Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 72
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 346. DAGUR ÁRSINS 2009
Kristján Jó-
hannsson syngur
á aðventukvöldi í
Keflavíkurkirkju
annað kvöld kl. 20
ásamt Karlakór
Keflavíkur og
Rúnari Þór Guð-
mundssyni, nemanda sínum. Að-
ventukvöldið er haldið til styrktar
Velferðarsjóði Suðurnesja og allir
listamennirnir gefa vinnu sína þetta
kvöld.
TÓNLIST
Kristján syngur til styrktar
Velferðarsjóði Suðurnesja
Nýleg hljóm-
plata tónlistarkon-
unnar Lay Low,
Flatey, hefur vakið
nokkra athygli í
Kaliforníu, nánar
tiltekið á útvarps-
stöðinni KCRW.
Stöðin hyggst kynna lagið Sorgin
sem „Today’s Top Tune“ þriðjudag-
inn nk., 15. des., það er „besta lagið á
stöðinni“. Á Flatey er að finna sjö
lög á hljóð- og mynddiski.
TÓNLIST
Lay Low með lag dagsins
á KCRW í Kaliforníu
Sunnudags Mogginn
er nú borinn út með
laugardagsblaðinu
Heitast 10°C | Kaldast 5°C
S og SA 5-10 m/s og
víða rigning eða súld,
þó síst NA-lands.
Hvessir heldur
síðdegis. »10
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-.
*/),-+
))0,-.
*1,22.
*),.*)
)0,2/3
)*/,-*
),+3)3
)3.,3-
)-*,00
456
4 ))" 5 *//3
)*1,).
*/*,+*
))-,*)
*1,.*-
*),.-2
)0,2.
)*),).
),+3.
)30,20
)-+,*-
*+2,2)*)
%
78 )*1,1.
*/*,-)
))-,2.
*1,0
*),013
)0,.))
)*),2
),1//)
)3-,).
)-+,03
ÞETTA HELST»
MYNDLIST»
Abstraktverk sem minna
á andlit. »64
Útgáfu þáttanna um
Klaufabárðana verð-
ur fagnað með
klaufagangi og
klaufabrauði í dag á
Rósenberg. »64
SJÓNVARP»
Klaufaleg
uppákoma
FÓLK»
Alce Baldwin varð
appelsínugulur. »67
TÓNLIST»
Plata Ólafs Arnalds fær
4½ stjörnu. »68
Gagnrýnendur fjalla
um Bankster, eftir
Guðmund Ósk-
arsson, og bókina
um Kristin E.
Hrafnsson. »62
Myndlist og
framtíðin
BÆKUR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sambýliskona Larssons hafnar fé
2. Lést við köfun í Hvalfirði
3. Prestur moldríkur í … DNA-prófs
4. Prófessor græðir á óförum Tigers
Íslenska krónan hélst óbreytt
Rafael Benítez,
knattspyrnustjóri
Liverpool, er með
hinn 18 ára gamla
Guðlaug Victor
Pálsson í sínum
framtíðarplönum
og vill ekki að hann
verði lánaður til annars félags. Guð-
laugur Victor hefur leikið með vara-
liði og unglingaliði Liverpool frá því
hann samdi við félagið í janúar á
þessu ári. Þar leikur hann nú í nýrri
stöðu sem miðvörður og kann vel við
það. ,,Það kom mér mest á óvart
fyrstu mánuðina hversu fljótur ég
var að koma mér inn í varaliðið og þá
kom það mér á óvart að þjálfararnir
hafa látið mig spila sem miðvörð í
síðustu leikjunum en ég hef alltaf
spilað á miðjunni. Mér finnst mið-
varðarstaðan mjög skemmtileg og
ég sé alveg fyrir mér að ég spili þá
stöðu áfram,“ sagði Guðlaugur
Victor við Morgunblaðið.
KNATTSPYRNA
Benítez vildi ekki lána
Guðlaug frá Liverpool
„ÉG hlakka til að fá að spila aftur og
vonandi fæ ég tækifæri hjá þjálf-
aranum í leiknum á morgun (í dag),“
sagði körfuknattleiksmaðurinn Jón
Arnór Stefánsson í samtali við
Morgunblaðið í gær en hann spilar
að öllum líkindum sinn fyrsta leik á
tímabilinu með spænska úrvalsdeild-
arliðinu Granada í dag á útivelli
gegn Estudiantes í Madrid.
Jón Arnór brákaði fjóra hryggjar-
liði í æfingaleik gegn Khimki frá
Rússlandi í byrjun október en hann
slapp við að fara í aðgerð.
Jón segist hafa lagt mikið á sig í
endurhæfingunni á undanförnum
vikum. „Ég er langt á undan áætlun
og það var ekki búist við því að ég
yrði klár í slaginn fyrr en í janúar.
Ég er því mjög spenntur að fá loks-
ins tækifæri til þess að spila á ný. Ef
það væri eitthvað að mér væri ég
ekki að fara að spila aftur á morgun.
Ég er búinn að fá högg á bakið, detta
á bakið og þetta er allt í fínu lagi,“
sagði Jón Arnór í gær. | Íþróttir
Jón langt
á undan
áætlun
Jón Arnór Hann er klár í slaginn.
Spilar líklega í dag
Borgarnes | Pólsk hjón, þau Beata Sokolowska og Jacek
Lesek, ásamt tveggja ára dóttur sinni Júlíu urðu fyrir
því óhappi að heimili þeirra við Egilsgötu brann á
fimmtudagskvöld. Innbúið var ótryggt.
Beata hafði sett upp kartöflurnar og ætlaði að hafa
matinn tilbúinn þegar Jacek kæmi heim úr vinnunni
klukkan átta. ,,En þvottavélin okkar er biluð og ég hef
fengið að þvo hjá systur minni sem býr hérna í sömu
götu. Við Júlía skutumst þangað og ég gleymdi kartöfl-
unum á suðu á meðan. Þó að ég hafi ekki verið nema um
20 mínútur lagði reyk út um gluggana, það var dimmt en
mér sýndist ég sjá loga í gegnum gluggann.“
Nágranna dreif að og pössuðu þeir Júlíu á meðan
Beata fór inn í íbúðina, en þá blossaði eldurinn upp fyrir
alvöru. Hún gerði þau mistök að grípa í logandi pottinn
og fara með hann út en brenndist við það á hægri hendi
og fékk 1. og 2. stigs brunasár. Fljótlega kom slökkviliðið
á vettvang og gekk vel að slökkva eldinn. Jacek kom á
sama tíma heim úr vinnunni og varð eðlilega hverft við
að sjá heimili sitt brenna. Strax varð ljóst að eldhúsið
væri alveg ónýtt og flest annað í íbúðinni er skemmt.
Húsgögn, leikföng, persónulegir munir og fatnaður eru í
misjöfnu ásigkomulagi enda smaug reykur og sót um all-
ar vistarverur nema geymsluna.
Ekki skemmdir í öðrum íbúðum
Beata hafði sama dag tekið út peninga og voru þeir í
umslagi í eldhúsinu og hélt hún fyrst að þeir hefðu
brunnið. Sem betur fór fannst umslagið heilt í tösku sem
slapp við eldinn. Beata segir þau ekki vera húsnæðislaus
næstu nætur þar sem þau gisti í íbúð systurinnar og fjöl-
skyldu sem eru í Póllandi fram yfir áramót. Þau hafi hins
vegar nýlega endurnýjað leigusamning til eins árs og
vilji gjarnan búa í íbúðinni áfram. Er ljóst að mikla vinnu
þarf að leggja í að koma henni í íbúðarhæft stand.
,,Leigusalinn segir að það taki um tvo mánuði að lag-
færa og við verðum að fá bráðabirgðahúsnæði á meðan.
Mér finnst ákaflega leiðinlegt að ég skyldi gera þessi
mistök að gleyma kartöflunum á eldavélinni og hef verið
í áfalli yfir því. Ég er samt mjög fegin að ekki urðu
skemmdir á öðrum íbúðum í húsinu. Við höfum líka fund-
ið fyrir miklum velvilja hjá nágrönnum og öllum sem
hafa aðstoðað okkur.“
Beata segist ekki finna mikið til í brunasárunum, en
óneitanlega sé upplifun af eldsvoða erfið reynsla. Þess
má geta að Júlía litla var hin sprækasta og lék á als oddi
þrátt fyrir að leikföngin hennar væru skemmd.
Þeir sem vilja leggja fjölskyldunni lið geta styrkt þau
með fjárframlagi á reikning 0326-26-112809, kt. 280969-
2739, eða haft samband við Borgarfjarðardeild Rauða
krossins í Borgarnesi.
Pólsk Hjónin Beata Sokolowska og Jacek Lesek ásamt dóttur sinni Júlíu. Þau segjast víða hafa fundið stuðning.
Eldfimar kartöflur
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Skemmdir Innanstokks er íbúðin mikið skemmd og sót-
ið liggur yfir öllu. Viðgerðirnar taka nokkra mánuði.
Íbúðin stórskemmd og
innbúið var ótryggt