Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 2. D E S E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
331. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
ÞINURINN FYLLIR MORG-
UNINN MEÐ ILMI SÍNUM
«OURLIVES
Eru stoltir af því að
spila popptónlist
6
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
BANKARNIR og Íbúðalánasjóður eiga í dag 575
íbúðir og íbúðarhús. Áætlað verðmæti þessara
eigna er um 10 milljarðar króna. Eignaumsýslu-
félög bankanna eiga einnig nokkur hundruð þúsund
fermetra af atvinnuhúsnæði.
Íbúðalánasjóður á 318 íbúðir, en sjóðurinn átti
239 íbúðir 1. apríl sl. Nýi Landsbankinn á 111 íbúð-
ir, Arion-banki á 69 íbúðir og Íslandsbanki á 77
íbúðir.
sem MP banki og fleiri fyrirtæki eru til húsa.
Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Landfesta, telur ólíklegt að hægt sé að selja þessar
fasteignir á næstunni. Það verði gert þegar mark-
aðurinn jafni sig.
Reginn ætlar á næsta ári að ljúka framkvæmdum
við Egilshöll í Grafarvogi, en talið er að það kosti
700-800 milljónir. Helgi S. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Regins, segir að áhugi sé á góðum
eignum eins og Egilshöll.
Hafa yfirtekið 575 íbúðir
Bankarnir hafa stofnað nokkur eignaumsýslufélög til að halda utan um eignir
sínar Bankarnir eiga gríðarlega mikið af atvinnuhúsnæði sem erfitt er að selja
Bankarnir eignast | 12
Bankarnir hafa stofnað eignaumsýslufélög sem
halda utan um eignir sem þeir hafa eignast. Þetta
eru íbúðir, sumarbústaðir, sumarbústaðalóðir, at-
vinnuhúsnæði, hlutabréf í fyrirtækjum og fleira.
Eignaumsýslufélög bankanna eiga gríðarlega
mikið af atvinnuhúsnæði. Reginn, dótturfélag
Landsbankans, á um 150 þúsund fermetra af at-
vinnuhúsnæði. Félagið á t.d. Smáralind og Egils-
höll. Landfestar, dótturfélag Arion-banka, eiga um
75 þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði. Félagið á
m.a. Borgartún 21, þar sem Íbúðalánasjóður, LÍN
og fleiri stofnanir eru til húsa, og Borgartún 26, þar
DÆMI eru um að útlendingar, sem
hér starfa um lengri eða skemmri
tíma, hafi skilið börn sín eftir hér á
landi í umsjón vinafólks, þar sem
þau eru stundum svo mánuðum eða
árum skiptir. Foreldrarnir hafa snú-
ið til síns heima til að vinna eða ann-
ast veika foreldra.
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaverndar
Reykjavíkur, segir að útlendingar,
sem hér búa, hafi í sumum tilvikum
talsvert önnur viðhorf til umönnunar
barna en almennt tíðkist hér á landi.
Hún segir að reynt sé að hafa uppi á
foreldrum sem hafa farið úr landi án
þess að taka börnin með sér. „Við
reynum að meta aðstæður barn-
anna. Stundum er niðurstaðan að
allt sé í lagi, en það kemur líka fyrir
að hlutirnir eru alls ekki í lagi.“
Börn gerð út til að stela
Nokkur dæmi eru um að fólk með
börn á framfæri hafi komið til Ís-
lands beinlínis í þeim tilgangi að fara
ránshendi um landið. Nýlega þurftu
Barnavernd Reykjavíkur og lög-
regla að hafa afskipti af hjónum með
tvö börn. Fólkið kom til landsins
beinlínis til að stela. Lögregla hand-
tók foreldra sem voru með tvö börn
á aldrinum 4-6 ára. Börnin tóku þátt
í því að stela með foreldrum sínum.
Halldóra segir að erfitt hafi verið að
ná sambandi við fólkið því það talaði
tungumál sem enginn skildi. „Börnin
voru skítug og það var sláandi hvað
þau voru róleg þó að þau væru tekin
frá foreldrum sínum meðan þau
gistu fangageymslur. Það segir
manni að þau hafa upplifað ýmislegt
um ævina.“ Fjölskyldunni var vísað
úr landi. | Sunnudagsmoggi
Skildu börnin
eftir á Íslandi
Barnavernd þarf í auknum mæli að
hafa afskipti af börnum útlendinga
Morgunblaðið/Heiddi
LÖGFRÆÐINGUM sem beðnir
hafa verið að vinna álit á því hvort
Icesave-frumvarpið stangist á við
stjórnarskrá er sagt að meirihluti
nefndarinnar stefni að því að af-
greiða málið til 3. umræðu eigi síð-
ar en um miðja næstu viku.
Fjórir hafa hafnað beiðni um að
vinna verkið. Fyrst var rætt við tvo
fyrrverandi hæstaréttardómara,
Guðrúnu Erlendsdóttur og Pétur
Kr. Hafstein, en þau tóku það ekki
að sér. Davíð Þór Björgvinsson,
dómari við Mannréttindadómstól
Evrópu, og Skúli Magnússon, ritari
EFTA-dómstólsins, töldu þessa
vinnu vart samrýmast starfs-
skyldum sínum við dómstólana. »2
Lögfræðingum ætlaðir fá-
einir dagar til álitsgerðar
ÍSLENDINGAR geta tæpast stað-
ið við skuldbindingar vegna Icesave
og annarra lána öðruvísi en lífskjör
versni verulega eða þá að heims-
verð á áli og fiski hækki og verði
hátt í langan tíma. Þetta er mat
hagfræðinganna Oddgeirs Ottesen
og Snorra Jakobssonar. Í ár hefur
vöruskiptajöfnuður verið hag-
stæður enda mikið dregið úr inn-
flutningi. Hagfræðingarnir segja
samdrátt varla verða meiri nema
lífsgæði skerðist. Þurfi innflutn-
ingur á bifreiðum að aukast ef Ís-
lendingar ætli að nota bíla sem
samgöngutæki. »24
Stólað á hátt verð á áli og
fiski og lítinn innflutning
Samdráttur á innflutningi
í ár eftir flokkum
%
0
-10
-20
-30
-40
-50
-60
-70
-80
jan.-sept. 2008-2009
M
at
-o
g
dr
yk
-
kj
ar
vö
ru
r
H
rá
-o
g
re
ks
tr
ar
vö
ru
r
El
ds
ne
yt
i
Fj
ár
fe
st
in
ga
rv
ör
ur
Fó
lk
sb
íla
r
N
ey
sl
uv
ör
ur
Va
ra
nl
eg
ar
ne
ys
lu
vö
ru
r
H
ál
f-v
ar
an
le
ga
r
ne
ys
lu
vö
ru
r
REGNHLÍFAR koma að litlu gagni þegar rignir frá hlið eins og reyndin
var í höfuðborginni í gær. Í þekktu ævintýri tekst mús ein á loft í vindhviðu
og regnhlífin bjargar henni þar með úr klóm villidýrs. Lítil hætta er á að
Íslendingar takist á loft með regnhlífinni, því Kári er með blæstri sínum
fljótur að eyðileggja þessi annars nauðsynlegu hjálpartól.
KÁRI BLÉS AF KRAFTI
Morgunblaðið/Golli
Stekkja
rstaur k
om
Er búið að kíkja í skóinn?
*Nánar um skilmála á flytjandi.is
PI
PAA
P
RR
\\
BW
A
W
A
TB
•••
SÍ
A
•
9
SÍ
A
•
91
8
81
S
91
8
8
Opið til22 öll kvöld til jóla