Morgunblaðið - 12.12.2009, Page 12

Morgunblaðið - 12.12.2009, Page 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009 Fjölskylduhjálp Íslands Neyðarkall frá Fjölskylduhjálp Íslands Hátt í 16000 einstaklingar eru nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á að- stoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar. Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti haldið gleðileg jól. Tekið er á móti matföngum að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík þriðjudaga kl. 9-13, miðviku- daga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892 9603. Einnig er tekið á móti framlögum á reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr. 101-26-66090, kt. 660903-2590. Netfang: fjolskylduhjalp@simnet.is FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is BANKARNIR eiga samtals 257 íbúðir og íbúð- arhús sem þeir hafa tekið yfir frá því að banka- kerfið hrundi. Þeir eiga einnig fyrirtæki, stór og smá, atvinnuhúsnæði, sumarbústaði, lóðir og fleira. Bankanir hafa flutt flestar þessar eignir í sérstök eignaumsýslufélög sem sjá um að koma þeim í sölu, en ljóst er að sumar eignir koma bankarnir til með að eiga í nokkur ár meðan beðið er eftir því að aðstæður á markaði batni. Það eru stórar og smáar eignir sem bank- arnir hafa tekið yfir vegna þess að skuldarar hafa ekki náð að standa í skilum. Bankarnir hafa á síðustu misserum verið að setja á stofn félög til að annast umsýslu með þessum eign- um. Inni í þessu félögum er mikið af eignum sem bankarnir áttu fyrir hrun. Miðengi ehf. fer með eignir Íslandsbanka Íslandsbanki stofnaði eignasýslufélagið Mið- engi sem heldur utan um eignir bankans í þess- um tilgangi. Stjórn Miðengis er skipuð fimm einstaklingum og þar af eru þrír óháðir stjórn- armenn. „Enginn þeirra stjórnarmanna sem sitja á vegum bankans í félaginu starfar við eða ber ábyrgð á lánafyrirgreiðslu. Þannig er tryggt að ákvarðanataka um fyrirgreiðslu bankans til fyrirtækja byggist eingöngu á við- skiptalegum forsendum,“ segir í svari frá Ís- landsbanka við fyrirspurn Morgunblaðsins. Undir Miðengi ehf. eru fimm dótturfélög. Eitt þeirra, Breiðengi ehf., fer t.d. með 20% eignarhlut bankans í Háskólanum í Reykjavík, 10% hlut bankans í Keili á Miðnesheiði og 3,3% hlut í sparisjóðnum Byr. Einnig fer félagið með hlut í Capa Invest, Frumtaki GP ehf. og GLB Glacier Renewable. Annað félag, Laufengi ehf., fer með hlut bankans í Steypustöðinni, Skelj- ungi og Sjóklæðagerðinni (33,3% hlut). Þriðja félagið heitir Útengi ehf., en það fer með 23,5% hlut bankans í Háskólavöllum ehf., sem tengist Keili. Fjórða félag Íslandsbanka heitir Engigerði, en það rekur fasteignafélög sem bankinn hefur yfirtekið. Þetta eru Laugaakur, sem heldur ut- an um fasteignir í Arnarneslandi í Garðabæ, 41,3% hlutir í Fasteign, en það félag á mikið af húsnæði sem sveitarfélög á Suðurnesjum og víðar leigja, og fasteignafélagið Rivulus. Þá á Íslandsbanki 77 íbúðir, 39 iðnaðar- og verslunarhúsnæði, fimm sumarhús, 17 íbúða- lóðir og tvær sumarbústaðalóðir. 40% hlutur í Icelandair er vistaður hjá bankanum sjálfum. Fjárfesta fyrir 800 milljónir í Egilshöll Landsbankinn rekur fjögur eignaumsýslu- félög, Vestiu, Regin, Hömlur og Horn. Vestia ber ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun eignarhalds í atvinnufyrirtækjum sem Nýi Landsbankinn hefur eignast í kjölfar end- urskipulagningar. Félagið á í dag hlut í sex fyr- irtækjum, Öskju (36% hlutur), Húsasmiðjunni (100%), Parlogis (100%), Stoðum (25% hlut), Teymi (62,2% hlut) og Atorku (42% hlut). Atorka á hlut í fyrirtækjum eins og Björgun og Geysi Green Energy. Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, segir markmið félagsins að hámarka verðmæti eigna. Félagið ætli sér að selja þessar eignir við fyrsta tækifæri, en starfsreglur fé- lagsins gerir þó ráð fyrir að horft verði til fleiri þátta. Ákvörðun hafi verið tekin um að setja Parlogis í sölu á seinni hluta næsta árs og hann reiknar með að hlutur Teymis í Tali verði settur í sölu í vetur. Reginn er dótturfélag Nýja Landsbankans sem sér um að reka og leigja atvinnuhúsnæði sem bankinn hefur yfirtekið. Helgi S. Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Regins, segir að fé- lagið sé búið að yfirtaka nokkra tugi eigna. Samtals eigi félagið um 140 þúsund fermetra af húsnæði. Stærsta fasteignin er Smáralind sem er 62 þúsund fermetrar. Helgi segir ljóst að félagið komi til með að vera með nokkuð umfangsmikla starfsemi. Markmið þess sé að hámarka verðmæti eigna. Eignirnar verði seldar eins fljótt og auðið er, en markaðsaðstæður séu hins vegar erfiðar. Hann segir að markaðurinn sé þó alls ekki frosinn. Hann er bjartsýnn á að félagið geti selt hús- eignir á næsta ári sem eru með góða leigusamn- inga. Helgi segir að í nokkrum tilvikum þurfi að gera endurbætur á húseignum áður en hægt sé að selja þær. Þetta eigi t.d. við um Egilshöll. Verið sé að byrja umfangsmiklar framkvæmdir á höllinni sem áætlað er að kosti 700-800 millj- ónir. Verktaki verði valinn um miðjan þennan mánuð að loknu forvali. Stefnt sé að því að framkvæmdum við bíóið ljúki í lok næsta árs. Hann segist bjartsýnn á að hægt verði að selja Egilshöll þegar þessum framkvæmdum sé lok- ið. Hömlur eiga fasteignir sem metnar eru á fimm milljarða Hömlur er fasteignafélag Landsbankans sem heldur utan um fasteignir (íbúðarhúsnæði), skip og fleira. Félagið setur allar eignir jafn- harðan á markað fyrir milligöngu fasteignasala. Hömlur á í dag 111 íbúðir, 78 iðnaðar- og skrif- stofuhúsnæði, 14 sumarhús, 120 sum- arhúsalóðir, eitt skip og 10 aðrar eignir. Sam- tals eru þetta 214 eignir og áætlað verðmæti þeirra er 5,1 milljarður. Horn er fjárfestinga- félag Landsbankans, en markmiðið með stofn- un þess er að aðgreina utanumhald vegna fjár- festinga í hlutabréfum frá meginstarfsemi bankans. Horn ehf. hefur yfirtekið nær allt hlutafé í skráðum og óskráðum félögum sem fluttust frá Landsbanka Íslands til Nýja Lands- banka. Félagið vill ekki gefa upplýsingar um eignir sínar meðan ekki er búið að birta efna- hagsreikning bankans. Af skráðum hlutabréf- um á Horn hlut í Össuri, Marel, Intrum og Kauphöllinni í Osló. Þrjú eignaumsýslufélög Arion eru að hefja starfsemi Arion banki hefur stofnað fjögur eignaum- sýslufélög, Landey, Landsel, Landfestar og Eignasel. Starfsemi Landfesta er komin í fastar skorður en hin félögin eru varla komin af stað. Búið er að ráða framkvæmdastjóra fyrir Land- ey og Landsel, en ekki fyrir Eignasel. Engar eignir eru komnar inn í Eignasel og Landsel og Landey er aðeins með eina eign á sínum snær- um, þ.e. hlutabréfin í Þyrpingu. Arion banki hefur yfirtekið fjögur fyrirtæki, Pennann, Heklu, Þyrpingu og 1998. Frá ára- mótum hefur bankinn leyst til sín 69 íbúðir, sex iðnaðarhúsnæði og 12 atvinnuhúsnæði. Landfestum er ætlað að eiga, reka og leigja út atvinnuhúsnæði sem Arion banki eignast með samningum um endurskipulagningu skuldastöðu viðskiptavina sinna. Félagið á núna um 75 þúsund fermetra af húsnæði og er yfir 90% þess í leigu. Jónas Þór Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri félagsins, segir að nær allt þetta húsnæði hafi bankinn verið búinn að eignast fyrir hrun. Ein eign hefur bæst við síðan, en það er Borgartún 26 sem Landfestar eignuðust af Þyrpingu í haust. Jónas sagði að bankinn ætlaði sér ekki að eiga þessar eignir um alla framtíð. Þær yrðu seldar þegar jafnvægi væri komið á markaðinn. Atvinnuhúsnæði Eignaumsýslufélög bankanna hafa eignast mikið af atvinnuhúsnæði á síðustu misserum. Þeir eiga Egilshöll, Smáralind og stórar húseignir við Borgartún og Suðurlandsbraut. Bankarnir eignast hús og félög  Bankarnir eru búnir að stofna sérstök eignaumsýslufélög sem hafa það verkefni að halda utan um stórar og smáar eignir bankanna  Sum þessi félög verða með umfangsmikla starfsemi næstu árin Eignaumsýslufélög viðskiptabankanna koma til með að vera með nokkuð um- svifamikla starfsemi. Sumar eignir bank- anna verða ekki seldar fyrr en markaðs- aðstæður batna. Nokkur ár geta liðið áður en sá tími kemur. Áformum um að stofna opinbert hlutafélag sem eigi og reki þjóð- hagslega mikilvæg félög hefur ekki verið hrundið í framkvæmd. Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra segir að ekki hafi þó verið fallið frá þessari hugmynd. Í sumar samþykkti Alþingi heim- ild til fjármálaráðherra til að stofna opinbert hlutafélag sem hefði það að markmiði að aðstoða fjármála- fyrirtæki við fjárhagslega endur- skipulagningu atvinnufyrirtækja. Fyrirtækið má ef nauðsynlegt þykir kaupa, eiga, endurskipuleggja og selja „þjóðhagslega mikilvæg at- vinnufyrirtæki“. Með þjóðhagslega mikilvægu atvinnufyrirtæki er átt við fyrirtæki „sem sinnir svo mikil- vægum almanna- eða öryggishags- munum að stöðvun þess um lengri eða skemmri tíma mundi valda verulegri röskun í þjóðfélaginu öllu.“ Mats Josefsson, formaður nefnd- ar um endurreisn bankakerfisins, mælti með því að ríkið setti á stofn opinbert eignaumsýslufélag. Ekkert hefur hins vegar gerst í málinu frá því Alþingi samþykkti lögin. „Nei, við höfum alls ekki horfið frá þeirri hugmynd,“ sagði Stein- grímur J. þegar hann var spurður hvort hætt væri við þessi áform. „Hins vegar höfum við aðeins beðið átekta með þetta mál af vissum ástæðum. Við erum m.a. að bíða eftir því hvert endanlegt umfang Bankasýslunnar verður. Við erum líka að afla gagna frá bönkunum um hvernig þeir meta stöðuna gagnvart sinni eignaumsýslu og eignaúrvinnslu.“ Bankarnir virðast hafa efasemdir um að þörf sé á slíku félagi. Í svari frá Arion banka segir: „Það hefur verið afstaða bankans að ekki sé þörf á miðlægu eignaumsýslu- félagi.“ Í svari frá Landsbanka er bent á að tiltölulega fá félög flokkist undir „þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki“. Bankinn muni taka afstöðu til fé- lagsins þegar sú staða komi upp að eitthvert fyrirtæki eigi að flytjast þangað. „Þær áhyggjur sem menn höfðu strax í kjölfar hrunsins um hvernig ætti að fara með eignarhluti í þjóð- hagslega mikilvægum fyrirtækjum voru skiljanlegar á sínum tíma. Hins vegar er ástandið mun betra hjá þessum fyrirtækjum en menn þorðu að vona á sínum tíma og þörfin á slíku félagi ekki eins mikil í dag og menn töldu fyrir um ári síð- an. Ennfremur hafa viðskiptabank- arnir sýnt að þeir geti leyst úr þeim verkefnum einir sér eða í samstarfi við hvor aðra þegar um fyrirtæki hefur verið að ræða sem verið hefur í viðskiptum við fleiri en einn banka,“ sagði Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, um hug- myndir stjórnvalda. Lagaheimild til að stofna opinbert félag hefur ekki verið nýtt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.