Morgunblaðið - 12.12.2009, Qupperneq 16
16 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
NÝ sending bóluefnis gegn inflú-
ensunni A(H1N1) berst heilsu-
gæslustöðvum um land allt á mánu-
dag og þriðjudag, 14. og 15.
desember, skv. upplýsingum frá
sóttvarnalækni og almannavarna-
deild. Þá verður unnt að taka þráð-
inn upp að nýju og bólusetja fólk
sem skráð hefur sig á biðlista.
Mjög hefur dregið úr inflúensu-
faraldrinum hér á landi undanfarna
daga og vikur. Þrír sjúklingar lágu
á Landspítalanum í fyrradag vegna
veikinnar, þar af einn á gjörgæslu-
deild. Bólusetning hefst á nýjan leik
miðvikudaginn 16. desember og þá
ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig
á biðlista, samkvæmt tilkynningu
frá landlækni.
Tekið er við nýjum pöntunum
vegna bólusetningar frá og með
mánudegi 14. desember. Bóluefni
verður næst dreift um landið 6. jan-
úar.
Bólusetning gegn svínainflúensu
hefst á nýjan leik í næstu viku
Nýrri sendingu dreift Heilsugæslu-
stöðvar gefa upplýsingar á heima-
síðum og í síma um bólusetninguna.
RÆTT var um efnahagsmál þjóðarinnar og áhrif
niðurskurðar í leikskólum á gæði leikskólastarfs
og menntun leikskólabarna á fundi stjórnar Fé-
lags leikskólakennara nýverið.
Í ályktun sem samþykkt var á fundinum skorar
Félag leikskólakennara á sveitarfélög og aðra
rekstraraðila „að láta nú þegar staðar numið í
niðurskurði í leikskólum og annars staðar í skóla-
kerfinu og standa við fögur fyrirheit um að slá
skjaldborg um menntun barna og ungmenna. Það
er mikill tvískinnungur að skera niður í stórum
stíl og ætlast um leið til þess að starfsfólk haldi
uppi sömu gæðum og þjónustu og áður. Þegar
þrengir að í samfélaginu er öruggt og öflugt skólakerfi ein mikilvægasta
stoðin til að tryggja börnum góða menntun, umönnun og skjól. Það er rétt-
lætismál að forgangsraða í þágu þeirra þegar kemur að fjárhagsáætl-
anagerð,“ segir í ályktun leikskólakennara.
Vilja að nú þegar verði staðar numið í
niðurskurði í leikskólum og skólakerfinu
KIRKJUKLUKKUM um allan heim
verður hringt 350 sinnum á morgun
klukkan þrjú. Þetta er gert í tilefni
af loftslagsráðstefnu SÞ, sem nú
stendur yfir í Kaupmannahöfn og
er gert til að minna á þá umhverf-
isvá sem steðjar að jarðarbúum
vegna hlýnunar andrúmsloftsins.
Hér á landi verður kirkjuklukk-
um hringt klukkan þrjú þennan dag
víða um land.
Kirkjuklukkum
hringt 350 sinnum
ALLS söfnuðust sex milljónir kr.
þegar starfsmenn Landsbankans
tóku höndum saman í vikunni.
Söfnuðu þeir fé til styrktar sameig-
inlegri jólaaðstoð á vegum Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur og Reykja-
víkurdeildar Rauða krossins.
Starfsmannafélag Landsbankans
hafði frumkvæði að söfnuninni og á
tveimur dögum lögðu mörg hundr-
uð starfsmenn lóð sín á vogarskál-
arnar. Talið hefur verið að allt að
fimm þúsund fjölskyldur leiti sér
aðstoðar fyrir jólin.
Öfluðu sex millj-
óna í jólasöfnun
Styrkir Fulltrúar hjálparstofnana
fengu söfnunarféð afhent í gær.
JAFNRÉTTISRÁÐ geldur varhug
við þeirri styttingu fæðingarorlofs
um einn mánuð sem nú eru uppi
áform um. Hún muni bitna á öllum
hlutaðeigandi. Mest skerðist þó
hlutur einstæðra mæðra í þeim til-
fellum þar sem faðir nýtir ekki rétt
sinn til fæðingarorlofs. Þessi áform
feli heldur ekki í sér lausn til fram-
búðar heldur sé vandanum aðeins
ýtt fram á við um einhver ár. Hætt
sé við að uppsöfnuð fjárþörf skapi
ný vandamál og erfiðari en nú er
við að glíma.
Á móti skerðingu
STUTT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
NOKKUR blöð vestanhafs íhuga nú
að loka fyrir aðgang að vefsíðum sín-
um í Englandi, setja upp „eldvegg“,
vegna þess hve meiðyrðalöggjöfin í
landinu er hliðholl þeim sem kærir,
segir í grein sem blaðamaðurinn Sar-
ah Lyall skrifar á vefsíðu blaðsins
The New York Times í gær. Nokkur
sambandsríki, þ. á m. New York, hafi
nú sett lög sem geri erfitt að fram-
fylgja þar enskum meiðyrðadómum.
Hún nefnir nokkur dæmi um máls-
höfðanir í Englandi vegna meiðyrða á
seinni árum og er mál kaupsýslu-
mannsins Jóns Ólafssonar gegn
Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni
prófessor eitt þeirra og málið allt sagt
„undarlegt“. Á forsíðu vefsíðunnar
var mynd af Hannesi.
„Jón Ólafsson, íslenskur kaup-
sýslumaður, kærði hér [í Englandi]
Hannes Gissurarson, prófessor við
Háskóla Íslands, vegna gagnrýninna
ummæla sem Hannes hafði ritað á
vefsíðu Háskólans fimm árum fyrr,“
segir í greininni. „Hannesi var gert að
greiða Jóni, sem hafði flutt til Lond-
on, 55.000 pund sem svarar til um
89.500 dollara núna [um 11 milljóna
íslenskra króna]. En málinu var vísað
frá þegar í ljós kom að breska sendi-
ráðið í Reykjavík hafði ekki gengið
rétt frá upphaflegu lagaskjölunum.
„Farsakennd“ málshöfðun
Jóns gegn breska ríkinu
Jón svaraði þá á farsakenndan hátt
með því að höfða mál gegn breska ut-
anríkisráðuneytinu og voru honum
síðastliðið haust dæmdar bætur sem
nema nokkur hundruð þúsund pund-
um.“ Lyall segir að Hannes hafi varið
100.000 pundum í málsvörnina og
þurft að selja húsið sitt.
Nefnd eru fleiri dæmi. Simon
Singh, höfundur bókarinnar Fermat’s
Enigma, á nú í baráttu við Bresku
hnykklæknasamtökin vegna rit-
stjórnargreinar sem hann skrifaði í
blaðið Guardian. Hann sakaði þar
hnykklækna um að beita „loddara-
meðferð“og neitar að semja um sátt
eða biðjast afsökunar.
Annað dæmi er af Rachel Ehren-
feld, bandarískum fræðimanni sem
skrifaðí bókina Funding Evil þar sem
sagt var að sádi-arabíski auðkýfing-
urinn Khalid bin Mahfouz hefði styrkt
al-Qaeda með fé. Aðeins voru seld 23
eintök af bókinni í Englandi en það
dugði Mahfouz til að geta höfðað mál
þar í landi. Ehrenfeld, sem hunsaði
réttarhöldin, var dæmd til að borga
manninum 225.000 dollara í bætur.
Var þetta mál kveikjan að áðurnefnd-
um lögum í New York-ríki, að sögn
Lyall.
Hótað kæru vegna
gagnrýni á knattspyrnulið
Það séu ekki einvörðungu frétta-
miðlar sem hafi orðið fyrir barðinu á
löggjöfinni. Umhverfisverndarsinnar,
baráttumenn gegn spillingu, vísinda-
menn á sviði læknisfræði sem sakað
hafi lyfjafyrirtæki um bellibrögð og
áhugamenn um knattspyrnu sem hafi
birt gagnrýni um liðið sitt hafi á seinni
árum annaðhvort verið lögsóttir eða
verið hótað lögsókn.
„Og í neðri deild þingsins hefur
nefnd hlýtt á fjölmörg vitni fordæma
núgildandi lög og segja að þau séu út i
hött, séu ósanngjörn, geri málskostn-
að allt of háan, með þeim sé tjáning-
arfrelsinu sýnd fyrirlitning og þau
séu tímaskekkja á tímum þegar alls
staðar sé hægt að nálgast greinar á
erlendum vefsíðum.“
Breska löggjöfin er á margan hátt
andstæða löggjafarinnar í Bandaríkj-
unum, að sögn blaðamannsins. Vestra
verður sá sem kærir að sanna að full-
yrðingin sem fjallað er um eigi ekki
við rök að styðjast. Einnig verði að
vera sannað að um hafi verið að ræða
illgirnislega fullyrðingu þar sem
sannleikurinn hafi verið hunsaður á
óskammfeilinn hátt. Sönnunarbyrðin
hvílir á kærandanum, ekki hinum
ákærða.
Meiðyrðamálið gegn
Hannesi sagt „undarlegt“
New York Times Forsíðan á vef bandaríska blaðsins með mynd af Hannesi
Hólmsteini. Sagt er að England hafi lengi verið „Mekka meiðyrðamálanna“.
Í HNOTSKURN
»Meiðyrðalöggjöfin er um-deild í Englandi. Jack
Straw, dómsmálaráðherra
Bretlands, varaði að sögn
Lyall nýlega við því sem hann
nefndi „meiðyrðatúrisma“.
»Lyall segir að liðsmaðurlávarðadeildarinnar sé að
undirbúa nýtt frumvarp. Þar
verði m.a. gert að skyldu fyrir
útlendinga að sýna fram á að
þeir hafi í reynd orðið fyrir
tjóni vegna meiðyrða í Eng-
landi áður en þeir fái að höfða
þar mál.
New York Times
ræðir mál Jóns
Ólafssonar gegn
prófessornum
í Englandi
TÆPUR helmingur, eða átta
þeirra 19 aðalmanna sem setið hafa
í leikskólaráði þetta kjörtímabil,
hefur mætt á að minnsta kosti 90%
þeirra funda sem boðað var til í
þeirra stjórnartíð. Geta þrír
nefndarmanna raunar státað af því
að vera með 100% mætingu, þótt
misjafnlega margir fundir liggi
vissulega þar að baki. Allir nefnd-
armenn, utan þrír, hafa mætt á yfir
70% funda. Helena Ólafsdóttir,
Framsóknarflokki, sker sig raunar
úr hópnum fyrir að hafa misst af
öllum fundum sinn skamma tíma í
ráðinu.
Morgunblaðið hefur undanfarnar
vikur óskað eftir upplýsingum um
mætingu aðalmanna á fundi hinna
ýmsu ráða borgarinnar. Misjafn-
lega vel hefur gengið að fá þessar
tölur, en þær verða áfram birtar í
blaðinu næstu daga, sem og greint
frá því hvaða ráð hafa ekki enn
skilað upplýsingum.
annaei@mbl.is, kjon@mbl.is
Fundarseta í leikskólaráði
Anna Margrét Ólafsdóttir
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
Hermann Valsson
Sigrún Elsa Smáradóttir
Helga Björg Ragnarsdóttir
Ragnar Sær Ragnarsson
Fanný Gunnarsdóttir
Oddný Sturludóttir
Áslaug Friðriksdóttir
Sóley Tómasdóttir
Þórey Vilhjálmsdóttir
Svandís Svavarsdóttir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
Helga Kristín Auðunsdóttir
Marsibil Sæmundardóttir
Einar Örn Ævarsson
Ingvar Mar Jónsson
Helena Ólafsdóttir
1 af 1
9 af 9
32 af 32
41 af 43
19 af 20
14 af 15
54 af 59
53 af 59
33 af 37
8 af 9
8 af 9
7 af 8
47 af 54
11 af 14
22 af 29
5 af 7
21 af 32
11 af 19
0 af 3
Fundir leikskólaráðs á tímabilinu september 2006 til desember 2009 voru 69 talsins og
skiptast á sex tímabil. Ekki hafa sömu aðalmenn setið í stjórn allt kjörtímabilið og tekur
prósentureikningur mið af mætingu þeirra þann tíma sem þeir sátu í stjórninni.
Í töflu yfir fundarsetu aðlamanna í menntráði var Anna Margrét Ólafsdóttir ranglega sögð í
Samfylkingu í stað Framsóknarflokki og er beðist velvirðingar á því.
Flokkur Fundarmæting Hlutfall
100%
100%
100%
95%
95%
93%
92%
90%
89%
89%
89%
88%
87%
79%
76%
71%
66%
58%
0%
Fyrirmynd-
armæting
hjá leik-
skólaráði
Frábært tilboð
á ilmkertum
TI
LB
OÐ
Fullt verð 1.590 kr.
0kr.
auk 800 punkta
x2
Ilmkerti í hæsta gæðaflokki sem brenna
vel og lengi. Ýmsar ilmtegundir í boði.