Morgunblaðið - 12.12.2009, Side 2

Morgunblaðið - 12.12.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is STJÓRN Íþrótta- og tómstunda- ráðs Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær samhljóða bók- un þar sem hvatt er til þess að framleiðendur og innflytjendur bjórs og léttöls, sem og fjölmiðlar, hætti birtingu auglýsinga á slíkum drykkjum. „Ljóst má vera að tilgangurinn er að auglýsa áfenga drykki, jafn- vel þótt í einhverjum tilvikum sé gerð tilraun til að koma lögmæt- um stimpli á auglýsingar með lág- um áfengisprósentutölum. Auglýs- ingum þessum virðist mörgum hverjum ætlað að ná til ungs fólks og þær vinna gegn forvörnum í áfengismálum,“ segir í bókun stjórnar ÍTR. Hætti að auglýsa bjór í fjölmiðlum SAMHERJI afhenti í gær 60 milljóna króna styrki til sam- félagsverkefna, aðallega til íþróttafélaga á Akureyri og Dal- vík. Samherji vill efla þjálfun og um leið stuðla að því að sem flest börn og unglingar geti stundað þær íþróttagreinar sem hugur þeirra stendur til. Fjármununum skal varið til að lækka æfinga- gjöld og fleira. Samherji styrkti einnig HL-stöðina á Akureyri. Endurhæfingardeildin í Kristnesi fékk styrk til tækjakaupa og Skógræktarfélag Eyfirðinga til að setja upp merkingar í Kjarna- skógi. Samherji veitir 60 milljóna króna styrki NOKKRAR skemmdir urðu á íbúð í fjölbýlishúsi í Fossvogshverfi í Reykjavík á tíunda tímanum í gær- kvöldi, þegar þar kviknaði eldur út frá feiti í potti. Slökkvilið reykræsti íbúð og stigagang. Tvennt var í íbúðinni og var fólkið flutt á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi til eftirlits. Kallað var í starfsfólk Rauða krossins vegna atviksins og útvegaði það vegalausum íbúunum húsnæði til bráðabirgða. Eldur í steikarpotti í íbúð í Fossvoginum SAMANLAGT tap móður- og dóttur- félaga Stoða á síðasta ári var alls 350,6 milljarðar kr. Rekstrarkostnað- ur félagsins á síðasta ári var 2,1 millj- arður kr. eða 59% lægri en árið áður. Til samanburðar var rekstrarkostn- aður félagsins á fyrstu mánuðum þessa árs 133 milljónir kr. Aðalfundur Stoða var í gær, en fjárhagslegri endurskipulagningu fé- lagsins er nú lokið. Heildareignir fé- lagsins námu 32 milljörðum króna í lok júlí sl. og eiginfjárhlutfall félags- ins þá 69%. Fjármögnun félagsins hefur nú verið tryggð til lengri tíma. Helstu eignir Stoða nú eru 99,1% hlutur í Tryggingamiðstöðinni og 51% í evrópska drykkjarframleiðand- anum Refresco. Þá eiga Stoðir hluti í Royal Unibrew, Nordicom, Glacier Renewable og fleiri fyrirtækjum. Stærstan þátt í tapi Stoða árið 2008, um það bil 208 milljarða króna, má rekja til afskrifta á eignarhlutum í þremur helstu eignum félagsins á síð- asta ári, það er Glitni, Landic Prop- erty og Tryggingamiðstöðinni. Tap vegna annarra skráðra og óskráðra eigna og hlutabréfa, meðal annars í Commerzbank, Inspired Gaming, Royal Unibrew, Nordicom, Atorku, Alfesca, Glacier Renewable Energy Fund, Unity, Þyrpingu, Bay- rock og Finnair, nam um 45 milljörð- um króna. Vaxtagjöld og neikvæður gengismunur námu um 79 milljörðum króna á umræddu tímabili. sbs@mbl.is Stoðir töpuðu 350 millj- örðum króna í fyrra Rekstrarkostnaður var 2,1 milljarður en stefnir í 270 milljónir Morgunblaðið/Golli Stoðir Tap, en fjárhagslegri endur- skipulagningu félagsins er lokið. Frumleg og flott dagatalsbók með myndskreyttum hugleiðingum. Góð fyrir skapið og skipulagið! Við styrkjum Frá konu til konu Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is FJÓRIR lögfræðingar, sem Alþingi hefur leitað til, hafa hafnað því að vinna álitsgerð fyrir fjárlaganefnd um tiltekna þætti vegna umræðna um frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð á Icesave-skuldbinding- um. Fram hefur komið í samskipt- um Alþingis við lögfræðinga að tímaramminn er þröngur, þar sem formaður fjárlaganefndar hyggist afgreiða málið úr nefndinni fyrir miðja næstu viku. Í samkomulagi sem náðist milli stjórnar og stjórnarandstöðu um lok annarrar umræðu um Icesave-frum- varpið fólst að fjárlaganefnd fjallaði um sextán atriði sem stjórnarand- staðan leggur áherslu á, áður en frumvarpið kemur til endanlegrar afgreiðslu í þinginu. Eitt atriðið snýr að stjórnarskránni og spurn- ingum um framsal dómsvalds og umfang ríkisábyrgðar. Rætt var um að leita til tveggja fyrrverandi hæstaréttardómara, Guðrúnar Er- lendsdóttur og Péturs Kr. Hafstein, um að gera lögfræðilegt álit um það. Þau höfnuðu því bæði. Pétur segist ekki hafa verið tilbúinn að taka verkið að sér af persónulegum ástæðum. Hann segist hafa vitað af því að afgreiða ætti frumvarpið fyr- ir jól en samskiptin hefðu ekki kom- ist á það stig að rætt væri um tíma- ramma. Samrýmist vart starfsskyldum Í fyrradag voru Davíð Þór Björg- vinsson, dómari við Mannréttinda- dómstól Evrópu í Strassborg, og Skúli Magnússon, ritari EFTA- dómstólsins í Lúxemborg, spurðir hvort þeir væru reiðubúnir að taka verkið að sér. Þeir sögðu báðir nei þar sem þeir telja að þetta starf yrði vart samrýmanlegt starfsskyldum þeirra hjá dómstólunum. Hafna að vinna lögfræði- álit á Icesave-frumvarpi  Skammur tími gefinn til vinnu álitsgerðar  Stefnt að afgreiðslu málsins úr fjárlaganefnd fyrir miðja næstu viku  Fjárlaganefnd fjallar um sextán atriði Skúli Magnússon Pétur Kr. Hafstein Guðrún Erlendsdóttir Davíð Þór Björgvinsson NEMENDUR 10. bekkjar grunnskólans á Sel- tjarnarnesi sýndu í gærkvöldi hinn fræga söng- leik Chicago í félagsheimili Seltjarnarness við Suðurströnd. Hæfileikarík ungmenni léku þar listir sínar og sýndu hvers þau eru megnug í leik, söng og dansi. Sýningin var haldin til styrktar barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL, og var fulltrúa hennar afhent ávísun upp á 100.000 krónur í upphafi sýningar. SÝNDU CHICAGO Á NESINU TIL STYRKTAR BUGL Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.