Morgunblaðið - 12.12.2009, Síða 30
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þetta kom upphaflega til afþví að tveir yngstu dreng-irnir mínir eru frekar hand-óðir og þá eru brothættar
jólakúlur ekki alveg það hentugasta.
Ég ákvað því að prjóna jólakúlur og
bjó til grunnuppskrift. Fyrsta kúlan
tókst nokkuð vel, hún er í sauðalit-
unum, rammíslensk, hrá og kraft-
mikil. Reyndar svo kraftmikil að það
var ekki aftur snúið. Ég var sannfærð
um að fleiri hefðu gaman af þessu og
ákvað að dreifa uppskriftinni sem víð-
ast. Ég vil að sem flestir njóti þeirrar
ánægju sem fylgir því að prjóna og úr
þessu getur orðið skemmtileg jóla-
undirbúningsstemning. Prjónuð jóla-
kúla hönnuð af gefandanum er líka
frábær jólagjöf,“ segir Vilborg María
Ástráðsdóttir hestamaður og bóndi í
Skarði í Gnúpverjahreppi hinum
forna, en hún fór af stað með jólakúl-
una sína í október.
Virkja hugmyndaauðgi
Kúlan er hugsjónaverkefni. „Ég
kalla þetta verkefni Jólakúl, þar sem
ég kasta boltanum með því að dreifa
uppskriftinni og hvetja alla til að
prjóna jólakúlur í öllum stærðum og
gerðum og með allskonar munstri.
Ég trúi svo sannarlega á að það sé
hægt að virkja hugmyndaauðgi hvers
og eins. Mér finnst að fólk eigi að nýta
sinn eigin sköpunarkraft meira en
það gerir. Ég hef fulla trú á því að
fólk sem stundar til dæmis prjóna-
skap geti sjálft hannað sín eigin
munstur og snið. Það er um að gera
að byrja bara smátt og láta hlutina
þróast. Fólk á ekki að apa nákvæm-
lega upp eftir öðrum. Mér finnst til
dæmis ekki góð þróun að það líðist að
fólk telji út peysur sem aðrir hafa
hannað.“
Þjórsáin birtist í prjóninu
Vilborg hefur ekki tölu á því hversu
margar jólakúlur hún hefur prjónað
en margar þeirra eru flognar úr
hreiðrinu, sumar sem gjafir til vina og
vandamanna en aðrar hefur hún selt.
Og sumar þeirra eru farnar alla leið
vestur um haf til Ameríku. Hún segir
aldrei að vita nema hún reyni að selja
útlendingum kúlur, ef þeir vilji kaupa
þær. Vilborgu er margt til lista lagt.
Hún er líka að fikta við myndlist. „Ég
drekk í mig innblástur frá íslensku
náttúrunni af mikilli áfergju. Ég hef
sótt nám til Katrínar Briem mynd-
listamanns og myndlistakennara í
nokkur misseri og á hún mikið í mér
og mínum þankagangi hvað varðar
myndlist og sköpun.“
Vilborg segist horfa mikið í kring-
um sig og hún leitar ekki alltaf langt
yfir skammt þegar hún hannar
munstur. „Í einu munstrinu mínu er
Jólakúlufjölskylda „Prjónuð jólakúla hönnuð af gefandanum er líka frábær jólagjöf,“ segir Vilborg María.
Prjónar Vilborg er í fæðingarorlofi eins og stendur en starfar sem leik-
skólastjóri. „Ég nýti aðallega tímann eftir að börnin sofna á kvöldin.“
„Kalla þetta verkefni Jólakúl“
Fjölbreytt Rugguhestar sem Vilborg smíðaði eru hér klæddir lopapeysum.
30 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
M
b
l1
15
17
16
Gjöfin hennar
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
– Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355 – www.selena.is
Opið mán.-lau. kl. 11-18, sun. kl. 13-17 • Næg bílastæði
Náttföt
Verð 12.800
Náttföt
Verð 14.800
Náttföt
Verð 14.800
Náttkjóll
Verð 8.800
Sloppur
Verð 9.800
Undirfatasett
Verð 10.500