Morgunblaðið - 17.05.2009, Síða 38

Morgunblaðið - 17.05.2009, Síða 38
38 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Garðar Garðsláttur og beðhreinsun í sumar. Garðsláttur og beðhreinsanir fyrir húsfélög og einstaklinga. Við kíkjum á garðinn hjá þér og gefum þér tilboð. ENGI ehf. Sími: 857 3506. Er öspin til ama? Sérhæfum okkur í að fella og fjarlægja tré að öllum stærðum og gerðum. Eitrum líka í rót. Upplýsingar í síma 695 -1918. Gisting floridahus.is Sumarfrí til Orlando, Flórída. Glæsi- leg og vel útbúin sumarhús og íbúðir til leigu í Orlando, Flórída. info@floridahus.is Apartments in Reykjavík WELCOME - 2-3 room apartments, open in May, June, July, August. Beds for 4-6. All you need, free Internet con. www.eyjasolibudir.is Ph.+3548986033, eyjasol@internet.is Heilsa Léttari á fæti með Smart Motion Viltu læra að hlaupa á léttari máta? Hlaupa með minna álagi á fætur, liði og mjóbak? Komdu á Smart Motion hlaupastílsnámskeið. www.smart- motion.org, s. 896 2300. Hljóðfæri Píanó óskast Er einhver sem notar ekki píanóið sitt lengur? Er að leita mér að uppréttu píanói í góðu ásigkomulagi gegn vægu verði. Verðhugmynd 30 til 60 þ. Uppl. í síma 6614753 eða fronverji@hotmail.com Dúndurtilboð Kassagítarar: 1/4 stærð kr. 10.900 pakkinn með poka, strengjasetti og stilliflautu. 1/2 stærð kr. 7.900. Full stærð kr. 12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr. 12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá kr. 29.900. Hljómborð frá kr. 17.900. Trommusett kr. 49.900 með öllu. Gítarinn, Stórhöfða 27, sími 552 2125. www.gitarinn.is Húsnæði í boði Íbúð til leigu í vesturbænum 3ja herbergja íbúð til leigu á góðum stað í vesturbænum, nál. Háskólanum. Góðar suðursvalir. Geymsla fylgir. Laus í júní. Upplýsingar í síma 669 1170. Húsnæði óskast Óska eftir 3-4ra herb. íbúð í Seljahverfi Óskum að leigja góða 3-4 herb. íbúð í langtímaleigu í Seljahverfi sem fyrst. Erum par með 1 barn, erum traust og reglusöm, reykjum ekki. Vinsam- legast hafið samband: 615 0843. Íbúð óskast Reglusamur 46 ára kvk. nemi og starfsmaður í heilbrigðisgeiranum óskar eftir einstaklingsíbúð með geymslu, helst miðsvæðis í Rvk. Greiðslugeta 65 þús. GSM 662 0678. Hraunbær, 110 Rvk. Til leigu 4 herb. íbúð í Hraunbæ, 110 Rvk. Leigist til lengri eða skemmri tíma. Laus strax. Uppl. í s. 893-3836 eða jonsist@simnet.is Fallegt heimili óskast 30 ára kona, reyklaus, reglusöm og róleg óskar eftir íbúð til leigu á höfuðb.svæðinu. 50 fm+, 2 hb. eða stór stúdíó. Vantar íbúð þar sem leyfi- legt er að hafa gæludýr. Jarðhæð og gjarnan í úthverfum borgarinnar. Sjá nánar: aanana.blog.is, s: 661 4008. Bílskúr Tveir bílskúrar hlið við hlið / Geymsla. Til leigu 27 fm bílskúrar eða geymslur í Hafnarfirði. Afgirt, malbikað og lokað svæði með vökt- un. Rafmagn, vatn, hiti og sameigin- legar snyrtingar. Verð 35 þús. pr. m. Uppl. í 898 1705. Sumarhús Þrastahólar - Grímsnesi Snyrtilegt og nýstandsett 58 m² sumarhús á góðri 5.500 m² eignarlóð. 100 m² sólpallur. Upplýsingar í síma 898-1598. Lækkað verð aðeins 14,4 millj. Skoða skipti á hjólhýsi. Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Rotþrær-siturlagnir Heildarlausnir - réttar lausnir. Heildarfrágangur til sýnis á staðnum ásamt teikningum og leiðbeiningum. Borgarplast, www.borgarplast.is s. 561 2211 - Völuteigi 31 - Mosfellsbæ. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Smart Motion hlaupastíll Lærðu að hlaupa á léttari máta með Smart Motion hlaupatækninni. www.smartmotion.org Smári, s. 896 2300. Byrjendanámskeið í tennis Skemmtileg byrjendanámskeið í tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar- skráning hafin. Tíu tíma námskeið. Upplýsingar í síma 564 4030 og á tennishollin.is Tómstundir ÆVINTÝRI Í BORGARFIRÐI www.sumarbudir.is s:551-9160 SUMARBÚÐIR MEÐ SÉRSTÖÐU! Til sölu Hjóla- og bílaflutningakerra til sölu, lengd 6,60 m, breidd og hæð 2,50 m. Verð 3,5 millj. Tilboð 2.190 þús. Áhv. 1.200 þús. Glitnir. Afb. 25 þús. Uppl. í s: 898-1598. Verslun Stúdent 2009 Stúdentagjafir í miklu úrvali. Gallerí Símón, Laugavegi 72, s. 534-6468. Pierre Lannier Falleg og vönduð armbandsúr. Frönsk hönnun, svissnesk verk, 2 ára ábyrgð, mikið úrval og gott verð (gamalt gengi). ERNA, Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is Bókhald Bókhald - Framtöl Framtals- og bókhaldsþjónusta - VSK uppgjör, stofnun EHF. erfðarfjár- skýrslur o.fl. Sanngjarnt verð. Uppl. í s. 517-3977. Bókhald, vsk-skil, skattframtal o.fl. fyrir einstaklinga, einyrkja og félög. Aðstoðum einnig við kærur, stofnun ehf. og léna og gerð heima- síðna. Áralöng reynsla. Dignus ehf.- dignus.is - s: 699-5023. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA er komin móða eða raki á milli glerja. móðuhreinsun ÓÞ. sími 897-9809. Lagnahönnun / HVS Designer (HVAC) Almenn lagnahönnun, lagna- þjónusta ásamt stillingum hita- og loftræsikerfa, bilanaleit /greining o.fl. Vönduð og reynslurík vinnu- brögð. Upplýs. í síma 893 7124. GULL-GULLSKARTGRIPIR Kaupum til bræðslu allar tegundir gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta, gegn staðgreiðslu. demantar.is Magnús Steinþórsson, Pósthússtræti 13, sími: 699-8000. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari getur bætt við sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Bátar TIL SÖLU 40 HA MERCURY utanborðsmótor. Uppl. í s. 892 2030. UMRÆÐAN um sjávarútvegs- fyrirtækin í landinu er verulega und- arleg um þessar mundir að okkar mati. Talað er um sjávarútvegsfyr- irtæki sem einsleitan hóp fyrirtækja og rekstur og aðgerðir fárra fyr- irtækja heimfærð upp á allan fjöldann. Við erum 3. og 4. kynslóð sjómannsfjölskyldu í Rifi og rekum þar útgerð og fiskvinnslu. Fyrir 15 árum stofnuðum við ferskfiskvinnslu sem hefur vaxið og dafnað og gengið vel að markaðssetja vörur sínar er- lendis. Til að fyrirtækið gæti vaxið og boðið upp á stöðugleika í fram- boði hefur það smám saman keypt veiðiheimildir og báta með því að skuldsetja sig. Lánastofnanir hafa lánað til slíkra kaupa og skatta- yfirvöld viðurkennt eignfærslu veiði- heimildanna. Við teljum okkur heið- arlegt fólk sem höfum ætíð unnið eftir þeim lögum og reglum sem gilt hafa í landinu. Við höfum kappkost- að að byggja upp fyrirtækið, okkur, starfsfólki okkar og byggðarlaginu til hagsbótar. Okkar saga er mjög svipuð sögu meirihluta sjávar- útvegsfyrirtækja í kringum okkur á Snæfellsnesi og einnig víðar á land- inu. Okkar réttlætiskennd er því verulega misboðið að hlusta á um- ræðu um að öll sjávarútvegsfyr- irtæki séu sögð hafa braskað með veiðiheimildir, hlutabréf og fleira sem mjög margir tóku ekki þátt í. Dæmi um rangfærslur Í Kastljósþætti hinn 13. maí setur hagfræðiprófessorinn Þórólfur Matthíasson fram nokkur atriði sem við teljum ekki rétt að alhæfa um. Í fyrsta lagi talar hann um að fram- legð í útgerð megi reikna sem leigu- verðið 170 kr. Sá kvóti sem er á leigumarkaði er einungis lítið brot af heildarkvótanum og er því jað- arkvóti, þ.e. þau umframtonn sem sumir geta ekki nýtt sér en aðrir hafa hag af því að bæta við sig bæði til að ná stærðarhagkvæmni og einn- ig vegna veiða á öðrum tegundum. Það er því ekki rétt að nota leigu- verð sem viðmið á framlegð í útgerð. Í öðru lagi talar hann um að sjávar- útvegurinn sé svo skuldsettur vegna rangra ákvarðana stjórnenda. Í okk- ar tilfelli getum við ekki litið á það sem rangar ákvarðanir að hafa fjár- fest í veiðiheimildum sl. ár. Við hefð- um ekki getað eflt fyrirtækið án þeirra og 4. kynslóðin væri líklega ekki starfandi í fyrirtækinu ef það hefði ekki verið gert. Í þriðja lagi talar hann um rangar ákvarðanir stjórnenda í veðmálum um gengi ís- lensku krónunnar. Við viljum minna á, að á góðærisárunum þegar krónan var sem sterkust og útflutningur lapti dauðann úr skel voru það ein- mitt gengisvarnir sem skiluðu fyr- irtækjunum réttum megin við núllið. Sem betur fer höfðu stjórnendur í sjávarútvegi trú á íslensku efna- hagslífi og vörðu sig gegn geng- issveiflum. Það voru ekki þeir sem tóku stöður á móti krónunni, sem átti þátt í að fella hana með tilheyr- andi afleiðingum fyrir alla í landinu. Breytingar á fiskveiðistjórn- unarkerfinu Mikill ágreiningur hefur verið um fiskveiðistjórnunarkerfið í mörg ár og löngu tímabært að breyta því til að ná um það meiri sátt. Útgerð- armenn hafa legið undir ámælum og eru sakaðir um að arðræna þjóðina. En slík ámæli eru ekki réttlætanleg gagnvart þeim sem aldrei hafa leigt né selt frá sér kíló. Heldur einungis hugsað um að veiða og vinna á sem hagkvæmastan hátt en það á einmitt við um flesta þá sem starfa í grein- inni í dag. Breytingar hefði átt að gera fyrir mörgum árum eins og að auka veiðiskyldu, takmarka framsal og síðast en ekki síst skattleggja leigu- og sölutekjur af kvóta. Núver- andi stjórnvöld hafa boðað þá leið að innkalla veiðiheimildir frá og með kvótaárinu 2010/2011. Verði það gert án þess að fyrir komi bætur mun þessi aðgerð bitna harðast á þeim sem keypt hafa veiðiheimildir sl. 5-6 ár, nýliðunum í greininni sem hafa ekkert annað gert en fylgja leikreglunum til að byggja upp sinn rekstur. Samt eru þessar breytingar m.a. sagðar gerðar til auðvelda ný- liðun í greininni. Fyrir okkur eru það algjör öfugmæli. Við teljum að hægt sé að gera breytingar á fisk- veiðistjórnunarkerfinu og ná meiri sátt um það án þess að fara í slíkar harkalegar breytingar. Við treystum því að stjórnvöld standi við orð sín um samráð við hagsmunaaðila í greininni um breytingar á fisk- veiðistjórnunarkerfinu. Lokaorð Alhæfingar og rangfærslur af öllu taki eru mjög slæmar í jafnmik- ilvægri umræðu og um sjávarútveg. Við viljum því skora á fjölmiðlafólk, stjórnmálamenn og aðra sem eru að fjalla um þessi mál að kynna sér bet- ur fjölbreytileika íslenskra sjávar- útvegsfyrirtækja, sögu þeirra og þann veruleika sem þau búa við. Sjávarútvegur í ólgusjó Eftir Kristin Jón Friðþjófsson, Þorbjörgu Alexandersdóttur, Erlu Kristinsdóttur, Halldór Kristinsson og Alexander Fr. Kristinsson » Okkar réttlæt- iskennd er verulega misboðið að hlusta á umræðu um að öll sjáv- arútvegsfyrirtæki séu sögð hafa braskað með veiðiheimildir, hlutabréf og fleira sem mjög margir tóku ekki þátt í. Höfundarnir fv. Alexander Fr. Kristinsson, Erla Kristinsdóttir, Halldór Kristinsson, Þorbjörg Alexandersdóttir og Kristinn Jón Friðþjófsson. Höfundar reka útgerð og fiskvinnslu í Rifi á Snæfellsnesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.