Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 66
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Ég man (óljóst) eftir því þeg-ar fyrsti þátturinn í nýrriþáttaröð, Friends, eða
Vinum, var frumsýndur í íslensku
sjónvarpi. Þátturinn hóf göngu
sína árið 1994 í Bandaríkjunum,
líklega ári seinna á Íslandi, man
það ekki alveg. Ég man að mér
fannst þetta frekar óspennandi
þáttur, persónurnar dálítið vit-
lausar og skrítnar. Ég átti ekki
von á því að þátturinn yrði lang-
lífur. Mikið svakalega hafði ég
rangt fyrir mér! Ekki nóg með að
þáttaraðirnar yrðu tíu heldur
hlutu þær mörg verðlaun.
Þessar vinsældir Vina komu
mér í opna skjöldu en einhvern
veginn náðu þeir manni á end-
anum, þótt þeir væru aldrei neitt
sérstaklega fyndnir. Jú, stundum
var hægt að hlæja upphátt en oft-
ast var það þó eitt „hmfff“, fliss út
um nefið (hvernig skrifar maður
það annars?). Vinir voru gerðir
eftir töfraformúlu, jafnt hlutfall
karla og kvenna (eða stráka og
stelpna) og vinahópurinn nokkuð
huggulegur, þótt nokkrir leik-
aranna hlytu meiri athygli út á
kynþokkann en aðrir. Þá voru
tvær persónur litlar mannvits-
brekkur, Phoebe og Joey, ávísun á
hálfvitabrandara að hætti Bakka-
bræðra. Svo var einn nörd, einn
sem fékk allar flugbeittu háðs-
glósurnar, ein karakterlítil skvísa
(Jennifer Aniston er föst í því
hlutverki) og ein hreingerningaóð
og uppstökk. Ég viðurkenni að
það var notalegt að horfa á Vini.
Vinir voru meira „feelgood“-
þættir en gamanþættir, vellíð-
unarþættir.
En hvers vegna í ósköpunum erég að skrifa svona mikið um
þessa þætti? Jú, ég á mér nefni-
lega mína vinaþætti, er ekki sak-
laus. Lengi vel var ég heltekinn af
Seinfeld, vinagrínþáttum sem
slógu í gegn nokkrum árum á
undan Friends. Þar var spaugileg
hegðun mannsins skoðuð með
mjög áhugaverðum hætti og per-
sónurnar miklu litríkari en í Vin-
um. Og nú hefur ný vinaþáttaröð
náð athygli minni, How I Met
Your Mother. Ekki svo að skilja
að í henni megi ekki finna væmið
kjánagrín, það er vissulega til
staðar. Nei, það er einkum flag-
arinn Barney sem heillar, stjarna
þáttanna, túlkaður óaðfinnanlega
af leikaranum Neil Patrick Harris.
Barney þessi er nær algjörlega
siðlaus og svífst einskis þegar
kemur að því að draga konur á
öllum aldri á tálar. Hann er
tungulipur syndaselur, talar í
bundnu máli þegar vel liggur á
honum og haldinn dásamlegum
ranghugmyndum um eigið ágæti.
Barney dregur vini sína ítrekað út
á háskalegar brautir, nemur þá
jafnvel á brott í vafasamar óvissu-
ferðir. Og ekkert leggur hann
eins mikla fæð á og að festa ráð
sitt, kvænast og eignast börn.
Barney er hinn eilífi glaumgosi,
alltaf óaðfinnanlega klæddur í
dýrum jakkafötum með viskíglas í
hendi.
How I Met Your Mother tekst
að dansa á hinni fínu línu vina-
þáttanna. Hægra megin er væmn-
in, vinstra megin er kjánaskap-
urinn. En konungur línudansins,
að mínu mati, er ennþá Seinfeld.
Ekkert hefur skákað þeirri snilld.
Afskaplega notalegir vinir
Barney Neil Patrick Harris fer á kostum í How I Met Your Mother.
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
»Hann er tungulipursyndaselur, talar í
bundnu máli þegar vel
liggur á honum og hald-
inn dásamlegum rang-
hugmyndum um eigið
ágæti.
Reuters
SÝND Í REGNBOGANUM
HHHH
-Þ.Þ., DV
„Fantagóð
hrollvekja sem er
meðal þeirra bestu
síðuastu ár“
VJV - Fréttablaðið
HHHH
„Taugatrekkjandi og
vægast sagt óþægileg”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHH
„... í heildina er myndin
fantagóð og vel gerð...
góð tilbreyting“
-H.S., MBL
SÝND HÁSKÓLABÍÓI
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Bad Lieutenant kl. 3 (550 kr.) - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
Julie and Julia kl. 2:40 (550 kr.) - 5:20 - 8 - 10:35 LEYFÐ
2012 kl. 2:40 (550 kr.) - 6 - 9:15 B.i.10 ára
Paranormal Activity kl. 10:30 B.i.16 ára
Love Happens kl. 3 (550 kr.) - 5:30 - 8 LEYFÐ
Anvil kl. 4 (550 kr.) - 6 - 8 - 10 B.i.7 ára
Whatever Works kl. 3:40 (550 kr.) - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
A Serious Man kl. 3:20 (550 kr.) - 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
Desember kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10 ára
Capitalism: A Love Story kl. 8 B.i. 7 ára
The Box kl. 10:15 B.i.16 ára
2012 kl. 5 - 8 B.i.10 ára
Love Happens kl. 6 LEYFÐ
9 kl. 4:30 B.i.10 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Meistarar svarta húmorsins,
Coen-bræður er mættir aftur
með frábært meistarverk.
Skylduáhorf fyrir unnendur
góðra kvikmynda!
Í HÁSKÓLABÍÓI
„Raunsæ og vel útfærð.“
-E.E., DV
„Leikararnir eru ómót-
stæðilegir.”
T.V., Kvikmyndir.is
„Á eftir að verða
klassísk jólamynd.”
- Ómar Ragnarsson
„Frábær íslensk
bíómynd!!”
- Margrét Hugrún
Gústavsdóttir, Eyjan.is
Snillingarnir Woody Allen og Larry David
snúa saman bökum og útkoman er „feel-good”
mynd ársins að mati gagnrýnenda.
HHH
ÓHT, Rás 2
HHH
- SV, Mbl
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHH
- ÞÞ, DV
HHH
„Frammistaða
leikara er í
heildina sann-
færandi og
einlæg... stendur
fyllilega fyrir
sínu“
-H.J., MBL
SÝND Í BORGARBÍÓI OG REGNBOGANUM
fr
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Spennumynd af bestu gerð þar sem
Nicolas Cage fer á kostum í hlutverki spillta
lögreglumannsins Terence McDonagh.
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
HHHH
Roger Ebert - Chicago Sun-Times
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝ
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó