekki á kosninganótt, heldur í sérstökum forkosningum. Mjög vafasamt er að stjórn- málaflokkarnir hagræði uppstillingu sem fengin er með svo lýðræðislega sterkri aðferð. Hins vegar mætti hafa eðlilegar takmarkanir á því hvaða nöfn og hversu mörg komast á slíka lista í upphafi og gætu stjórn- málaflokkarnir takmarkað það. Þá verður erfitt að sjá við ójafnri skiptingu milli kynja. Hana verður ekki hægt að leysa með lýðræð- islegum aðferðum. En ef gripið yrði til einhverra úrræða til að stuðla að jafnri stöðu kynjanna mætti til dæm- is hugsa sér að frambjóðendur af sama kyni sitji aldrei meira en tvö samliggjandi sæti á framboðslista. Í því fælist öryggisnet, sem gripi vænt- anlega ekki mjög oft inn í. Persónukjör í forkosningum Eftir Hauk Arnþórsson » Persónukjör í for- kosningum er lítil kerfisbreyting sem nær samt markmiðum breyt- inganna og skýrir og einfaldar valkosti í kosningunum sjálfum. Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. GARY Hamel, einn þekktasti fræði- maður heims á sviði breytinga, sagði að það eina sem menn gætu gengið að sem vísu væru breyt- ingar. Aldrei fyrr hafa þessi orð verið eins sönn og einmitt núna í dag þar sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir einhverri mestu áskorun síðari tíma. Margt þarf að koma til við enduruppbygg- inguna eftir efnahagshrunið síðast- liðið haust en öllum er þó ljóst að helsti vettvangur viðreisnarinnar er vinnustaðir landsins. Þar mun allt þurfa að fara saman, kraftur, framsýni, nýsköpun, skilvirkni og samvinna. Íslendingum er tamt að spýta í lófa, taka höndum saman og redda málum en nú bregður svo við að við glímum við nýja ógn: starfsóöryggi, ófyrirsjáanleika, niðurskurð, óstöðugleika, óvissu og breytingar. Breyting vs. umbreyting Það er einstaklingsbundið hvernig fólk bregst við slíkum að- stæðum og er það m.a. háð aldri þess, heilsu, persónuleika og reynslu af breytingum. Hjá sumum valda þessar aðstæður tilfinn- ingalegu uppnámi sem birtist sem ótti, kvíði, reiði eða hjálparleysi. Það sem skiptir máli í þessu sam- hengi er hvers eðlis breytingarnar eru. Í bókinni Managing transi- tions eftir William Bridges frá árinu 2003 gerir höfundur grein- armun á breytingum annars vegar (e. change) og umbreytingum hins vegar (e. transition). Breyting er þegar eitthvað í ytra umhverfinu breytist. Um er að ræða leið að ein- hverju þekktu og í skýrum skref- um, t.d. þegar um er að ræða breytingu á yfirstjórn, skipulagi, hönnun starfa, tölvukerfi o.fl. Breyting hrindir af stað þekktu ferli sem fólk fer gjarnan í gegnum til að ná áttum. Umbreyting varðar leið að einhverju óþekktu og þýðir að við þurfum að breyta því hvern- ig við hugsum, skipuleggjum og framkvæmum. Umbreyting inni- felur viðskilnað við fortíðina. Hún hefst með endalokum – að sleppa tökum á gömlum venjum – og lýk- ur með nýju upphafi, nýjum venj- um. Tímann milli þess sem var og þess sem verður – þegar hið gamla er liðið en hið nýja ekki orðið fylli- lega virkt – kallar Bridges hlut- lausa svæðið (e. neut- ral zone). Umbreyting reynir meira á fólk andlega en breyting. Erfið andleg, hegðunartengd viðbrögð Í bókinni Charging back up the hill eftir Mitchell Lee Marks (2003) kemur fram að viðbrögð fólks við um- breytingu eru af ýms- um toga. Andleg við- brögð fólks eru m.a.: Bölsýni og vantraust, sér- staklega þegar fólk sér ekki ávinn- inginn af umbreytingunni. Minni hollusta við vinnustaðinn. Fólk sýnir oft minni hollustu og tryggð auk þess sem veikinda- fjarvistir aukast. Verri starfsandi og minni starfs- ánægja. Skortur á einbeitingu. Fólk finnst það ekki lengur geta haft áhrif á eigin starfsframa og telur einu leiðina til að ná aftur stjórn vera að yfirgefa vinnustað- inn. Þetta hefur neikvæð áhrif á þá sem eftir eru. Sorg vegna fortíðar og kvíði vegna framtíðar. Starfsmenn sakna fyrrverandi samstarfsfélaga og tengsla og þurfa að leggja harð- ar að sér til að halda starfinu. Þeir upplifa starfið ekki eins skemmti- legt. Breyttur sálfræðilegur samn- ingur, þ.e. væntingar til vinnustað- arins breytast og nýi samningurinn snýst um að vera sjálfum sér næg- ur. Algeng hegðunartengd viðbrögð Vinnuálagið eykst en afköstin aukast ekki og sum verkefni dagar uppi. Fólk á erfitt með að ákveða for- gangsröðun á verkefnum. Fólk forðast áhættu svo það fái ekki uppsagnarbréfið ef það gerir mistök. Fólk sýnir minni áhuga, gleði og kraft. Það heldur áfram að mæta í vinnuna en skilur hjartað og sálina eftir heima. Þjónustan við viðskiptavini versnar. Fólk hugsar meira um eigin hag sem þýðir að samstaðan verður minni. Gömul sár milli vinnufélaga ýfast. Vitsmunaleg stöðnun. Mikilvægt er að öðlast skilning á því að þessi viðbrögð séu eðlileg og sameiginleg öllum sem í þessari stöðu eru. Síðan er gott að mynda brú milli framtíðar og fortíðar til að skapa sátt um þær breytingar sem vinnustaðurinn er að fara í gegn- um. Töluverður sársauki getur ver- ið fólginn í því að kveðja hið gamla og komast yfir í hið nýja. Oft reyn- ist fólki erfitt að sætta sig við það að það sem áður var gott og gilt sé það ekki lengur og gefur því þá til- finningu að lítið sé gert úr framlagi þess og starfskröftum til þessa. Slíkar upplifanir draga úr hollustu við nauðsynlegar breytingar. Mik- ilvægt er að velta fyrir sér hvað sé að breytast, hvað muni verða öðru- vísi eftir breytingarnar og hverjir muni tapa hverju? Það hjálpar til við að opna dyrnar að þeim um- breytingum sem verður að fara í gegnum ef breytingarnar eigi að takast. Þessar spurningar hjálpa okkur að sleppa tökum á því gamla þannig að við getum innleitt hið nýja. Því tíminn milli þess sem var og þess sem er er líka tími end- urnýjunar, nýrra lausna, nýrra tækifæra, nýrrar umræðu og nýrr- ar sýnar. Milli þess sem var og verður Eftir Ingrid Kuhlman » Tíminn milli þess sem var og þess sem er er tími end- urnýjunar, nýrra lausna, nýrra tæki- færa, nýrrar umræðu og nýrrar sýnar. Ingrid Kuhlman Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. ÖMURLEGUR póli- tískur veruleiki blasir við. Aumkunarverð og al- gerlega ótímabær kosn- ingabarátta er afstaðin. Hún einkenndist af glansmyndum frá 2007 og hatri á einum flokki. Lítið var um loforð og kepptust frambjóðendur við að skauta fram hjá því sem raunverulega þurfti að segja. Niðurstaða þjóðarinnar var sú að ekki var hægt að treysta neinum og því komust fjórir einstaklingar að frá Borgarahreyfingunni inn á þing. Þeirra helsta markmið var að benda á hversu ömurlegt og óraunsætt stjórn- málaumhverfið var orðið. Hlutu þau að launum óánægjufylgi sem færði þeim fjóra þingmenn. Þingmenn sem nú ætla að leggja mikla áherslu á málefni flóttamanna og klæðaburð þingmanna. Þjóðin enn aftur dregin á tálar með umræðu um nauðsyn eða ónauðsyn ESB aðildar. Til þeirra verka hafa val- ist blaðamenn og fyrirsagnahöfundar. Þjóðin hefur hins vegar löngu gert sér grein fyrir því að ESB aðild „reddar“ okkur ekki úr þeirri skuldahít sem við erum föst í. Forsætisráðherra og fylgi- sveinn hennar segja þjóðina „ekki skilja“ hvaða þau eru búin að gera mik- ið og kenna lélegri upplýsingagjöf um. Hljómar kunnuglega! Hvað varð um fyrirheit Vinstri grænna um að losna við AGS? Getur verið að góð niðurstaða þeirra í nýaf- stöðnum kosningum sé eindreginni andstöðu þeirra við ESB að þakka? Það er ekki neitt launungarmál hvað aðildarsamningur við ESB mun fela í sér. Undanþágur frá fiskveiði- og land- búnaðarstefnu ESB verða ekki veittar! Undanþágur eru blekkingar. Möltu- samningurinn er fjarri því að vera samanburðarhæfur og byggist á verndarsjónarmiðum. Hann er ekki undanþága frá sameiginlegri sjáv- arútvegsstefnu ESB. Ákvæði aðildar geta einnig breyst eftir inngöngu. Þá mega okkar örfáu atkvæði lítils gagn- vart því ef fiskinn, vatnið eða orkuna fer að vanta í önnur aðildarríki. Er það þjóðþrifamál að hér þurfi að koma Brusselstjórn til þess að Íslend- ingar vinni sig úr vanda þeim er útrás- arníðingarnir eiga höfuðsök á? Hvað um íslenska mannauðinn sem stjórn- málaflokkunum varð svo tíðrætt um í kosningabaráttunni? Getur hann ekki neitt til málanna annað lagt en þátt- töku í skoðanakönnunum? Títt ræddi mannauðurinn þarf vit- anlega líka að borga skuldir sínar og útrás- arinnar þrátt fyrir að hafa ekki tekið þátt í henni. Hann mun þó ekki njóta sömu afsláttar- og afskriftarkjara og þeir landflóttamenn sem nú búa í vellystingum í „langtburtistan“. Þar gefa þeir okkur langt nef og hía á okkur: nan- anabúbú, þið náið okkur aldrei! Það er gott aðhaldsráð þegar gæta á að heilsunni að fara aldrei svangur að versla. Það leiðir til fljótfærnislegra innkaupa sem stýrast af skyndiorku- þörf en ekki skynsemi. Það sem er sett í innkaupakerruna verður órökrétt og þegar komið er heim tekur eftirsjáin við. Hvers vegna át ég súkkulaðið í búðinni án þess að huga að því hvað ég ætlaði að taka með mér heim? Íslend- ingar eru soltnir eftir lausnum sem ráðalaus ríkisstjórn sinnir ekki. Það er ekki góð hugmynd að fara að samn- ingaborðinu á meðan hungrið sverfur að og upplausn ríkir í stjórnmálum. Leysa þarf vandann heima fyrir áður en hugað er að ESB aðild. Við erum líka fullfær um það. Íslendingum hefur yfirleitt tekist allt sem þeim dettur í hug, meðal annars að eiga þátt í stærstu gjaldþrotum í heimi. Sem bet- ur fer er til afreksfólk á öðrum sviðum en í gjaldþrotum. Ekki þarf að líta langt aftur í tímann til að sjá hvers megnugur landinn er þegar hann setur sér markmið. Afrekin hafa oftar en ekki hrakið alla tölfræði miðað við höfðatölu. Sjálfstraustinu þarf að ná aftur. Setja þarf skýr markmið og leiðir til að ná þeim. Það er góð hugmynd að senda Samfylkinguna út til aðildarviðræðna. Því á meðan getum við hin farið að taka á þeim málum sem skipta miklu meira máli. Þau mál eru vitanlega að bjarga heimilum og fyrirtækjum á Ís- landi. Förum ekki svöng að versla Eftir Karen Elísabetu Halldórsdóttur Karen Elísabet Halldórsdóttir »Er það þjóðþrifamál að hér þurfi að koma Brusselstjórn til þess að Íslendingar vinni sig úr vanda þeim er útrásar- níðingarnir eiga höfuðsök á? Höfundur er skrifstofustjóri með MS í mannauðsstjórnun. , ,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.