Morgunblaðið - 12.12.2009, Page 61

Morgunblaðið - 12.12.2009, Page 61
Dagbók 61 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009 Sturla Friðriksson hefur gefið útsafn af limrum, lausavísum og stuttum kvæðum undir yfirskrift- inni: „Ljóð úr lífshlaupi“. Þar eru sléttubönd sem hann orti í fyrsta bekk Gagnfræðaskóla Reykjavík- ur 1934: Sáran bítur jörðu jel, jafnvel skrugga kemur. Báran fleyi vaggar vel, veður gluggann lemur. Og þar er limran: Með ástarhug klókan og kænan hún kúrði við hlaðvarpann grænan og flennti út sitt stél svo færi það vel. „Og hana nú,“ sagði svo hænan. Sturla varpar einnig nýju ljósi á heimsendingu á pítsum: Þótt hafirðu flutt á heimsenda, heita pizzan lokkar, er hana færðu heimsenda með hraðsendlinum okkar. Pétur Stefánsson fylgdist með mannlífinu: Um allar götur bílar bruna. Börn af kæti æpa og góla. Fólk er eflaust farið að gruna að fáir dagar séu til jóla. Það gengur ýmislegt á í sam- skiptum dýra og manna á heimili Sigurðar Ingólfssonar, en hann á hagmæltan hund: „Elvis kom til mín rétt í þessu og hnussaði að mér, eftir að hafa kúkað á stofugólfið: Ég hef verið gríðarlega góður og gjammað lágt og sjaldan angrað þig. En þó ég hafi innbyrt allt þitt fóður þá áttu að þrífa skítinn eftir mig.“ Vísnahorn pebl@mbl.is Af jólum, pítsu og Elvis Allt er hey í harðindum HVAÐ mætti halda mörgum hjúkr- unarfræðingum, lög- regluþjónum og bráðaliðum í starfi eða halda mörgum sjúkrastofum opnum fyrir 90 milljóna só- unina í ráðherrabíla ár hvert? Ekki var við öðru að búast frá ráðuneytum jafn- aðarmanna en fullyrð- ingum um að ráð- herrabíll sé nauðsyn og meira að segja lög- reglan, lömuð af niðurskurði, bor- in fyrir því. En á krepputímum er fólki með milljón á mánuði engin vorkunn að reka ráðherrabílinn fyrir eigin reikning. Ef um allt sneyddist mætti líka láta einhvern úr aðstoðarmannagerinu skutla sér, enda einatt á sömu leið. Það er í svo hróplegri mótsögn við kjör fólks almennt, sem margt er atvinnulaust að missa íbúðina og bílinn í verð- og gengistryggðri skjaldborg um heimilin, að sjá ráðherra stíga út úr glæsikerr- unum okkar og bílstjórana aka burt, kannski að skreppa fyrir ráðherrann í Bónus, með börnin í skólann, makann á golfvöllinn eða hjólið í viðgerð. Hvað getur hann verið annað að gera allan daginn meðan ráðherrann svarar kvabbi um fleiri göng og fleiri álver? Auðvitað þarf að bóna bílinn vel og lengi en fyrr má nú vera. Hjá ónefndu fyrirtæki voru yf- irmenn hér áður sendir í þarflausar reisur með fulla vasa dagpeninga í stað þess að hækka launin. Oft rifjast það upp undir fréttum af ferðalögum okkar fólks sem ekki virðast knýjandi nauðsyn. Albaníuförin arfavit- lausa er dæmi um só- un sem vekur þá spurningu hvort ferðalangarnir séu bara að sækja sér sporslu í formi dagpeninga. A.m.k. ætti að vera bannað að sækja Norðurlandaráðstefnur eftir neit- un „frænda vorra“ um fjárhags- aðstoð nema við kyngdum Icesave. Í eina tíð þótti sjálfsagt að ráð- herra færi tvívegis við fjórða mann til Kína að horfa á hand- bolta eða að uppgjafahöfðingjar væru leystir út með heimsreisu. En nú er gullöldin önnur og full ástæða til að skora á ráðuneytin að auka eigin sparnað. Tækist vel til væri alltént minni hætta á að nota þyrfti öryggisbúnaðinn í bíl- um hönnuða stóraukinnar skatt- heimtu og hættulegs niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu og lögreglunni. Atgeir. Ást er… … þegar orð eru bergmál hjartans. VelvakandiBórisfrísa Eftir: Þorgrím Kára Snævarr Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag. Besta aukavinna sem þú getur fundið og góð hreyfing í þokkabót! Hringdu núna og sæktu um í síma 569 1440 eða á mbl.is! Sæktu um blaðberastarf – alvörupeningar í boði!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.