Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
NEMENDUR Korpuskóla í Reykjavík sýndu
helgileikinn Bjartasta stjarnan í gær. Þetta er
fjörugur söngleikur sem fjallar um boðskap
jólanna í skammdeginu og hvernig það góða
sigraði það vonda nóttina helgu þegar Jesú var í
heiminn borinn. Söngleikurinn er nú sýndur í 8.
sinn undir styrkri stjórn Svans Bjarka Úlfars-
sonar tónmenntakennara. Allir nemendur 1., 6.,
og 7., bekkjar taka þátt með leik, söng og tónlist.
Morgunblaðið/Ómar
Bjartar jólastjörnur skína í Korpuskóla
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
HALLI á rekstri ríkissjóðs á síðasta
ári og tvöföldun langtímaskulda skýr-
ist að stórum hluta af 270 milljarða
króna veðlánum viðskiptabankanna
sem ríkissjóður tók yfir af Seðlabank-
anum. Veðlánin urðu verðlítil við fall
bankanna. Kemur þetta fram í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
endurskoðun ríkisreiknings 2008.
Telur Ríkisendurskoðun að hægt
hefði verið að draga úr tjóni ríkissjóðs
og Seðlabankans með því að herða
fyrr kröfur um veð.
Mikill viðsnúningur varð í rekstri
ríkissjóðs á árinu 2008. Eftir að hafa
skilað tekjuafgangi fjögur ár í röð
varð 216 milljarða króna halli 2008.
Heildargjöld hækkuðu um 73% frá
árinu á undan og munar þar mest um
kostnað sem féll á ríkissjóð vegna
hruns bankanna og endurreisnar
fjármálakerfisins en einnig vegur
hækkun lífeyrisskuldbindinga þungt.
Langtímaskuldbindingar ríkis-
sjóðs rúmlega tvöfölduðust á árinu,
fóru úr 527 milljörðum í 1.200 millj-
arða. Skýrist þessi hækkun af útgáfu
ríkisbréfa á innlendum lánamarkaði,
163 milljarða hækkun vegna gengis-
lækkunar krónunnar og 112 milljarða
hækkun á lífeyrisskuldbindingum
sem meðal annars kemur til vegna
neikvæðrar raunávöxtunar á fjárfest-
ingum Lífeyrissjóðs starfsmanna rík-
isins. Fjórða atriðið og það sem Ríkis-
endurskoðun fjallar ítarlega um er
270 milljarða króna veðlán sem ríkis-
sjóður yfirtók frá Seðlabankanum í
lok desember 2008.
Seðlabankinn hafði lánað bönkun-
um háar fjárhæðir fyrr á árinu, meðal
annars gegn veði í skuldabréfum sem
þeir gáfu út. Eftir að bankarnir kom-
ust í þrot urðu þessar veðkröfur verð-
litlar. Ríkissjóður tók þessar veðkröf-
ur til sín til þess að forða Seðla-
bankanum frá þroti.
175 milljarðar afskrifaðir strax
Fram kemur í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að heildarkröfur Seðla-
bankans á hendur bönkunum vegna
veðlána og daglána námu 345 millj-
örðum kr. Ríkissjóður tók yfir 270
milljarða kr. og var ákveðið að af-
skrifa strax 175 milljarða króna. Þeir
75 milljarðar sem eftir stóðu hjá
bankanum voru færðir til gjalda hjá
honum sem útlánatöp.
Veðlánin eru þannig til komin að
Seðlabankinn leit á það sem lögbund-
ið hlutverk sitt að veita innlendum
fjármálastofnunum lausafjárfyrir-
greiðslu. Fram kemur hjá Ríkis-
endurskoðun að vegna erfiðleika á
krónumarkaði og gjaldeyrismarkaði
snemma ársins hafi eftirspurn eftir
þessum lánum aukist mjög. Þá kemur
fram að hinir föllnu bankar öfluðu sér
líka lausafjár með lánum frá minni
fjármálafyrirtækjum sem aftur fengu
lán hjá Seðlabankanum gegn ótrygg-
um veðum. Bankinn herti reglur sínar
um veðtryggingar í ágúst. „Spyrja má
hvers vegna Seðlabankinn brást ekki
fyrr við þessum „leik“ bankanna og
herti kröfur um veð gegn lánum til
minni fjármálafyrirtækja. Að mati
Ríkisendurskoðunar hefði þetta get-
að dregið úr því tjóni sem ríkissjóður
og Seðlabankinn sátu uppi með eftir
falla bankanna,“ segir í skýrslunni.
Seðlabankinn gefur út reglur um
viðskipti við fjármálafyrirtæki. At-
hugun Ríkisendurskoðunar leiddi
ekki í ljós neitt sem bendir til þess að
við mat á veðum hafi starfsmenn ekki
virt eða fylgt gildandi reglum um
tryggingar fyrir lánum.
Hefði mátt draga úr tjóninu
Töpuð veðlán Seðlabankans hjá föllnu bönkunum auka halla ríkissjóðs og langtímaskuldir Ríkis-
endurskoðun spyr hvers vegna Seðlabankinn herti ekki fyrr kröfur vegna veðlána fjármálastofnana
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Veðlán til bankanna
urðu lítils virði eftir bankahrunið.
Í HNOTSKURN
»Ríkisendurskoðun gerirekki verulegar athuga-
semdir við reikningsskil stofn-
ana en bendir á veikleika í
innra eftirliti.
»Vakin er athygli útgjöldumstofnana umfram fjárheim-
ildir.
»Stór hluti ríkisstofnanahefur ekki fellt greiðslur
fyrir ómælda yfirvinnu að fullu
inn í föst laun. Launakerfi
ríkisins er sagt ógagnsætt.
TÓNLISTAR- og ráðstefnuhúsið við
Austurhöfnina í Reykjavík mun
heita Harpa. Þetta var opinberað við
hátíðlega athöfn í gær. Það var
Harpa Karen Antonsdóttir, 10 ára
gömul, sem gaf húsinu nafnið.
Efnt var til samkeppni um nafn á
húsið í fyrra og frá 1.200 manns bár-
ust 4.156 tillögur. Úr þeim var síðan
síað og á endanum stóð valið um
nöfnin Kristall, Hafblik og Harpa.
Nafnið sem var valið er sagt stutt,
einfalt og skiljist á erlendum
tungum og vísar til vorsins, þegar
náttúran lifnar við. sbs@mbl.is
Húsið Harpan vísar til vorsins
Tónlistarhúsið
nýja fær nafn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nafn Harpa Karen Antonsdóttir nefndi húsið. Með henni eru Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
„NOKKUÐ
hefur borið á
fölskum undir-
skriftum þar
sem nöfn á
borð við Gord-
on Brown, Bar-
ack Obama og
Davíð Oddsson
hafa ratað inn á
undirskriftalista,“ segir Ólafur Elí-
asson, tónlistarmaður og talsmaður
samtakanna InDefence.
Samtökin safna sem kunnugt er
undirskriftum þar sem skorað er á
forseta Íslands að hafna nýjum Ice-
save-lögum og vísa þeim til þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Eru bullundir-
skriftir reglulega hreinsaðar út af
listanum auk þess sem tölvunar-
fræðingar innan hópsins hafa rakið
IP-tölur þeirra tölva þaðan sem
slíkar undirskriftir koma sem og
lén þeirra. „Það sem hefur vakið
furðu okkar er að stjórnarráðslén
kemur upp sem og lén Fréttablaðs-
ins, RÚV og Hagstofu Íslands,“
segir Ólafur. Ekki er hægt að rekja
úr hvaða ráðuneyti skráningar ber-
ast.
„Manni dettur í hug að þetta sé
til að gera söfnunina ótrúverðuga,“
segir Ólafur. Óháður aðili fer yfir
undirskriftalista áður en hann verð-
ur afhentur forseta Íslands, auk
þess sem hann verður samkeyrður
þjóðskrá.
Rugl úr
ráðuneyti
Falskar undirskriftir
hjá InDefence
N1 Deildin
KONUR
Laugardagur
Vodafone höllin
Fylkishöll
VALUR - HK
FYLKIR- KA/ÞÓR
14:00
16:00
2009 - 2010