Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 32
B ráðum koma blessuð jólin, börnin og konan mín eru löngu farin að hlakka til og röðin kemur að mér fljótlega eftir helgi. Ég hef satt að segja verið of upptekinn til þess að hefja tilhlökkunarferlið. Tekur maður annars ekki þannig til orða á Íslandi í dag? En nú er allt að verða klárt. Ég þarf reyndar að sinna smáverkefni aðfararnótt mánudagsins (þegar Stúfur kemur til byggða) en eftir það get ég snúið mér alfarið að mínum heittelskuðu. Að Stúfsverkefninu loknu kemur að vísu að öðru og ekki léttara; að velja jólagjöf handa kon- unni. Ég þurfti að skjótast til Reykjavíkur í gær og datt þá í hug að gefa henni regnhlíf og vind- jakka en mundi svo að þess er ekki þörf af því að við búum fyrir norðan. Sólarvörn og bikini væri nær. Eða að fjárfesta í einhverri bók sem hana (lesist: mig) langar í. Kannski læt ég Liverpoolferðina um daginn duga handa henni og dætrunum. Ég var reyndar að efna gamalt loforð, hafði safnað fyrir ferðinni lengi en bauð svo bara upp á jafn- tefli við Manchester City, sem var hálfklént. Til að bæta gráu ofan á svart var Torres ekki með, sem þeim þótti öllu verra, þannig að ég þarf að líklega að kaupa eitthvað smá í viðbót. Við eitt get ég huggað mig: jólin koma hvort sem gjöfin handa eiginkonunni kostar mig tvö hundruð þúsund krónur eða tvö þúsund. Ekki að ég sé að velta hærri tölunni fyrir mér (nema ferðin á Anfield teljist með), en hún lítur óneit- anlega ansi vel út á prenti. Nema kannski akk- úrat um þessar mundir. Ég skal ekki fullyrða um það hvort Sigrún yrði jafn sæl með hvora gjöfina sem er, en útiloka það alls ekki. Hún er raunsæ. Hlýtur a.m.k. að vera það eftir svona langa sam- búð með yðar einlægum. Þetta þarf að vega og meta; í fyrsta lagi hug hennar, í öðru lagi stöðuna á reikningnum og í þriðja lagi hag kaupmannastéttarinnar. Þegar hart er í ári verðum við öll að standa saman og af tvennu illu er kannski skárra að ég borði lítið annað en hafragraut og slátur fram á sumar en að verslunarmenn stórskaðist vegna rýrrar upp- skeru í desember. Við hjónin – þá kærustupar – lærðum það fyrir mörgum árum að hægt er að lifa sparlega. Prent- arar fóru í verkfall, við blaðamenn vorum settir í verkbann svo fyrirtækið ætti fyrir jólabónusnum og krónurnar í litlu kjallaraíbúðinni í Hátúninu voru vand- lega taldar á hverjum degi. Stundum oft á dag. Svo var keypt hálft brauð og einn lítri af mjólk. Kannski smjör eða ostbiti. Kærastan var í skóla, við áttum engin börn þá og engan bíl, þannig að ekki þurfti að spreða í nammi og bensín og eftir á að hyggja var þessi tími lærdómsríkur. Kreditkortið var enn ekki komið til Íslands, sem betur fer, því þá væri ég kannski enn að borga reikninginn, en jólin komu samt. Ég man ekki lengur hvort ég hafði efni á því að gefa elskunni minni eitthvað í jólagjöf nema kannski koss á kinn. Efast um að hún muni það heldur. Nema það hafi verið koss. skapti@mbl.is Tilhlökkunarferli og koss á kinn Pistill Skapti Hallgrímsson 32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009 Sú skýringsem ríkis-stjórnin hef- ur gefið á þeim miklu skattahækk- unum sem fyrir- hugaðar eru getur ekki nema að litlu leyti talist sannfærandi, jafnvel frá sjón- arhóli stjórnarflokkanna sjálfra. Forystumenn ríkis- stjórnarinnar halda því fram að nauðsynlegt sé að hækka skatta til að afla meiri tekna í ríkissjóð, en af framkvæmd skattahækkunarinnar er aug- ljóst að fleira hangir á spýt- unni. Staðreyndin er sú að innan þeirra flokka sem nú fara með stjórn landsins – að svo miklu leyti sem segja má að þeir geri það – er mikil tilhneiging til aukinna ríkisafskipta almennt. Þessi tilhneiging kemur meðal annars fram í ríkum vilja til að auka skatta og þenja þannig út hið opinbera. Þau sjónarmið hafa menn lengi séð, löngu áð- ur en flokkarnir tveir settust við stjórnvölinn. Sú skoðun, sem mikið vægi hefur innan þessara flokka, að aukin ríkisafskipti séu ekki endilega óæskileg heldur geti beinlínis verið æskileg í sjálf- um sér, sést vel af því hvernig flokkarnir kjósa að hækka skattbyrðar almennings. Það er ekki nema að hluta til gert með flötum eða hlutlausum hætti. Flokkarnir velja þá leið að hækka skatta á sumt og suma til að koma afstöðu sinni til hegðunar fólks á framfæri. Vilji til neyslustýringar er því ríkur þáttur í þeirri ákvörðun stjórnarflokkanna að þyngja skattbyrðarnar. Afleiðingar aukinnar al- mennrar skattbyrði liggja fyr- ir; þær draga máttinn úr at- vinnulífinu. Afleiðingar neyslustýringarinnar verða aðrar og minni, en slæmar engu að síður. Skattkerfið verður flóknara en áður var, undanskotum mun fjölga og óánægja með skattkerfið mun fara vaxandi. Til að mynda er augljóst að lítil sátt verður um það að ávaxtasafi beri nýjan 14% virð- isaukaskatt en kókómjólk helmingi lægra skatthlutfall. Þetta er eitt dæmi af mörgum sem Samtök verslunar og þjón- ustu nefna í umsögn sinni um frumvarp til laga um ráðstaf- anir í skattamálum. Í umsögn SVÞ er réttilega bent á að erlendar þjóðir hafi hingað til öfundað okkur fyrir tiltölulega einfalt og gegnsætt skattkerfi. Ótækt er að efna- hagsþrengingar séu notaðar sem átylla til að eyðileggja það. Stjórnarflokkarnir nýta sér kreppuna til að auka neyslustýringu. } Kreppan misnotuð til aukinna ríkisafskipta Lífskjör Íslend-inga hafa ver- ið furðu lítið til umræðu í tengslum við frumvarp um rík- isábyrgð vegna Icesave. Mikið hefur verið rætt um skulda- stöðu þjóðarbúsins og reynt að meta hver hún er og hvort þjóðin „ræður við“ skulda- byrðina eða „getur borgað“, eins og það er gjarna orðað. Það hvort þjóðin getur greitt skuldir sínar er þó langt því frá það eina sem skiptir máli. Sem dæmi má taka ein- stakling með ráðstöfunar- tekjur eftir skatta upp á 200.000 krónur á mánuði og með greiðslubyrði af lánum upp á 50.000 krónur. Segja má í vissum skilningi að lífskjör þessa manns séu 150.000 krón- ur á mánuði. Fyrir þá fjárhæð kaupir hann mat, föt og ým- islegt sem hann langar í og hefur ánægju af. Hækki greiðslubyrði vegna lána um 50.000 krónur á mánuði heldur hann aðeins eftir 100.000 krónum. Hann verður aug- ljóslega að skera verulega niður í öðrum útgjöldum þó að hann geti ef til vill með herkj- um staðið undir byrðunum. Segja má að lífs- gæði mannsins hafi minnkað um 50.000 krónur á mánuði því að hann verður að neita sér um neysluvörur fyrir þá fjár- hæð. Þjóðarbúið er í samskonar stöðu þó að tölurnar séu aðrar, en þegar rætt er um þjóðar- búið vill oft gleymast að á bak við þá umræðu eru ríflega 300 þúsund einstaklingar. Verði frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave samþykkt er óhjákvæmilegt að þeir munu þurfa að skera neyslu sína um- talsvert niður. Tölurnar eru ekki endilega þær sömu og í dæminu hér að ofan, en afleið- ingarnar sambærilegar. Mikilvægt er að hafa í huga, að Icesave-umræðan snýst einkum um það hvort ásætt- anlegt er að skerða lífskjör alls almennings vegna skulda einkafyrirtækis. Umræðan um Icesave snýst í raun um lífskjör. } Lífskjörin FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is S kráð atvinnuleysi í nóv- ember síðastliðnum var 8% eða að meðaltali 13.357 manns. Atvinnu- leysi jókst um 5,3% að meðaltali frá október eða um 675 manns, samkvæmt yfirliti Vinnu- málastofnunar. Atvinnulausum fer hægt fjölgandi og í gær voru 15.835 á atvinnuleysis- skrá. Fjölgun fólks á skránni hefur verið nokkru minni á þessu hausti en reiknað hafði verið með. Að sögn Karls Sigurðssonar forstöðumanns vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar er ekki önnur skýring nærtækari en að atvinnulífið standi betur en menn höfðu talið. Einnig beri að hafa í huga að eftirlit með brotum hefur verið hert og hinir brotlegu umsvifalaust teknir af atvinnuleysisskrá. Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá nóvember til desember og þróun síðustu vikna bendir til þess að svo verði einnig í ár. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í desember verði á bilinu 8,1% til 8,6% af vinnu- afli í landinu. Búist er við að atvinnu- leysið nái hámarki á fyrstu mánuðum næsta árs. Á þessu ári fór atvinnu- leysið hæst í apríl, 9,1%. En þótt heldur færri séu nú at- vinnulausir en menn reiknuðu með eru ýmsir váboðar í yfirliti Vinnu- málastofnunar um stöðuna á vinnu- markaði í nóvember. Þannig er fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en 6 mánuði 7.394 eða 49% þeirra sem voru á skránni. Til að setja þessa tölu í samhengi má nefna að samkvæmt nýjustu tölum Hag- stofunnar eru íbúar Árborgar 7.928. Fjöldi langtíma-atvinnulausra slagar því hátt í íbúafjölda Árborgar og þetta er hærri tala en íbúafjöldi Akraness, sem er 6.630. Fjölgað hef- ur hratt í hópi langtíma-atvinnu- lausra á síðustu mánuðum og líkur eru á því að enn fjölgi í þessum hópi. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er einnig mikið áhyggjuefni. Í lok nóv- ember voru 5.164 á atvinnuleysis- skránni á aldrinum 16-29 ára eða 34,3% þeirra sem eru á skránni. Þetta er hærri tala en allir íbúar Fjarða- byggðar sem eru 4.736, samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar. Félagsmálaráðuneytið hefur sér- staklega skoðað langtíma-atvinnu- leysi og atvinnuleysi meðal ungs fólks. Nýlega skilaði vinnuhópur skýrslu. Í tillögum hans er Vinnu- málastofnun m.a. hvött til að skylda unga atvinnuleitendur til virkni í samræmi við lagaheimildir, enda sé þessi hópur betur settur í námi eða öðrum reglubundnum úrræðum en afskiptalaus á bótum. Árni Páll Árnason félagsmálaráð- herra gerði vanda ungs fólks að um- talsefni á ársfundi Vinnumálastofn- unar og sagði þar mikinn auð liggja ónýttan hjá garði. „Við höfum á und- anförnum vikum með skipulegum hætti kannað aðstæður og viðhorf at- vinnulausra ungmenna í þessu landi. Því miður er það svo að þúsundir þeirra sitja heima á bótum. Þau eru mörg hver vonlítil um vinnu, vonlítil um nám og vonlítil um eigin framtíð. Þeim hefur ekki tekist að finna sér stað í samfélaginu. Við þessu verðum við að bregðast. Við getum ekki og við megum ekki láta hundruð eða þúsundir ungmenna alast upp sem bótaþega.“ Langtíma atvinnu- leysi vaxandi vandi Morgunblaðið/Golli Háskólatorg Ungt fólk er mun betur sett í námi eða öðrum úrræðum en af- skiptalaust á bótum, að mati vinnuhóps sem félagsmálaráðherra skipaði. Um helmingur fólks sem er á at- vinnuleysisskrá, alls 7.394 manns, hefur verið án atvinnu í meira en hálft ár. Til samanburðar skagar þessi fjöldi hátt upp í íbúa- fjölda Árborgar, sem er 7.928. Alls voru 15.017 án atvinnu í lok nóvember, 8.756 karlar og 6.261 kona. Þeir sem voru at- vinnulausir að fullu, eins og það er kallað, voru 12.141. Af þeim voru 2.226 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í viðtöl hjá ráðgjöfum stofnunarinnar og á kynningarfundi. Samtals voru 2.521 af þeim sem voru skráðir atvinnulaus- ir í lok nóvember í hlutastörf- um á móti hluta atvinnuleys- isbóta. Atvinnuleysið er misjafnt eftir landshlutum. Mest er at- vinnuleysið hlutfallslega á Suðurnesjum eða 13% en minnst á Vestfjörðum eða 2,8%. Atvinnuleysi á höf- uðborgarsvæðinu er 8,7%, Norðurlandi eystra (6,8%), Vesturlandi (5,8%), Suður- landi (5,2%), Austurlandi (3,6%) og Norðurlandi vestra (3,2%). Staðan í einstökum kaup- stöðum er þessi: Reykjavík (6.443 atvinnulausir), Kópa- vogur (1.455), Hafnarfjörður (1.336), Reykjanesbær (1.167) og Akureyri (874). 15.017 voru á skrá Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.