Morgunblaðið - 17.05.2009, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 17.05.2009, Qupperneq 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009 Sudoku Frumstig 1 5 2 8 6 7 4 9 1 7 4 3 4 9 6 6 3 2 9 3 7 9 1 2 4 5 3 7 5 9 5 6 8 7 9 1 3 6 3 1 9 1 7 4 8 2 7 1 2 7 5 9 3 4 8 3 9 5 6 9 1 4 5 9 8 7 3 8 6 9 4 6 3 5 9 7 8 2 1 2 5 8 4 3 1 7 6 9 7 9 1 2 8 6 4 3 5 1 4 7 3 5 8 2 9 6 6 2 5 9 1 4 3 8 7 8 3 9 7 6 2 1 5 4 9 8 4 1 2 5 6 7 3 3 7 6 8 4 9 5 1 2 5 1 2 6 7 3 9 4 8 6 1 9 4 7 3 5 8 2 5 8 7 1 2 6 3 4 9 3 4 2 5 9 8 6 1 7 1 3 6 7 8 2 4 9 5 8 7 4 9 1 5 2 6 3 2 9 5 3 6 4 1 7 8 9 6 1 2 5 7 8 3 4 4 5 8 6 3 9 7 2 1 7 2 3 8 4 1 9 5 6 4 2 8 9 7 3 5 6 1 9 6 1 5 8 4 3 7 2 3 7 5 6 2 1 4 8 9 6 5 2 1 3 7 9 4 8 8 1 9 4 6 2 7 5 3 7 4 3 8 5 9 1 2 6 5 9 7 2 1 6 8 3 4 2 8 4 3 9 5 6 1 7 1 3 6 7 4 8 2 9 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er sunnudagur 17. maí, 137. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Og ef þér reynist ekki trú- ir í því sem annars er, hver gefur yður þá það, sem yðar er? (Lúk. 16, 12.) Víkverji hefur verulegar efasemd-ir um átakið „hjólað í vinnuna“. Íslensk veðrátta er ekki þeirrar gerðar að hún kalli á hjólreiðar. Sá sem hjólar dags daglega er nær alltaf að hjóla upp í móti og berst stöðugt við vind. Slík átök hljóta að draga mátt úr fullfrískasta fólki. Þannig eru hjólreiðar ekki fyrir normalt fólk en henta sérvitringum alveg ágætlega. Í gamla daga þegar Víkverji var að alast upp voru það nær eingöngu börn og skrýtnir vinstrisinnar sem sáust á hjóli. Kannski er þetta skýr- ing á því að þegar Víkverji sér full- orðna manneskju á hjóli hugsar hann ósjálfrátt: „Þarna fer einn vinstri grænn.“ x x x Hjólreiðamenn eru alltaf mjögeinbeittir á svip, eins og þeir viti nákvæmlega hvert þeir eru að fara og telji fullvíst að þeir komist á áfangastað. Víkverji er hins vegar alltaf jafn viss um að ferðalag þeirra muni kosta mikinn barning og skilur ekki hvernig menn leggja þessi ósköp á sig sjálfviljugir. x x x Víkverji er að lesa Góða dátannSvejk. Þvílík dýrðarlesning! Víkverji skellir ótal sinnum upp úr og er hamingjusamur maður á meðan á lestrinum stendur. Víkverji er vita- skuld ekki að lesa Svejk í fyrsta sinn en er kominn á þá skoðun að þetta sé bók sem eigi að lesa á minnst tveggja ára fresti. x x x Víkverji er mikill sælgætisgrís.Hann lætur sér hins vegar hvergi bregða vegna yfirvofandi syk- urskatts heilbrigðisráðherra. Vík- verji mun hvergi gefa eftir í syk- urneyslu sinni en hyggst hins vegar draga mjög úr kaupum á rándýru grænmeti og ávöxtum. Víkverji hefur aldrei hent súkkulaði og öðru nammi í ruslið en um það bil helmingur af öllu grænmeti og ávöxtum sem hann kaupir lendir þar. Víkverji er einfald- lega ekki nægilega hrifinn af þessum vörum og klárar aldrei það sem hann kaupir. Og gulrætur eru náttúrlega bara fyrir kanínur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 höfuðfatið, 8 stórir menn, 9 merkja, 10 ekki marga, 11 landa- bréfa, 13 horaðan, 15 iðja, 18 herbergi, 21 far- eind, 22 hugleysingi, 23 ásýnd, 24 bæklingar. Lóðrétt | 2 verkar, 3 landareign, 4 framar, 5 ástundar, 6 lin, 7 hafði upp á, 12 guð, 14 fiskur, 15 vers, 16 gamli, 17 af- rétt, 18 undin, 19 sofa, 20 satt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 girnd, 4 kutar, 7 tóman, 8 regns, 9 díl, 11 runa, 13 hrun, 14 gettu, 15 forn, 17 gróa, 20 bak, 22 telja, 23 remma, 24 kenna, 25 terta. Lóðrétt: 1 gítar, 2 rúmin, 3 dund, 4 kurl, 5 tugur, 6 rós- in, 10 ístra, 12 agn, 13 hug, 15 fátæk, 16 rolan, 18 róm- ur, 19 apana, 20 bana, 21 Krít. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Staðan kom upp í úrslitaskák heimsbik- armóts FIDE sem lauk fyrir skömmu í Nalchik í Rússlandi en fyrir 13. og loka- umferð mótsins voru Armeninn Levon Aronjan (2754) og Peter Leko (2751) frá Ungverjalandi jafnir og efstir með 7 1/2 vinning. Armeninn hafði hvítt í stöð- unni og tryggði sér langvarandi stöðu- yfirburði með snyrtilegri skiptamuns- fórn. 34. He5! Rxe5 35. Hxe5 f5 36. Bb3 Rd5 37. Hxe6 Kh8 38. De1 Rf6 39. De5 He8 40. c6 Hbc8 41. Dxb5 Dg6 42. h5! Dxh5 43. Bf4 hvítur stendur nú til vinn- ings. Framhaldið varð: 43…a6 44. Dxa6 Rh7 45. c7 Rg5 46. Hxe8+ Dxe8 47. d5 Ha8 48. Dc4 Kh7 49. d6 De1 50. Df1 De8 51. Dd3 Dd7 52. Dc4 De8 53. Bxg5 hxg5 54. Dg8+ og svartur gafst upp. Aronjan varð því efstur á mótinu en Leko deildi öðru sætinu með Akopjan, landa Aronjans. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Íslenski stíllinn. Norður ♠G1053 ♥D875 ♦10 ♣ÁG102 Vestur Austur ♠76 ♠ – ♥ÁK96 ♥10432 ♦D9854 ♦KG762 ♣98 ♣D753 Suður ♠ÁKD9842 ♥G ♦Á3 ♣K64 (13) Sagnbaráttan. Vissulega er það rétt að hindranir virka ekki sem skyldi nema þær komi strax, áður en mótherjarnir ná að tala sig saman. En af því leiðir ekki að rétt sé að opna á fjórum með alla sjöliti. Slíkur stíll er ekki vinsæll hérlendis. Sérstaklega er íslenskum spilurum illa við að eiga of mikið fyrir hindrunum. Á Íslandsmótinu gengu sagnir víða: pass- pass til suðurs. Enginn á hættu. Er þetta 1♠ eða 4♠? Flestir létu 1♠ duga á þeirri for- sendu að ekki þurfi nema ♣ÁDxxx til að gera slemmu góða. Ef melda á 6♠ af viti verður að opna á einum og leyfa norðri að ramma sig inn með góðri hækkun (Drury eða Bergen). Slemma var sögð á 8 borðum af 12 og sjö sagnhafar fundu ♣D – reiknuðu með meiri lauflengd í austur út frá leg- unni í trompi. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert ekki í skapi fyrir sjálfs- aga og sjálfsafneitun í dag og því langar þig meira til að skemmta þér en vinna. (20. apríl - 20. maí)  Naut Nú skiptir máli að láta ekki við- skiptatækifæri framhjá þér fara. Kannski væri ekki vitlaust að byrja að safna fyrir einhverju sem þig langar til að kaupa. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Varastu öll gylliboð sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Einhver ruglingur liggur í loftinu, farðu varlega. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er eitt og annað sem þú ert að kljást við þessa dagana en með réttu hugarfari ferðu létt með það. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert sjálfsörugg/ur og tilbúin/n til að taka stjórnina í þínar hendur í dag. Gefðu þér tíma til að sinna sjálf- um þér þótt aðrir kalli á athygli þína. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ljúktu við allt sem fyrir liggur áður en þú byrjar á nýjum verk- efnum. Veltu fyrir þér gæðum lífsins og sjáðu hversu verðmæti hluta eru afstæð. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Fleygðu frá þér öllum neikvæðum hugsunum þess efnis að þú ráðir ekki við þau verkefni sem þér eru falin. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Láttu rólegheit annarra ekki fara í taugarnar á þér því allir þurfa sinn tíma og það er ekki á þínu valdi að breyta því. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Einhver af eldri kynslóð- inni ráðleggur þér hugsanlega í dag. Það þarf ekki alltaf einhver ósköp til þess að lífga upp á tilveruna. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert opin/n fyrir fegurð- inni allt í kringum þig. Ef einhver vandamál koma upp er best að ræða beint við viðkomandi. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það dugar ekki að svamla einhvernveginn í gegnum daginn. Taktu þig nú til og skoðaðu í hvaða ástandi þú ert andlega sem líkamlega. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Varastu að gagnrýna aðra um of því þú ert nú svo sem hvorki betri né verri sjálfur. Taktu andbyr með brosi á vör því þinn er sigurinn þegar upp verður staðið. Stjörnuspá 17. maí 1904 Guðmundur Björnsson læknir, sem nefndur hefur verið faðir vatnsveitunnar í Reykjavík, ræddi á bæjarstjórnarfundi um nauðsyn veitunnar og mælti hin fleygu orð: „Vér verðum annað hvort að flytja bæinn að vatni eða vatn að bænum.“ Vatnsveitan var tek- in í notkun fimm árum síðar. 17. maí 1960 Laugarásbíó var tekið í notk- un með frumsýningu á kvik- myndinni South Pacific. 17. maí 1997 Alþingi samþykkti ný lögræð- islög sem fólu meðal annars í sér að sjálfræðisaldur var hækkaður úr 16 árum í 18 ár. 17. maí 2002 Íþrótta- og sýningarhúsið Fíf- an í Kópavogsdal var form- lega tekið í notkun. 17. maí 2005 Ólafur Ragnar Grímsson for- seti Íslands átti fund með Hu Jintao forseta Kína í Höll al- þýðunnar í Peking. „Þetta var mjög árangursríkur fundur,“ sagði forsetinn í samtali við Morgunblaðið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Hjónin Svanhildur S. Leósdóttir og Kristján H. Þórðarson, Ytra- Krossanesi, Akureyri, eiga fimmtíu ára brúðkaupsafmæli í dag, 17. maí. Gullbrúðkaup „Við héldum heljarinnar partí í gærkvöldi í tilefni dagsins í dag, svona blöndu af júróvisjónpartíi og fertugsafmæli,“ segir Bjartmar Örn Arnarson flug- maður sem er fertugur í dag. „Ég bauð um fimmtíu gömlum og góðum vinum og kunningjum sem ég hef eignast í gegnum tíðina; jeppafélögum, fjall- göngufélögum, flugfélögum og alls konar fólki. Þar sem ég á þrjú lítil börn og yngsta barnið er ekki nema sex mánaða, þá gefst lítill tími almennt til að hitta vini og félaga, þannig að þetta er kjörið tæki- færi.“ Bjartur er mikill útivistarmaður og fjalla- garpur en hann segist ekki vera með mikil plön um að sigra há fjöll í sumar, hann ætli að njóta þess að vera með börnunum sínum ungu. „Það er ekki mikið rými fyrir stórar fjallgöngur og ég ákvað til dæmis að fara ekki á Hvannadalshnjúkinn í vor en ég hef gert það nokkrum sinnum. Ætli maður reyni ekki allavegana að fara upp Esjuna, fjall okkar borgarbúanna.“ Hann segist helst búast við því að verða eins og fertugur gamall karl þetta sumarið og fara í sumarbústað og hanga í heita pottinum. „Við förum að sjálfsögðu norður, að Sandi í Aðaldal, en þar byggðum við, ásamt systur minni og móður, notalegan bústað á æskuslóðum mömmu.“ khk@mbl.is Bjartmar Örn Arnarson fertugur í dag Engin há fjöll sigruð í sumar Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Reykjavík Ívar Alexander og Atli Dan fæddust 26. mars kl. 11.32. Ívar Alexander vó 2.140 g og var 46 cm langur. Atli Dan vó 2.050 g og var 45 cm langur. For- eldrar þeirra eru Fríða Björk Másdóttir og Stefán Ragnar Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.