Morgunblaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 28
28 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
Á
tak hefur verið gert í
grisjun skóga á þessu
ári og á næsta ári má
ætla að grisjunin marg-
faldist. Um átaksverk-
efni er að ræða í ýmsum skilningi því
með samstarfi Vinnumálastofnunar
og Skógræktar ríkisins hafa sex ein-
staklingar sem voru án atvinnu feng-
ið störf við skógarhögg, þrír í Þjórs-
árdal og þrír í Haukadal. Svo vel líkar
þeim starfið að einhverjir þeirra
hyggjast starfa við það áfram og jafn-
vel gera tilboð í grisjun á eigin spýt-
ur. Ánægjan mun vera gagnkvæm.
Dagurinn er ekki langur í skamm-
deginu í gróskumiklum skóginum í
Þjórsárdal og ekki fýsilegt að ráfa
þar um með keðjusög í myrkinu. Því
byrja skógarhöggsmennirnir daginn
heima við starfsmannahúsið við
vinnslu skógarafurða, sem eru not-
aðar í spæni undir hesta, í fiskhjalla,
brenni fyrir flatbökuofna og fram-
undan er að afhenda eldivið upp í
samning við Járnblendiverksmiðjuna
á Grundartanga.
Á leiðinni inn í skóginn við Sel-
höfða rifjar Jóhannes H. Sigurðsson,
verkstjóri í skóginum í Þjórsárdal og
aðstoðarskógarvörður á Suðurlandi,
upp nöfnin á trjátegundunum. Sitka-
greni, rauðgreni og stafafura voru
ráðandi í fyrstu gróðursetningunum
fyrir réttri hálfri öld, þarna eru einn-
ig lerki, blágreni og ösp að ógleymd-
um fjallaþininum sem fyllir morg-
uninn með ilmi sínum. Stígurinn í
gegnum skóginn er merk fram-
kvæmd sem unnin var með styrk frá
Sjálfsbjörgu á Suðurlandi til að auka
aðgengi fatlaðra.
Skóglendið í Þjórsárdal er á um
450 hekturum í landi Skriðufells og
Ásólfsstaða. Á síðustu árum hefur
meira verið grisjað en áður, sem er
nauðsynlegt í öllum skógum. Allt í
einu varð markaður fyrir grisj-
unarviðinn og Jóhannes segist efast
um að eins mikil eftirspurn sé eftir
viði úr fyrstu grisjun í nágrannalönd-
um og er hérlendis. Það breyttist eins
og margt annað með veikingu krón-
unnar er innflutningur varð dýrari en
áður.
Við göngum á sagarhljóðið á bökk-
um Sandár og þar eru þremenning-
arnir Bjarni Haraldsson, Magnús
Fannar Guðmundsson og Daníel
Hrafn Ólafsson að fella tré, afgreina
og draga í stæðu. Þeir láta vel af sér
og Bjarni og Magnús hafa hug á að
starfa áfram við skógarhöggið en
samningi um starf þeirra lýkur nú
fyrir jól.
„Þetta er frábært, eins og að fá
borgað fyrir að vera í ræktinni.
Hérna erum við úti í náttúrunni laus-
ir við stress og þras,“ segja þeir
Magnús og Daníel. Þeir eru tvítugir
og stefna á nám í framhaldsskóla eft-
ir áramót, annar á Selfossi, hinn á
Grundarfirði.
Á heimavelli í skóginum
Jóhannes verkstjóri er á heima-
velli í skóginum. Hann er fæddur á
Ásólfsstöðum og býr þar enn. Afi
hans, Ásólfur Pálsson, seldi hluta
jarðarinnar á sínum tíma til Skóg-
ræktar ríkisins, en hélt eftir und-
irlendi til að hægt væri að stunda þar
búskap. Sem unglingur starfaði Jó-
hannes öll sumur í skóginum, en
lærði síðan vélvirkjun. Hann starfaði
meðal annars hjá Landsvirkjun, en
er nú að koma sér upp stofni holda-
nauta.
„Ég er með heilsársstarf hjá Skóg-
ræktinni, en fer í fjósið heima á
Ásólfsstöðum kvölds og morgna,“
segir Jóhannes. „Við erum aðallega í
kjötframleiðslu og höfum blandað
saman Angus og Limousine. Ætli við
seljum ekki 20 naut til slátrunar í ár,“
segir Jóhannes.
Við kveðjum skógarhöggsmennina
þegar líður að hádegismat hjá þeim.
Þeir elda sjálfir og nautahakk með
alls konar ívafi er vinsælast hjá þeim
félögum. Stundum með spaghettí eða
eggi. Alltaf með brauði og nóg af
tómatsósu.
Með sögina Bjarni Haraldsson dregur ekki af sér við að saga greinar af bolnum. Verkstjórinn Jóhannes H. Sigurðsson frá Ásólfsstöðum við timburstafla.
Með skógarhöggsmönnum í hálfrar aldar gömlum skógi við Selhöfða í Þjórsárdal
Ánægja með árangur af átaksverkefni
Morgunblaðið/Ómar
Í skóginum Handtökin eru mörg og nýfellt tréð tekur í hjá þeim Daníel Hrafni Ólafssyni og Magnúsi Guðmundssyni.
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
o.m.fl .
Frábært verð, mik
ið úrval
gefðu
Gjafabréf
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
Jafnvægi fyrir líkama og sál
veittu vellíðan
gefðu
gjafabréf
Kínversk
handgerð list
Frábær jólagjöf
á gamla genginu!