Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Sex daga í október höfðu fyrrver-andi eigendur Haga ekkert yfir
fyrirtækinu að segja. Kaupþing –
nú Arion – hafði tekið yfir allt
hlutafé í eiganda Haga, félaginu
1998, og skipt um alla stjórnar-
mennina þrjá. Í stjórn höfðu verið
settir þrír starfsmenn bankans til
að tryggja hagsmuni hans sem eig-
anda.
Þar með laukeignarhaldi
Jóhannesar Jóns-
sonar í Bónusi og
fjölskyldu á Bón-
usi og öðrum
verslunum Haga.
Þetta hefur ekki
breyst. Fjöl-
skyldan sem átti
Haga í gegnum
1998 á þá ekki lengur. Kaupþing
tók öll hlutabréfin til sín hinn 20.
október sl. En eitthvað annað
breyttist því að sex dögum eftir að
fulltrúar fyrri eigenda voru settir
út úr stjórninni var einn þeirra, Jó-
hannes, settur aftur inn.
Enginn hefur útskýrt hvað gerðistþessa sex daga í október og
hvers vegna bankinn telur nú að
fyrri eigandi, sem skuldsetti félagið
þannig að hann missti það, sé best
til þess fallinn að gæta hagsmuna
bankans. Og bankinn neitar að tjá
sig.
Hér er ekki um sjoppu að ræðaheldur verslanir sem eru með
um eða yfir helming af markaði.
Málið varðar allan almenning. En
stjórnmálamenn tjá sig ekki heldur.
Þeir vilja ekki tjá sig um einstök
mál – a.m.k. ef þau snerta fyrrver-
andi eigendur Haga.
Þeir tjá sig hins vegar óhræddirum annað og eru t.d. stóryrtir
um samruna Mjólku og KS. Þeir
hafa áhyggjur af samkeppni á
mjólkurmarkaði en ekki af sam-
keppni á matvörumarkaði í heild og
sjá enga ástæðu til að nota nú tæki-
færið og auka hana.
Sex dagar í október
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 10 rigning Lúxemborg 5 skýjað Algarve 18 skýjað
Bolungarvík 11 rigning Brussel 7 skýjað Madríd 14 heiðskírt
Akureyri 10 alskýjað Dublin 9 skýjað Barcelona 16 heiðskírt
Egilsstaðir 10 skýjað Glasgow 5 heiðskírt Mallorca 16 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 rigning London 7 léttskýjað Róm 13 heiðskírt
Nuuk 7 heiðskírt París 9 skýjað Aþena 10 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 7 skýjað Winnipeg -23 léttskýjað
Ósló 1 skýjað Hamborg 5 skýjað Montreal -6 léttskýjað
Kaupmannahöfn 4 skýjað Berlín 3 heiðskírt New York -3 heiðskírt
Stokkhólmur 1 snjókoma Vín 4 skúrir Chicago -9 heiðskírt
Helsinki -1 snjókoma Moskva -6 snjókoma Orlando 14 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
12. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.01 3,4 9.19 1,1 15.20 3,3 21.37 1,0 11:12 15:32
ÍSAFJÖRÐUR 5.12 1,8 11.25 0,5 17.16 1,8 23.42 0,5 11:56 14:58
SIGLUFJÖRÐUR 0.52 0,2 7.11 1,1 13.16 0,2 19.44 1,0 11:41 14:39
DJÚPIVOGUR 0.01 1,8 6.22 0,6 12.23 1,6 18.25 0,5 10:50 14:53
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag og mánudag
Suðlæg átt, 3-8 m/s. Lítils-
háttar væta S- og V-lands, en
skýjað með köflum og þurrt á
N- og A-landi. Hiti 3 til 10 stig.
Á þriðjudag
Suðaustan 5-10 m/s og skýjað
V-lands, annars hæg breytileg
átt og víða léttskýjað. Hiti 3 til
8 stig, en vægt frost í inn-
sveitum fyrir norðan og austan.
Á miðvikudag og fimmtudag
Suðvestanátt og milt veður.
Léttskýjað A-lands, en rigning
eða súld vestantil á landinu.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Sunnan og suðaustan 5-10
metrar á sekúndu og víða rign-
ing eða súld, þó síst NA-lands.
Hvessir heldur síðdegis. Hiti
yfirleitt 5 til 10 stig.
ÁKVÖRÐUN sveitarfélagsins Voga um upp-
sögn konu sem vann á leikskóla í bænum var
ólögmæt samkvæmt úrskurði samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytis. Málavextir eru þeir
að BSRB kærði f.h. konunnar ákvörðun leik-
skólastjóra um uppsögn ráðningarsamnings til
samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
Konan hafði starfað frá 2006 á leikskólanum
sem rekinn er á vegum sveitarfélagsins. Í maí
sl. var konan boðuð með dags fyrirvara á fund
sem varðaði möguleg starfslok hennar. Þar var
henni sagt að hún starfaði ekki í samræmi við
stefnu leikskólans og tilkynnt að borist hefðu
kvartanir frá foreldrum vegna „hryssings-
legrar“ framkomu hennar við börnin. Síðar
þann sama dag var konunni afhent uppsagn-
arbréf þar sem tekið var fram að ekki væri
óskað eftir vinnuframlagi hennar í uppsagnar-
fresti. Konan hafði aldrei fengið skriflega
áminningu eða athugasemdir við störf sín.
Samkvæmt kjarasamningi er áminning undan-
fari lögmætrar uppsagnar ef ástæður starfslok-
anna varða starfsmanninn sjálfan. Sveitarfélag-
ið áleit uppsögnina lögmæta þar sem tvisvar
hefðu verið gerðar ákveðnar athugasemdir við
störf hennar, segir m.a. í frétt á vef BSRB.
Ráðuneytið taldi álitaefni málsins vera tvö,
annars vegar lögmæti áminningar sem sveitar-
félagið taldi sig hafa veitt konunni og hins veg-
ar lögmæti uppsagnar konunnar. Ráðuneytið
taldi að konan hefði ekki verið áminnt í sam-
ræmi við það sem kveðið er á um í kjarasamn-
ingi. Uppsögnin væri því ólögmæt. Þá þótti
einnig ástæða til að kanna hvort andmælarétt-
ar hefði verið gætt gagnvart konunni áður en
henni var sagt upp störfum.
Uppsögn leikskólakennara ólögmæt
Talið að starfsmaðurinn hafi ekki verið áminntur í samræmi við kjarasamning
ALLS bárust 36 tilboð í eignir
þrotabús útgerðarfélagsins Festar
ehf. í Hafnarfirði en eignirnar voru
auglýstar til sölu í síðustu viku.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans
hefur haft rekstur og eignir Festar
til sölu í umboði skiptastjóra.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum óskuðu 104 aðilar
eftir gögnum en 36 tilboð bárust.
Festi á sex báta, fiskvinnslu og afla-
heimildir upp á 1.656 tonn.
Skiptastjóri mun nú taka afstöðu
til tilboðanna og óska eftir því að
fjárfestar leggi fram trúverðuga
staðfestingu á fjármögnun kaup-
tilboðsins. Á síðasti stigi söluferl-
isins fá aðilar aðgang að frekari
gögnum og geta í kjölfarið lagt
fram bindandi kauptilboð. Reiknað
er með að gengið verði frá kaup-
samningi fyrir árslok.
Mikill áhugi á eignum útgerðarinnar Festar
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
LISTAVERKABÓK Á HEIMSMÆLIKVARÐA
KRISTINN E. HRAFNSSON